Fréttablaðið - 29.10.2020, Blaðsíða 2
MENNTUN Hljóðbókasafn Íslands
þjónar samkvæmt lögum ein-
göngu þeim sem ekki geta nýtt sér
prentað letur og þeir innflytjendur
sem vilja nýta sér safnið þurfa því
að skila inn umsóknareyðublaði
ásamt undirrituðu vottorði, um að
greining liggi fyrir, frá fagaðila, þar
sem kemur skýrt fram ástæða þess
að umsækjandi geti ekki nýtt sér
prentað letur.
Fréttablaðið fjallaði í gær um
metaðsókn í íslenskunám í haust,
en þeir sem eru ekki með greiningu
geta ekki nýtt sér bókasafnið, þó
mörgum finnst betra að hlusta á
íslensku en að lesa hana.
„Ekki er litið á erfiðleika með
tungumál sem prentleturshömlun
og því falla þeir sem eru að læra
íslensku ekki undir lögin,“ segir
Marín Guðrún Hrafnsdóttir, for-
stöðu maðu r H ljóðbók a s a f n s
Íslands.
Hún segir ástæðuna fyrir því að
vottorða sé krafist þá að þetta sé
sérstætt bókasafn og ætlað að gera
bækur aðgengilegar fyrir þá sem
ekki geta nýtt sér önnur almenn-
ingsbókasöfn. Safnið hét áður
Blindrabókasafn Íslands.
„Það er rétt að bókasöfn gegna
þeirri meginskyldu og lýðræðis-
hlutverki að greiða aðgang að upp-
lýsingum og til þess að blindir, sjón-
skertir og lesblindir geti haft slíkan
aðgang að bókum og upplýsingum
var Blindrabókasafnið sett á lagg-
irnar. Síðan var nafni stofnunarinn-
ar breytt í Hljóðbókasafn Íslands,“
segir hún.
Fram kom í kvöldfréttum Ríkis-
útvarpsins nýverið að nærri fjögur
þúsund Pólverjar væru á atvinnu-
leysisskrá á Íslandi. Var þá rætt
við pólska konu sem segist stöðugt
Ekki er litið á
erfiðleika með
tungumál sem prentleturs
hömlun og því falla þeir sem
eru að læra íslensku ekki
undir lögin.
Marín Guðrún
Hrafnsdóttir,
forstöðumaður
Hljóðbókasafns
Íslands
Veður
Austan 15-23 og rigning með
köflum í dag, talsverð um tíma á
Suðausturlandi og Austfjörðum.
Snýst í suðaustan 8-15 seinnipart-
inn, fyrst sunnanlands. Hiti 2 til 7
stig. SJÁ SÍÐU 26
Jólaljósin brátt tendruð
Starfsmenn Reykjavíkurborgar voru í óðaönn að hengja upp jólaskreytingar á Laugavegi þegar ljósmyndari Fréttablaðsins átti leið hjá í gær. Óhætt
er að fullyrða að birtan frá jólaljósunum verði kærkomin nú þegar skammdegið sækir á og óvissa vegna COVID-19 eykst. FRÉTTABLAÐIÐ /SIGTRYGGUR ARI
Þurfa greiningu til að
leigja sér hljóðbækur
Innflytjendur í íslenskunámi sem kjósa að hlusta á íslenskar bækur í staðinn
fyrir að lesa texta geta ekki nýtt sér Hljóðbókasafnið. Þörf er á greiningu frá
fagaðila um ástæða þess að umsækjandi geti ekki nýtt sér prentað letur.
Metaðsókn hefur verið í íslenskukennslu fyrir innflytjendur hjá Retor
fræðslu. Nemendur geta ekki nýtt sér Hljóðbókasafnið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SAMFÉLAG Svefnbyltingin – þver-
faglegt og alþjóðlegt rannsókna-
og þróunarverkefni sem leitt er af
Ernu Sif Arnardóttur, lektor við
Háskólann í Reykjavík, hefur fengið
vilyrði fyrir tveggja og hálfs millj-
arðs króna (15 milljóna evra) styrk
til fjögurra ára úr Horizon 2020
rammaáætlun Evrópusambands-
ins, fyrir rannsóknir og nýsköpun.
Um helmingur styrksins verður
nýttur til rannsókna hér á landi,
sem felast meðal annars í því að
byggja upp öruggan gagnagrunn
með niðurstöðum úr svefnmæl-
ingum á 30 þúsund einstaklingum
sem safnað verður hér á landi og
víðs vegar um Evrópu.
Erna segir í samtali við Frétta-
blaðið styrkinn gífurlegt tækifæri
og mikinn heiður fyrir sig sem
vísindamann. „Styrkur af þessari
stærðargráðu gerir okkur kleift
að gera raunverulega umbyltingu
á framkvæmd svefnrannsókna og
meðferð kæfisvefns í heiminum –
í takt við fjórðu iðnbyltinguna og
alla þá tækniþróun sem hefur orðið
á síðustu árum.“
Ari Kristinn Jónsson, rektor HR,
segir styrkinn staðfestingu á sterkri
stöðu HR og að mikið afrek felist í
því að styrkurinn hafi hlotist í
fyrsta sinn sem sótt var um hann,
samkeppnin um slíka styrki sé bæði
hörð og mikil. „Við erum afskaplega
stolt af þessum árangri.“ – bdj
Erna hlaut 2,5
milljarða styrk
Erna Sif Arnardóttir, lektor við HR.
Úr bókasafnslögum
n Bókasöfn eru þjónustu-
stofnanir sem starfa í þágu
almennings og eigenda sinna
og eru ekki rekin í hagnaðar-
skyni. Sameiginlegt markmið
bókasafna, sem undir lög þessi
falla, er að veita aðgang að
fjölbreyttu safnefni og upp-
lýsingum á mismunandi formi.
Þau skulu efla menningar- og
vísindastarfsemi, menntun,
símenntun, atvinnulíf, íslenska
tungu, ánægjulestur og upp-
lýsingalæsi.
n Hlutverk Hljóðbókasafns Ís-
lands er að sjá þeim sem ekki
geta fært sér venjulegt prentað
letur í nyt fyrir bókasafnsþjón-
ustu með miðlun á fjölbreyttu
safnefni, þar á meðal náms-
gögnum, í sem bestu samræmi
við óskir og þarfir notenda.
sækja um vinnu en það gangi erfið-
lega að sækja um þar sem hún tali
ekki reiprennandi íslensku. En hún
má ekki hlusta á Njálu, hún verður
að lesa hana – nema hún sé með
greiningu.
benediktboas@frettabladid.is
METAN Malbikstöðin og Fagverk
hafa undirritað viljayfirlýsingu
við Sorpu um kaup og sölu á allt
að milljón normalrúmmetrum af
hreinsuðu metangasi á ári. Það sam-
svarar tæplega helmingi af afkasta-
getu Gaju, gas- og jarðgerðarstöðvar
Sorpu.
Með yfirlýsingunni lýsa Malbik-
stöðin, Fagverk og Sorpa yfir ætlun
sinni til að starfa saman að því að á
komist bindandi samningur þeirra
á milli um viðskipti með metan um
mitt næsta ár. Helgi Þór Ingason,
framkvæmdastjóri Sorpu, segir að
töluverð eftirspurn sé eftir metan-
gasi frá Gaju. „Við erum stolt af því
og það er okkur heiður að styðja
við framleiðslu á því sem gæti orðið
grænasta malbik í heimi.“ – bþ
Viljayfirlýsing
um metansölu
Það samsvarar tæplega
helmingi af afkastagetu
gas og jarðgerðarstöðvar.
2 9 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð