Fréttablaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 75
Bölvun múmíunnar – seinni hluti – er bók eftir Ármann Jakobsson; framhald af bók
með sama heiti sem kom út í fyrra.
„Í raun og veru er þetta ein saga
en sett í tvær bækur, bæði vegna
þess að það stefndi í að hún yrði
löng en svo eru eðlileg skil í miðj-
unni,“ segir Ármann. „Ég held að
helsta fyrirmynd mín hafi verið
Ævintýri Tinna eftir Hergé. Þrjár
Tinnasögur eru í tveimur hlutum
og gerist sá fyrri í evrópskri sið-
menningu en sá seinni á fjarlægum
slóðum. Mér fannst tilvalið að stela
þessu góða formi frá Hergé.“
En af hverju vildi hann skrifa
múmíusögu? „Bækurnar urðu
raunar til þannig að mig dreymdi
dularfull atvik á þjóðminjasafni
og þegar ég vaknaði fannst mér
hálfgerð skylda að reyna að nýta
þennan litríka draum í sögu. Það
var fyrir mörgum árum og í kjöl-
farið fór ég að skrifa þessa múmíu-
sögu, og það var nátengt
gömlum áhuga mínum
á Tútankamon faraó
og sögnum um bölvun
sem hefði fylgt múmíu
hans þegar hún fannst
og var f lutt til Evrópu.
Múmíur eru áhugaverðar þar sem
þær eru í senn fulltrúar dauða og
framhaldslífs og ég hef komist að
því eftir að bókin kom út að mörg-
um börnum finnst þær heillandi.“
Spurður um söguþráð bókanna
segir Ármann: „Fyrri bókin snerist
um dularfullan söfnuð kenndan við
goðveru að nafni Qwacha sem fáar
heimildir eru til um. Í lokin tókst
þeim að ræna múmíunni og í þess-
ari bók fara söguhetjurnar í sjóferð
og finna múmíuna en ekki tekst
betur til en að þeim er sjálfum rænt.
Drjúgan hluta bókarinnar eru þau
innilokuð og komast ekki neitt – að
því leyti passar bókin vel fyrir árið
2020 þar sem drjúgur
hluti mannkynsins var
í einangrun heima.“
Ármann segist ekki
hafa velt því mikið fyrir
sér þegar hann skrifaði
bækurnar hvaða aldurs-
hópi þær hentuðu. „Þær
virðast höfða mest til
12-15 ára. Ég held að þær
geti sem best höfðað til
fullorðinna líka og vona
að þeir lesi með börn-
unum.“
Vitanlega er að finna
óhugnað í bókunum.
„Seinni bókin er öllu óhugnan-
legri en sú fyrri, sem mér skilst þó
að mörgum börnum finnist ansi
skelfileg. Ég held að ég sé á svipuð-
um slóðum þar og ýmsir höfundar
sem ég las sjálfur í bernsku og gangi
ekkert lengra en þeir. Lesendum
sjálfum er falið að botna óhugnað-
inn. Allur ótti er í manns kollinum,“
segir Ármann.
Litríkur draumur varð að
spennandi múmíusögum
Ármann Jakobsson sendir frá sér seinni hlutann af Bölvun
múmíunnar. Ævintýri Tinna voru helsta fyrirmyndin.
Múmíur eru áhugaverðar, segir Ármann Jakobsson. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
ÉG HELD AÐ ÉG SÉ Á
SVIPUÐUM SLÓÐUM
ÞAR OG ÝMSIR HÖFUNDAR SEM
ÉG LAS SJÁLFUR Í BERNSKU OG
GANGI EKKERT LENGRA EN
ÞEIR.
Miðstöð íslensk ra bók-mennt a hef u r opnað höfundasíðu en þar má
finna upplýsingar um þá íslenska
höfunda sem eiga bækur í erlendum
þýðingum og lista yfir bækurnar. Á
síðunni er hægt að leita eftir nafni
höfundar, bókmenntagrein og/eða
tungumáli sem bækurnar hafa verið
þýddar á.
Markmiðið með síðunni er að
kynna íslenska höfunda og jafn-
f ramt að auðvelda erlendum
útgefendum, umboðsmönnum,
viðburða- og hátíðahöldurum og
f leirum, leitina að íslenskum höf-
undum og verkum.
Höfundasíða
komin í loftið
Snillingar á ritvellinum á góðri
stund. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
50% afsláttur af
öllum Ingrid vörum í
eftirtöldum
verslunum
Krónunnar:
Flatahrauni, Lindum,
Bíldshöfða og Selfossi.
Gildir út október
Helly Hansen
Fremont dömu og herraskór
Nú kr. 19.990.-
Kr. 26.990.-
aff slátt
af skóm
Styrktu
bleiku
slaufuna
LÍFIÐ ER Á
FRETTABLADID.IS
Líð á frettabladid.is allar um
fólk, menningu, tísku, heilsu
og margt eira.
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 43L A U G A R D A G U R 1 7 . O K T Ó B E R 2 0 2 0