Fréttablaðið - 17.10.2020, Page 41

Fréttablaðið - 17.10.2020, Page 41
Þann 1. janúar 2020 sameinuðust embætti tollstjóra og embætti ríkisskattstjóra í eina öfluga og leiðandi upplýsinga- og þjónustustofnun á sviði skatta- og tollamála sem ber heitið Skatturinn. Skatturinn leitar nú að öflugum liðsauka til starfa á starfsstöð Skattsins á Laugavegi 166 og til að slást í hóp frábærra starfsmanna sem þar sinna fjölbreyttum störfum á hinum ýmsu sviðum. Viltu verða hluti af öflugum hópi Skattsins? Sérfræðingar í skatteftirliti á eftirlitssviði Helstu verkefni felast í endurákvörðun opinberra gjalda hjá lögaðilum og einstaklingum þegar til skoðunar hafa verið möguleg skattundanskot og vantaldir skattstofnar. Starfshlutfall er 100%. Menntunar- og hæfnikröfur • Viðeigandi háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði viðskiptafræði, lögfræði eða hagfræði (lágmarksmenntun er bakkalár gráða en meistaragráða er æskileg). • Þekking á reikningsskilum, málsmeðferðarreglum og almennri skattframkvæmd æskileg. • Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli er skilyrði, önnur tungumálakunnátta er kostur. • Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð. • Frumkvæði, og metnaður. • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum. • Jákvæðni og rík þjónustulund. • Geta til að vinna undir álagi. • Góð almenn tölvukunnátta. • Hreint sakavottorð. Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefán Skjaldarson í síma 442-1000 eða í tölvupósti á stefan.skjaldarson@skatturinn.is Sérfræðingar á álagningarsviði Um fjölbreytt verkefni er að ræða er tengjast m.a. upplýsingagjöf um bæði virðisaukaskatt og tekjuskatt lögaðila, ásamt öðrum sköttum og gjöldum, yfirferð skattframtala og skýrslna, afgreiðslu erinda, endurákvörðun og endurskoðunarverkefnum, auk úrvinnslu ýmissa gagna sem tengjast starfsemi Skattsins. Starfshlutfall er 100%. Menntunar- og hæfnikröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi (lágmarksmenntun er bakkalár gráða). • Þekking á reikningsskilum, málsmeðferðarreglum og almennri skattframkvæmd æskileg. • Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli er skilyrði, önnur tungumálakunnátta er kostur. • Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð. • Frumkvæði og metnaður. • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum. • Jákvæðni og rík þjónustulund. • Geta til að vinna undir álagi. • Góð almenn tölvukunnátta. • Hreint sakavottorð. Nánari upplýsingar um starfið veitir Elín Alma Arthursdóttir í síma 442-1000 eða í tölvupósti á elin.arthursdottir@skatturinn.is Umsóknir skulu fylltar út á vefsíðu Skattsins, skatturinn.is eða á vefsíðu Starfatorgs, starfatorg.is. Ferilskrá sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir þarf að fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi. Umsækjendum um störf hjá Skattinum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Umsóknarfrestur er til og með 27. október 2020 og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningar. 442 1000 Upplýsingaver opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00 Óska eftir hárgreiðslumeistara eða sveini í hlutastarf á Hárgreiðslu- stofu á Hjúkrunarheimili. Upplýsingar í síma 824 4421 eða lauf25@internet.is Pípulagninga- og húsasmíðameistarar Hraunhús leitar að reynsluboltum 53 ára og eldri sem kunna til verka og til eftirlits. Sjá nánar á Job Fullt starf / hlutastarf Iðnaðarmenn HEGAS ehf. óskar eftir að ráða lagerstjóra: • Lagerstjórn. • Umsjón og tiltekt pantana. • Litablöndun á lakki. • Vörumóttaka. • Losun gáma. • Lyftarapróf. • Jákvæðni og stundvísi. • Þekking á innréttingum og húsgögnum er kostur. Við leitum að hressum, samviskusömum og traustum starfsmanni í áhugavert og krefjandi framtíðarstarf hjá framsæknu og traustu fyrirtæki. www.hegas.is Íslenskukunnátta nauðsynleg. Umsækjendur vinsamlegast sendið umsóknir fyrir 30. október 2020 á netfang: hegas@hegas.is Ánægðir viðskiptavinir eru okkar besta auglýsing Sérfræðingar í ráðningum lind@fastradningar.is mjoll@fastradningar.is FAST Ráðningar www.fastradningar.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.