Fréttablaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 28
Hluti af undirbúningnum voru
margar ferðir á aðra velli í Banda-
ríkjunum til að taka út velli keppi-
nautanna.
„Þetta voru þrjú ár af stanslausu
fundahaldi, að skoða teikningar
og ferðalög með liðinu að skoða
aðra velli til að kanna hvað er vel
gert á hverjum velli fyrir sig. SoFi er
stærsti NFL-völlur Bandaríkjanna í
fermetratali, 288 þúsund fermetrar.
Hann er því tvöfalt stærri en US
Bank-völlurinn í Minnesota sem
var teiknaður af sömu arkitektum,
þó að vellirnir taki svo gott sem
jafn marga. Í heildina er völlurinn
byggður á átta hæðum. Flestir vellir
í Bandaríkjunum eru ein til þrjár
hæðir, en með átta hæðum tryggir
þú gott útsýni úr öllum sætum. “
Einstakur skjár á heimsvísu
Meðal þess sem völlurinn býður
upp á er að koma skilaboðum áleiðis
á þakinu, sem sjást þegar f lugvélar
koma inn til lendingar á alþjóða-
flugvellinum í Los Angeles.
„Ljósabúnaðurinn fyrir utan völl-
inn er þannig að við getum notað
hann eins og skjá. Þakið telur 28
þúsund pixla, sem býður upp á að
sýna myndir eða skilaboð á þakinu,
sem sjást þegar f lugvélar koma inn
til lendingar. Það býður upp á alls
konar möguleika.“
Ein af nýjungum vallarins er Ocu-
lus-skjár, sem er 997 tonn og liggur
í hring yfir öllum vellinum. Ekki
hefur fengið staðfest hvað skjárinn
kostaði en bandarískir fjölmiðlar
fullyrða að það sé meira en hundrað
milljónir dala.
„Þessi skjár er magnaður. Ég hef
umsjón með öllum þeim deildum
sem koma að tækni hjá félaginu
og því meðal annars skjánum.
Við komum að allri tækninni til
að koma að öllu því sem til þarf á
þennan skjá. Það er okkar að búa
til efni sem birtist á skjánum, sem
er þrettán metrar á hæð og nær yfir
allan völlinn. Það var mikil spenna
daginn sem hann fór á loft. Ég hef
oft verið spurður hvernig hægt sé að
byggja mannvirki eins og þetta sem
á sér engin fordæmi og setja upp skjá
eins og þennan og ég sagði að þetta
væri svolítið eins og að hengja fjöl-
býlishús á þakið á öðru húsi,“ segir
Skarphéðinn léttur og heldur áfram:
„Það eru margir dagar af skipu-
lagsvinnu að baki, við að skoða
teikningar, vinna í burðarvirkinu
og gæta þess að vera of boðslega
nákvæmir. Það eru 80 milljónir
LED-lampa í skjánum í skápum sem
eru hengdir á stálið. Þegar þessu var
lyft mátti ekkert togast til eða fara
úrskeiðis. Það var stærsti hausverk-
urinn fyrir fram en þetta eru miklir
fagmenn sem unnu í þessu.“
Skarphéðinn fékk svo þann heið-
ur að kveikja á skjánum.
„Við vorum búnir að undirbúa
þetta vel í langan tíma. Þegar hann
var kominn upp var undir mínum
mönnum komið að læra hvernig
hægt væri að nýta þetta. Þetta er
auglýsingapláss en á sama tíma
skjár til að koma upplýsingum um
viðburði, stöðu annarra leikja í
deildinni og vekja upp stemmingu.
Það er alltaf flötur á skjánum í augn-
hæð, sama hvort þú situr uppi í efri
sætunum, neðstu sætunum eða
einum af 260 svítunum á vellinum.
Það þarft hvorki að horfa til hliðar
né upp til að sjá skjáinn eins og
þekkist víða því hvert einasta sæti
hefur óhindrað útsýni á skjáinn.
Þessir skjáir skipta afar miklu í upp-
lifun aðdáenda á vellinum. Við erum
alltaf að keppast við sjónvarpsstöðv-
arnar um áhorfendur og viljum því
að það sé upplifun að koma á völl-
inn. Skjárinn er hluti af því.“
Fyrir vikið er búið að setja upp
sjónvarpsstöð inni á vellinum til að
framleiða efni.
„Það var eitt að setja upp slíkan
skjá, en því fylgdi að við þurftum
að byggja útsendingarstúdíó af
sömu stærðargráðu og stærstu sjón-
varpsstöðvarnar nota á vellinum, til
að framleiða efni fyrir skjáinn. Við
erum með sömu tækni og CNN,
ESPN og erum í raun bara með sjón-
varpsstöð innanhúss,“ segir Skarp-
héðinn og nefnir dæmi.
„Við gerðum heiðursmyndband
fyrir Eddie van Halen þegar hann
lést á dögunum. Eddie var fæddur og
uppalinn hérna í Los Angeles og til
að heiðra minningu hans spiluðum
við myndbandið á skjánum með
tónlistinni hans undir og deildum
því á samskiptamiðlunum okkar.“
Engir áhorfendur komnir
Þrátt f y rir áhrif heimsfarald-
ursins var völlurinn tilbúinn á
réttum tíma fyrr á þessu ári. Það
er hins vegar bið eftir því að fyrstu
áhorfendurnir fái að mæta á leik-
ina, enda áhorfendabann vegna
COVID-19 í Kaliforníu.
„Þetta var of boðslega súrrealísk
tilfinning í fyrsta leiknum. Okkur
tókst að klára völlinn í tæka tíð
þrátt fyrir áhrif kórónaveirunnar.
Það voru margir sem unnu í fjar-
vinnu að heiman, en samt tókst
okkur að halda skipulagi og stand-
ast áætlanir með þeim sem unnu
hér. Að skila þessu af sér undir
þessum skilyrðum var mikið afrek.
Þegar verður litið til baka mun
maður vera stoltur af því, en þá var
líka mjög súrrealískt að það var
enginn á opnunarleiknum. Þetta er
eitthvað sem við ráðum ekki við, en
það er skrýtið að vita ekki hvenær
áhorfendur fá að koma á völlinn.“
Völlu r inn verðu r ný t t u r á
Ólympíu leikunum 2028 og hýsir
Super Bowl eftir tæpa átján mán-
uði. Þá er búið að úthluta vellinum
úrslitaleik háskólaruðningsins árið
2023.
„Völlurinn er byg gður f y rir
áhorfendur og auðvitað er fjarvera
þeirra mikil vonbrigði en á sama
tíma vitum við að það kemur að
því að þeir fái að mæta á ný. Von-
andi verður það á þessu tímabili en
ég er ekki viss, það er ekki í okkar
höndum. Við erum því að undir-
búa fyrsta leikinn hérna með aðdá-
endum á sama tíma og við erum
byrjaðir að undirbúa Super Bowl
sem er á dagskrá í ársbyrjun 2022.
Það eru 27 ár síðan Super Bowl fór
síðast fram í Los Angeles, en þessi
völlur er gerður fyrir viðburði eins
og Super Bowl.“
Stutta stund tekur að breyta
vellinum í tónleikastað og geta þá
rúmlega áttatíu þúsund manns
mætt á tónleika. Aðspurður segist
Skarphéðinn sjá fram á að þar verði
einn besti tónleikastaður Banda-
ríkjanna á næstu árum.
„Hljómker f ið á vellinum er
magnað. Það eru 270 hátalarar í
skjánum sem beinast inn í stúk-
urnar og þú færð það því beint í
æð. Þegar það kemur svið í miðj-
una er hægt að taka við 82 þúsund
manns. Að mörgu leyti erum við
jafn spenntir fyrir tónleikahaldi
og íþróttunum.“
Rams hefur unnið báða heimaleikina til þessa á nýjum slóðum. MYND/GETTY
Völlurinn var grafinn þrjátíu metra niður í jörðina og skiptist á átta hæðir, sem veita gott útsýni, sama hversu nálægt vellinum sætið er. MYND/GETTY
ÞAÐ ERU 80 MILLJÓNIR
LAMPA Í SKÁPUM SEM ERU
HENGDIR Á STÁLIÐ OG
MYNDA SKJÁINN.
1 7 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð