Fréttablaðið - 17.10.2020, Page 40
Barnaverndarstofa
Sérfræðingur á ráðgjafar- og fræðslusvið
Barnaverndarstofa hefur í aldarfjórðung verið leiðandi í þjónustu við börn, þróun vandaðra vinnubragða og innleiðingu gagn-
reyndra aðferða. Stofnunin leitar nú að öflugum sérfræðingi á ráðgjafar- og fræðslusvið. Ráðgjafar- og fræðslusvið stýrir og
skipuleggur ráðgjöf og fræðslu fyrir barnaverndarnefndir og starfsmenn þeirra, veitir samstarfsaðilum og almenningi leiðbein-
ingar um barnavernd og stýrir fræðslu, þróun og innleiðingu aðferða við vinnslu barnaverndarmála. Sérfræðingurinn heyrir undir
sviðsstjóra ráðgjafar- og fræðslusviðs Barnaverndarstofu. Um fullt starf á starfsstöð í Borgartúni 21, 105 Reykjavík er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Ráðgjöf og samskipti vegna barnaverndarmála.
• Innleiðing gagnreyndra aðferða á sviði barnaverndar.
• Þróun og framkvæmd fræðslu fyrir starfsfólk barnaverndarnefnda.
• Skipulag málþinga og ráðstefna á vegum Barnaverndarstofu.
• Umsjón með leyfisveitingum vegna heimila og annarra úrræða á ábyrgð sveitarfélaga.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Krafa um meistarapróf eða sambærilegt próf af heilbrigðis- eða félagssviði.
• Krafa um þekkingu á starfi barnaverndar, reynsla af barnaverndarstarfi æskileg.
• Krafa um þekkingu og áhuga á gagnreyndum aðferðum í þjónustu við börn og fjölskyldur.
• Krafa um góða íslenskukunnáttu í rituðu og töluðu máli.
• Krafa um góða enskukunnáttu í rituðu og töluðu máli og æskileg kunnátta í einu Norðurlandamáli.
Persónulegir eiginleikar:
• Mikilvægt er að búa yfir hæfni til að vinna sjálfstætt, skipulega og lausnamiðað.
• Mikilvægt að búa yfir góðri samstarfshæfni, sveigjanleika og jákvæðu viðhorfi.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barnaverndarstofu á hæfni
og eiginleikum umsækjenda. Vakin er athygli á að Barnaverndarstofa aflar sjálf fullra sakavottorða úr Sakaskrá ríkisins áður en
endanlega er gengið frá ráðningu í starf. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra
og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Barnaverndarstofa hvetur alla til að sækja um, óháð kyni. Tekið er mið af jafnréttisáætlun
Barnaverndarstofu við ráðningar á stofuna.
Umsóknarfrestur er til og með 2. nóvember nk. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Páli Ólafssyni, sviðsstjóra ráðgjafar- og
fræðslusviðs Barnaverndarstofu, í síma 530 2600 eða pallo@bvs.is. Umsóknir skulu berast til Barnaverndarstofu, Borgartúni 21,
105 Reykjavík eða á netfangið bvs@bvs.is. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem gerðar eru. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Allar umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
hagvangur.is
Erum við að leita að þér?