Fréttablaðið - 29.10.2020, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 29.10.2020, Blaðsíða 19
Ísland er í hópi þeirra ríkja í Evrópu, sem Brexit hefur mest neikvæð áhrif á. Þau koma víða fram og styrkja hugmyndir um fulla aðild Íslands að Evrópusam- bandinu. Bretar og Evrópusambandið gera nú úrslitatilraun til að semja. Eigið mat breskra stjórnvalda bendir til þess að fari landið samningslaust út gæti hagvöxtur á næstu árum orðið allt að átta pró- sent minni en með aðild. Með hag- stæðustu fríverslunarsamningum minnkuðu þessi neikvæðu áhrif niður í fimm prósent. Þurfum að vinna upp meira af tapinu Íslensk stjórnvöld hafa ekki birt mat af þessu tagi. Þó að neikvæð áhrif á Ísland verði ekki til jafns við þessar tölur verða þau umtals- verð. Það þýðir að fríverslunar- samningur Breta við EFTA-ríkin getur aðeins deyft neikvæð áhrif úrsagnarinnar en ekki eytt þeim. Með fullri aðild Íslands að Evr- ópusambandinu yrði aftur á móti unnt að vinna upp meira af tapinu. Það lýsir ekki hyggindum að loka augunum fyrir þeim möguleika nú þegar brýnt er að íslenskt atvinnu- líf hlaupi hraðar. Áhrif fiskveiðideilu Breta og ESB Einstaka andstæðingar fullrar aðildar að Evrópusambandinu halda því fram að deilur þess við Breta um fiskveiðar eftir Brexit sýni að Ísland yrði að fórna fisk- veiðiréttindum ef það lokaskref yrði stigið. Þessi staðhæfing er annaðhvort útúrsnúningur eða misskilningur. Deila Breta og Evrópusam- bandsins snýst fyrst og fremst um skiptingu á sameiginlegum stofnum. Samkvæmt hafréttarsátt- málanum ber þeim að semja um skiptingu á þeim. Evrópusambandið vill miða við veiðireynslu eins og reglur þess gera ráð fyrir. En Bretar vilja aftur á móti semja miðað við dreifingu einstakra fiskistofna. Röksemdir beggja eiga sér stoð í hafréttarsátt- málanum. Á Íslandsmiðum eru ekki sam- eiginlegir stofnar með Evrópu- sambandinu. Engin Evrópusam- bandslönd eiga veiðireynslu hér síðastliðin þrjátíu ár. Aðildarríkin geta því hvorki samkvæmt haf- réttarsáttmálanum né reglum sam- bandsins gert kröfur um veiðar. Með fullri aðild kæmu því engin evrópsk skip til veiða á Íslands- miðum. Enga sérsamninga eða undantekningar þyrfti til að tryggja það. Ísland og ESB sömu megin gagnvart Bretum Um áramótin fær breska stjórnin það hlutverk, í stað Evrópusam- bandsins, að semja fyrir skoskar útgerðir um makrílveiðar. Fram til þessa hafa norskar og skoskar útgerðir staðið fastast gegn aðild Íslands að samningum um makríl. Íslenskar útgerðir hafa öðlast mikla veiðireynslu í makríl. Hún mun vega þungt í samningum við nýjan viðsemjanda. Evrópusam- bandið notar einnig veiðireynslu- rökin í viðræðum við Breta vegna danskra makrílútgerða. Ef Ísland ætti fulla aðild að Evr- ópusambandinu myndi það sækja rétt íslenskra útgerða til makríl- veiða gagnvart Bretum og Norð- Þorsteinn Pálsson AF KÖGUNARHÓLI Brexitáhrifin á Íslandi mönnum af fullum þunga allra aðildarríkjanna. Það myndi fremur styrkja okkur en veikja. Full aðild betri en fríverslunarsamningar Í bráðabirgða fríverslunarsamningi við Breta vegna Brexit er gert ráð fyrir svipuðum viðskiptum með landbúnaðarafurðir og áður. Með óbreyttum samningi við Evr- ópusambandið er þetta nokkur rýmkun og allt bendir til að lengra verði gengið í lokasamningi. Þetta sýnir að einangrun er ekki í boði. En bændur hafa lýst áhyggjum. Þær eru skiljanlegar. Breytingar af þessu tagi kalla óhjá- kvæmilega á nýja hugsun í land- búnaðar- og byggðamálum af hálfu stjórnvalda. En á henni bólar ekki. Frjáls viðskipti eru gagnkvæm. Þau opna tækifæri ef rétt er á málum haldið. Kannski eru það þessir útflutningsmöguleikar, sem ríkisstjórnin átti við þegar hún talaði um stórkostleg tækifæri, sem fylgdu Brexit. En trúlega yrði full aðild að Evrópusambandinu hagstæðari fyrir bændur. Til að mynda gætu hugsanlega opnast þar lambakjöts- markaðir, sem breskir bændur óttast nú að séu þeim tapaðir, ef ekki semst. Jafnframt er stuðningur sam- bandsins við bændur mjög öflugur. Enginn slíkur ytri stuðningur fylgir samningum um fríverslun. Alhliða byggðastefna Evrópusambandsins hefur einnig reynst mjög áhrifarík. Stuðningskerfi af því tagi finnast hins vegar ekki í fríverslunar- samningum. Jara er stílhreinn og þægilegur sófi. Jara er nútímalegur sófi í skandinavískum stíl. Sessurnar eru notalegar og áklæðið er slitsterkt og mjúkt viðkomu. Fætur sófans eru stílhrein gæðasmíð úr eik sem tóna vel við hvaða umhverfi sem er. Jara hentar vel í löng og innileg samtöl með rauðvíni og ostum — en virkar líka í bíókvöldið. Penninn kynnir Jöru Með dökkgráu tauklæði Listaverð 214.900 kr. Tilboðsverð 179.000 kr. Með ljósgráu tauklæði Listaverð 195.000 kr. Tilboðsverð 159.000 kr. Með svörtu leðri Listaverð 359.000 kr. Tilboðsverð 299.000 kr. 212 cm Skeifunni 10, Reykjavík // Hafnarstræti 91–93, Akureyri // Hafnarstræti 2, Ísafirði // S: 540 2330 // www.penninn.is Hekla er hönnuð og framleidd á Íslandi og er nefnd eftir drottningu íslenskra eldfjalla og gefur stórbrotinni nöfnu sinni ekkert eftir. Sófinn er þægilegur og aðlaðandi og passar fullkomlega í rýmið þitt — möguleikarnir eru óendanlegir. 10 ára ábyrgð er á grind sófans. Beinir sófar – verð frá 282.000 kr. Tungusófar – verð frá 319.000 kr. Hornsófar – verð frá 499.000 kr. Penninn kynnir til leiks Heklu Hekla er íslenskur sófi sem er smíðaður eftir þínum óskum. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19F I M M T U D A G U R 2 9 . O K T Ó B E R 2 0 2 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.