Fréttablaðið - 17.10.2020, Qupperneq 41
Þann 1. janúar 2020 sameinuðust embætti tollstjóra og embætti ríkisskattstjóra í eina
öfluga og leiðandi upplýsinga- og þjónustustofnun á sviði skatta- og tollamála sem ber
heitið Skatturinn.
Skatturinn leitar nú að öflugum liðsauka til starfa á starfsstöð Skattsins á Laugavegi 166
og til að slást í hóp frábærra starfsmanna sem þar sinna fjölbreyttum störfum á hinum
ýmsu sviðum.
Viltu verða hluti af
öflugum hópi Skattsins?
Sérfræðingar í skatteftirliti á eftirlitssviði
Helstu verkefni felast í endurákvörðun opinberra gjalda hjá lögaðilum og einstaklingum
þegar til skoðunar hafa verið möguleg skattundanskot og vantaldir skattstofnar.
Starfshlutfall er 100%.
Menntunar- og hæfnikröfur
• Viðeigandi háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði viðskiptafræði, lögfræði
eða hagfræði (lágmarksmenntun er bakkalár gráða en meistaragráða er æskileg).
• Þekking á reikningsskilum, málsmeðferðarreglum og almennri skattframkvæmd
æskileg.
• Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli er skilyrði, önnur tungumálakunnátta
er kostur.
• Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
• Frumkvæði, og metnaður.
• Lipurð og færni í mannlegum samskiptum.
• Jákvæðni og rík þjónustulund.
• Geta til að vinna undir álagi.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefán Skjaldarson í síma 442-1000 eða
í tölvupósti á stefan.skjaldarson@skatturinn.is
Sérfræðingar á álagningarsviði
Um fjölbreytt verkefni er að ræða er tengjast m.a. upplýsingagjöf um bæði virðisaukaskatt
og tekjuskatt lögaðila, ásamt öðrum sköttum og gjöldum, yfirferð skattframtala og skýrslna,
afgreiðslu erinda, endurákvörðun og endurskoðunarverkefnum, auk úrvinnslu ýmissa gagna
sem tengjast starfsemi Skattsins. Starfshlutfall er 100%.
Menntunar- og hæfnikröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi (lágmarksmenntun er bakkalár gráða).
• Þekking á reikningsskilum, málsmeðferðarreglum og almennri
skattframkvæmd æskileg.
• Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli er skilyrði,
önnur tungumálakunnátta er kostur.
• Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
• Frumkvæði og metnaður.
• Lipurð og færni í mannlegum samskiptum.
• Jákvæðni og rík þjónustulund.
• Geta til að vinna undir álagi.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Elín Alma Arthursdóttir í síma 442-1000 eða
í tölvupósti á elin.arthursdottir@skatturinn.is
Umsóknir skulu fylltar út á vefsíðu Skattsins, skatturinn.is eða á vefsíðu Starfatorgs,
starfatorg.is. Ferilskrá sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf,
umsagnaraðila og annað er máli skiptir þarf að fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi.
Umsækjendum um störf hjá Skattinum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu
sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og
viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsóknarfrestur er til og með 27. október 2020 og verður öllum umsóknum svarað þegar
ákvörðun hefur verið tekin um ráðningar.
442 1000
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
Óska eftir hárgreiðslumeistara eða
sveini í hlutastarf á Hárgreiðslu-
stofu á Hjúkrunarheimili.
Upplýsingar í síma 824 4421 eða lauf25@internet.is
Pípulagninga- og
húsasmíðameistarar
Hraunhús leitar að reynsluboltum 53 ára
og eldri sem kunna til verka og til eftirlits.
Sjá nánar á Job
Fullt starf /
hlutastarf Iðnaðarmenn
HEGAS ehf. óskar eftir að ráða
lagerstjóra:
• Lagerstjórn.
• Umsjón og tiltekt pantana.
• Litablöndun á lakki.
• Vörumóttaka.
• Losun gáma.
• Lyftarapróf.
• Jákvæðni og stundvísi.
• Þekking á innréttingum og húsgögnum er kostur.
Við leitum að hressum, samviskusömum og traustum
starfsmanni í áhugavert og krefjandi framtíðarstarf hjá
framsæknu og traustu fyrirtæki. www.hegas.is
Íslenskukunnátta nauðsynleg.
Umsækjendur vinsamlegast sendið umsóknir fyrir
30. október 2020 á netfang: hegas@hegas.is
Ánægðir viðskiptavinir
eru okkar besta auglýsing
Sérfræðingar í
ráðningum
lind@fastradningar.is
mjoll@fastradningar.is
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is