Fréttablaðið - 17.10.2020, Qupperneq 30
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Sólning er rótgróið fyrirtækið með áratuga reynslu af öllu sem við kemur dekkjum og
vinnu tengdri þeim. Þar starfa
reyndir fagmenn sem leggja
áherslu á hraða og góða þjónustu.
Nýverið hóf Sólning að bjóða
viðskiptavinum sínum að fara í
rafræna röð, svo þeir þurfi ekki að
bíða á verkstæðinu eftir að röðin
komi að þeim.
„Við erum rótgróið fyrirtæki
með glás af reynslumiklum starfs
mönnum og leggjum mikið upp úr
vönduðum vinnubrögðum, en líka
hraða. Við bjóðum upp á sérlega
mikinn hraða í dekkjaskiptum,
sem þýðir að við getum afgreitt
mjög marga bíla á dag og það gerir
biðina styttri fyrir viðskiptavini
okkar. Tíminn er dýrmætur og fólk
hefur enn nóg að gera þrátt fyrir
COVID,“ segir Aron Elfar Jónsson,
framkvæmdastjóri Sólningar í
Kópavogi. „Við leggjum líka rosa
lega mikið upp úr því að veita góða
og persónulega þjónustu, enda
erum við alltaf að sjá sama fólkið
koma til okkar.
Við getum tekið að okkur öll
verkefni sem tengjast dekkjum
og erum aðallega í þeim, en þess
á milli sinnum við líka bremsu
viðgerðum og öðrum minni
viðgerðum og sjáum líka um
allt sem við kemur hjólabúnaði,
svo sem dempara, spindilkúlur,
spyrnur og fleira,“ segir Aron. „Við
erum líka með smurstöðvar og
hjólastillingar á öllum verkstæð
unum okkar.
Að sjálfsögðu fylgjum við öllum
sóttvarnareglum. Við sprittum
alla snertifleti reglulega og allir
sem eru í einhverri nálægð eru
með grímu,“ segir Aron. „Ef við
skiptavinir vilja frekar geta þeir
beðið í bílnum á meðan skipt er
um dekk og við höfum sett upp
gler fyrir framan starfsmenn í
afgreiðslunni, sem er stór, sér
staklega á verkstæðinu okkar hér
í Kópavogi, svo það er auðvelt að
virða nálægðartakmörk.“
Rafræn röð og dekkjahótel
„Við leggjum upp með að hægt sé
að sleppa við tímapantanir, því
að flestir kúnnar vilja komast
að samdægurs. Þú mætir bara á
staðinn og hérna á stærsta verk
stæðinu okkar í Kópavogi erum
við með sérstakt númerakerfi sem
er varpað inn á heimasíðuna okkar
þannig að fólk geti verið í rafrænni
röð,“ segir Aron. „Þannig að fólk
getur komið og tekið númer og
svo bara farið að sinna erindum
og fylgst með stöðunni í snjall
símanum í stað þess að bíða hérna
á staðnum. Þetta er náttúrulega
fyrst og fremst þægilegt fyrir við
skiptavini en minnkar líka smit
hættu. Á hinum verkstæðunum
erum við svo bara með klassíska
biðröð.
Við erum með dekkjahótel
og geymum dekkin í upphituðu
húsnæði við bestu aðstæður. Það
sparar kúnnum geymslupláss að
geyma dekkin hjá okkur og það
sparar líka fyrirhöfn við að með
höndla dekkin, sem geta verið
óhrein og valdið skemmdum á
innréttingum í bílum,“ segir Aron.
„Fólk sem nýtir þessa þjónustu
getur fengið dekkin afgreidd sam
dægurs þar sem þau eru alltaf til
reiðu hér hjá okkur og það þarf
ekkert að hringja á undan sér. Þú
færð bara miða með númerinu
á þínum dekkjum og fullkomið
skráningarkerfi heldur utan um
dekkin á milli dekkjaskipta.
Við bjóðum líka upp á mikið
úrval af mjög góðum dekkjum á
mjög hagstæðum verðum og þau
henta nánast öll mjög vel fyrir
íslenskar aðstæður,“ segir Aron.
„Við bjóðum upp á dekk frá Han
kook, Goodyear, Nexen og Sava
Að sjálfsögðu passa starfsmenn Sólningar vel upp á allar sóttvarnir og ná-
lægðartakmörk og ráðstafanir hafa verið gerðar til að minnka smithættu.
Viðskiptavinir geta til dæmis beðið í bílnum á meðan skipt er um dekk.
Sólning býður
viðskiptavinum
sínum í Kópa-
vogi að fara í
rafræna röð,
þannig að þeir
geti fylgst með
í símanum og
sinnt öðrum
erindum þar til
röðin kemur að
þeim. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/VALLI
Sólning býður upp á sérlega mikinn hraða í dekkjaskiptum, sem þýðir að þar er hægt að afgreiða mjög marga bíla á
dag og það gerir biðina styttri fyrir viðskiptavini. Þar eru ekki tímapantanir, því flestir vilja komast að samdægurs.
Sólning býður upp á mikið úrval
af góðum dekkjum sem henta
fyrir íslenskar aðstæður á mjög
hagstæðu verði. Hægt er að skoða
úrvalið á heimasíðunni og þar er
líka verðskrá yfir vörur og þjónustu.
Framhald af forsíðu ➛
sem eru í flottari kantinum og við
erum líka með ódýrari valkosti, en
það er oft hægt að gera góð kaup
í ódýrari dekkjum. Í þeim flokki
bjóðum við meðal annars upp á
dekk frá framleiðendum eins og
Roadstone, Viatti og Landsail.
Það er hægt að skoða allt úrvalið
okkar á heimasíðunni okkar,
solning.is og þar er líka verðskrá
yfir bæði vörur og þjónustu og
upplýsingar um allt sem er í
boði,“ segir Aron. „Það er líka
sniðug reiknivél þar fyrir dekkja
stærðir svo það er hægt að bera
saman hæð og breidd á dekkjum
og athuga hvort þau passi undir
bílinn. Þar eru líka staðlar fyrir
hraða og burðarþol.“
Hjólastilling og umfelgun
„Við sinnum hjólastillingum og
rétt hjólastilling skiptir sköpum
til að auðvelda ökumönnum
stjórn á ökutækinu og hámarka
jafnvægi bílsins við hemlun. Hún
eykur líka líftíma hjólbarðanna,
dregur úr eldsneytiseyðslu og
gerir aksturinn þægilegri,“ segir
Aron. „Hún borgar sig því upp á
afar skömmum tíma í dekkjasliti
og eldsneytisnotkun bílsins.
Fjöðrunarbúnaður er f lókinn
og krefst þess að jafnvægi sé í
stillingu allra fjögurra hjólanna.
Sumir telja nægilegt að stilla bara
framhjólin af, en það er óhætt að
mæla með því að fara með bílinn
á verkstæði þar sem öll fjögur
hjólin eru mæld í tölvu og þau
stillt til að hámarka af köst fjöðr
unarkerfisins,“ útskýrir Aron.
„Þess verður þó að geta að ekki er
hægt að stilla afturhjól á öllum
bílum.
Að sjálfsögðu er líka hægt að
fá klassíska umfelgun hér frá
vönum mönnum og þá jafnvægis
stillum við bílana um leið, en
jafnvægisstilling er ekki það sama
og hjólastilling,“ segir Aron. „Þar
sem það er hart í ári hjá landanum
um þessar mundir höfum við líka
ákveðið að hækka ekki verðið
á umfelgun eins og f lestir aðrir
gerðu í haust.“
Sólning er með verkstæði á
Smiðjuvegi 34 í Kópavogi, í Skútu-
vogi 2 í Reykjavík, Hjallahrauni 4
í Hafnarfirði og á Fitjabraut 12 í
Njarðvík. Hægt er að hafa sam-
band við Sólningu í síma 544 5000,
í tölvupósti á solning@solning.is
og á Facebook-síðunni, facebook.
com/solning.
Fólk getur komið
og tekið númer og
svo bara farið að sinna
erindum og fylgst með
stöðunni í snjallsíma-
num í stað þess að bíða
hérna á staðnum. Þetta
er náttúrulega fyrst og
fremst þægilegt fyrir
viðskiptavini en minnk-
ar líka smithættu.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R