Fréttablaðið - 17.10.2020, Side 26

Fréttablaðið - 17.10.2020, Side 26
Þegar eigandi leggur til f imm milljarða dala, eða 694 m i l lja rða íslenskra króna, til þess eins að byggja íþrótta-völl er eins gott að sá völlur verði einstakur. Pressan eykst þegar völlurinn er í miðborg Los Angeles fyrir NFL-lið sem var að flytjast til borgarinnar. Það var ekkert til sparað við að gera völlinn sem nútímalegastan og einstakan á heimsvísu. Einn þeirra sem eiga stóran þátt í hönnun tækninnar á SoFi-vellinum er Skarphéðinn Héðinsson. Skarphéðinn er fram- kvæmdastjóri tæknimála (e. chief technology officer) hjá Los Angeles Rams og SoFi-vellinum. „Það er hægt að taka undir að þetta sé f lottasti völlur heims og ég hef alveg gefið það út að það sé erfitt að sjá hvernig þetta verður toppað í mjög langan tíma. Það eru svo margir hlutir sem þurfa að smella, eins og gerðist hjá okkur. Ég get sagt að það heppnaðist betur en við þorðum að vona og það er alveg ótrúleg upplifun að koma á völlinn,“ segir hann. Skarphéðinn hefur búið í Banda- ríkjunum í tæp þrjátíu ár eftir að hafa stundað háskólanám við University of Washington. Þar lærði hann tölvunarfræði áður en inter netið ruddi sér til rúms. Eftir útskrift vann hann hjá hinum ýmsu sprotafyrirtækjum í Seattle. „Það er ótrúlegt að segja að maður hafi lært tölvunarfræði svo gott sem fyrir komu internetsins. Þar hófst þetta allt saman,“ segir Skarphéðinn hlæjandi. Sjálfur er hann íþrótta- áhugamaður og tók tækifærinu fagnandi þegar Walt Disney keypti sprotafyrirtækið Starwave fyrir ESPN og hann hóf störf hjá ESPN, stærstu íþróttaveitu heims. „Star- wave var brautryðjandi þegar kom að því að framleiða efni fyrir vefinn. Á þessum tíma varð bylting í frétta- f lutningi af íþróttum. Áherslan færðist yfir á netið og hvernig hægt væri að koma efni þangað.“ Frá ESPN til Los Angeles Þegar ESPN flutti höfuðstöðvar sínar á Austurströndina bauðst Skarp- héðni að vinna fyrir Disney og ABC í Los Angeles. Hann býr nú í Los Ange- les ásamt eiginkonu sinni, Lynneu, og á tvær dætur, Isabel og Freyju. Hjá Disney vann hann sem yfir- maður tæknimála í tólf ár, en áhug- inn á að vinna við að samtvinna íþróttir og tækni var aldrei langt undan. Árið 2016 hafði einstakl- ingur sem var að aðstoða Rams í stjórnendaráðningum samband við Skarphéðin. „Íþróttaáhuginn blundaði alltaf í manni. Rams höfðu fyrst samband þegar ég var með fjölskyldu minni á EM 2016 í Frakklandi og hugmyndir liðsins heilluðu mig undir eins. Rams var að flytja til Los Angeles og vildi fá mig í vinnu fyrir nýjan völl. Stan Kroenke, eiganda félagsins, bauðst frábært tækifæri þegar hann gat keypt þetta land í Los Angeles og þá fór boltinn að rúlla. Þetta er eitt stærsta fasteignaverkefni Banda- ríkjanna og er stór hluti af upp- byggingu Inglewood. Í þessu tilviki varstu með góðan tímapunkt, rétta staðsetningu, eiganda sem var til í að borga fyrir völlinn og tvö NFL-lið að bíða eftir velli.“ Hitastigið í Los Angeles gerði arkitektunum kleift að fara áður ótroðnar slóðir í hönnun vallarins. „Þetta er mjög sérstök en falleg hönnun, eins og Stan vildi. Hann vildi ekki loka fólk inni í Kaliforníu og vildi tryggja þægilegt and- rúmsloft. Fyrsta hindrunin var að við gátum ekki byggt völlinn frá grunni vegna hæðartakmarkana. Það þurfti því að grafa þrjátíu metra dal í jörðina og við byggðum völlinn inn í hann. Þakið er svo einstakt á heimsmælikvarða. Það er nokkurs konar sólhlíf sem dregur úr áhrifum sólarinnar og kemur með þægilegt andrúmsloft á sólríkum dögum en skýlir ef það fer að rigna. Þá er völlurinn að stóru leyti opinn til að hleypa golu inn frá sjónum og gera hann sjálf bærari.“ Sameinar tækni og íþróttir í LA Eftir rúmlega þriggja ára undirbúning er einn tæknilegasti og flottasti völlur heims kominn í notkun en Íslend- ingur stýrir tæknilegu hliðinni á honum. Skarphéðinn Héðinsson tók þátt í uppbyggingunni í Inglewood og fékk að kveikja á Oculus-skjánum á SoFi-vellinum, sem er talið að hafi kostað á bilinu 16-17 milljarða íslenskra króna. Þakið á SoFi-vellinum er nokkurs konar sólhlíf. Í nágrenninu á að byggja verslanir og íbúðir. MYND/SOFI STADIUM Skarphéðinn léttur og ljúfur á hliðarlínunni á SoFi-vellinum. Hundrað milljóna dala skjárinn, sem er hér í bakgrunni, átti ekki í vandræðum með að afgreiða íslenska stafi. MYND/AÐSEND Kristinn Páll Teitsson kristinnpall@frettabladid.is 1 7 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.