Fréttablaðið - 29.10.2020, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 29.10.2020, Blaðsíða 4
TAKMARKAÐ MAGN BÍLA Í BOÐI UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 JEEP ® CHEROKEE Helsti staðalbúnaður Jeep® Cherokee Longitude Luxury: • 2.2 lítra 195 hestafla díselvél, 9 gíra sjálfskipting • Jeep Active Drive I Select Terrain með 4 drifstillingum, • Rafdrifin snertilaus opnun á afturhlera • Leðurinnrétting • 8,4” upplýsinga- og snertiskjár • Íslenskt leiðsögukerfi • Bakkmyndavél með bílastæðaaðstoð • Hágæða Alpine hljómflutningskerfi með bassaboxi • Apple & Android Car Play • Bluetooth til að streyma tónlist og síma ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF FRÁBÆRT VERÐ: 7.990.000 KR. ÖFLUG DÍSELVÉL - 9 GÍRA SJÁLFSKIPTING SPARNEYTINN - HLAÐINN LÚXUSBÚNAÐI COVID-19 „Það hefur verið mikil aukning í heimilisof beldisviðtölum síðustu mánuði, nánast hundrað prósenta aukning,“ segir Andrés Proppé Ragnarsson sálfræðingur. Hann rekur verkefnið Heimilisfrið þar sem fólki sem beitir heimil- isof beldi er veitt meðferð. Á fyrstu þremur mánuðum ársins voru veitt að jafnaði 62 viðtöl á mánuði hjá Heimilisfriði, en síðustu þrjá mán- uði hafa þau verið vel yfir hundrað á mánuði. Hann segir aukninguna að hluta mega rekja til kórónaveirufarald- ursins en að aðrir þættir spili inn í. „Það hefur verið mikil umræða um heimilisof beldi undanfarið, ásamt því að við höfum verið sýni- legri,“ segir Andrés. „Vonandi er stærri hluti af menginu að skila sér til okkar, maður vonar það,“ bætir hann við. „Við sem sinnum þessum málum f innum fyrir auknum þunga í þeim málum sem til okkar koma. Vandamálin virðast þyngri og það er meira um undirliggjandi vanda- mál, til að mynda aukinn kvíða,“ segir Andrés. Flestir þeirra sem leita til Heimil- isfriðar eru einstaklingar sem hafa beitt maka sinn of beldi, um 75 pró- sent skjólstæðinga eru karlar og 25 prósent konur. Öll kyn segir Andrés velkomin og að til séu úrræði fyrir alla sem vilji hætta að beita hvers konar of beldi. Í aðgerðaáætlun of beldisvarna- nefndar, sem kynnt var á fundi nefndarinnar í síðustu viku, kemur fram að unnið hafi verið að kort- lagningu þeirrar meðferðar sem í boði er fyrir gerendur, hana veiti Heimilisfriður. Viðtölin séu niður- greidd af félagsmálaráðuneytinu, en hvert viðtal kostar einungis 3.000 krónur fyrir skjólstæðinginn. Í áætluninni kemur einnig fram að heildarúttekt hafi verið gerð á starfsemi Heimilisfriðar á árunum 2013 og 2014 og að niðurstöður hafi sýnt að meðferðin skilaði árangri, „þó meiri í tengslum við líkamlegt of beldi en andlegt of beldi“. Aðspurður hvort slíkt hið sama eigi við nú, segist Andrés vona að breytingar hafi orðið á, umræðan um alvarlegar af leiðingar andlegs of beldis hafi hlotið meiri hljóm- grunn síðustu ár. „Við höfum lagt gríðarlega áherslu á það að ef la meðferð fyrir þá sem beitt hafa andlegu of beldi og ég vona að það hafi skilað sér,“ segir hann. „Menn eru líka að átta sig á alvarleika andlegs of beldis fyrir lýðheilsu fólks og það er alltaf verið að rannsaka það betur og betur, niðurstöðurnar sýna að andlegt of beldi getur valdið alveg jafn miklum skaða og líkamlegt of beldi og í sumum tilfellum meira langvarandi skaða,“ segir Andrés og bætir við að börn sem alist upp við andlegt of beldi verði alltaf fyrir skaða, ekki síður en þau sem búi við líkamlegt of beldi. Þá segir Andrés að þrátt fyrir aukna aðsókn í þjónustu til Heim- ilisfriðar sé vel hægt að taka á móti öllum þeim sem sækist eftir þjónustunni. Vel sé hugað að öllum sóttvörnum og að tveggja metra reglunni sé fylgt. birnadrofn@frettabladid.is Aukin aðsókn í meðferð fyrir gerendur heimilisofbeldis Andrés Proppé Ragnarsson sálfræðingur segir mikla aukningu í meðferð fyrir gerendur heimilis­ ofbeldis. Ástæðan sé bæði kórónaveirufaraldurinn og aukin umræða um ofbeldi. Málin séu þyngri sem og undirliggjandi vandamál. Úrræði séu til fyrir alla þá sem vilji hætta að beita hvers kyns ofbeldi. Andrés segir þau börn sem alist upp við andlegt ofbeldi verði alltaf fyrir skaða ekki síður en þau sem búi við líkam- legt ofbeldi. Andlega ofbeldið getur í sumum tilvikum valdið meira langvarandi skaða. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Menn eru líka að átta sig á alvarleika andlegs ofbeldis fyrir lýðheilsu fólks. Andrés Ragnars- son sálfræðingur VELFERÐARMÁL „Við finnum fyrir mikilli aukningu í beiðnum sem til okkar koma,“ segir Sigríður Rut Jóns- dóttir, formaður Hróa hattar barna- vinafélags. En líkt og Fréttablaðið greindi frá síðastliðinn þriðjudag hafa grunnskólar í Reykjanesbæ sótt um styrk til Hróa hattar fyrir 14 nemendur vegna greiðslu skólamál- tíða. Sigríður segir að bæði sé aukn- ing í beiðnum vegna greiðslu skólamáltíða og skólaferða- laga. „Við erum að fá beiðnir af öllu landinu en sjáum samt svæðaskiptingu í þessu. Það virðist vera þannig að sum sveitarfélög séu betur til þess fallin að klára þessi mál en önnur,“ segir Sigríður. „En við tökum glöð við öllum þessum beiðnum og erum ánægð með það að geta hjálpað.“ Valgerður Björk Páls- dóttir, formaður fræðslu- sviðs Reykjanesbæjar, segir að þeim sem ekki hafi staðið í skilum með greiðslur vegna skólamáltíða hafi ekki fjölgað, heldur sé fjöldinn svip- aður og síðastliðin ár. Fram hafi komið á fundi fræðslu- ráðs í síðustu viku að loka hafi þurft 12 áskriftum en samkvæmt upp- færðum upplýsingum frá Skólamat, sem sér um skólamáltíðir í grunn- skólum bæjarins, hafi þurft að til- kynna foreldrum um lokun fimm áskrifta það sem af er skólaári. Það séu tölur sem svipi til síðustu ára. Hún segir þó að ekki verði lokað á nein börn með afgreiðslu á mat. „Reykjanesbær hefur greitt fyrir áskriftirnar út október, svo hafa skólarnir sótt um styrk til Hróa hattar.“ – bdj Ekki verður lokað á nein börn með afgreiðslu á skólamat ATVINNULÍF Ísland hefur hlutfalls- lega næstf lesta íþróttaþjálfara og annað starfsfólk sem vinnur að íþróttum og hreyfingu í Evrópu. Kemur þetta fram í nýjum gögnum Tölfræðistofnunar Evrópusam- bandsins. Á Íslandi er hlutfallið meira en 450 á hverja 100 þúsund vinnufæra íbúa, en meðaltal álf- unnar er 210. Aðeins Svíar hafa fleiri þjálfara, en þar er hlutfallið rúmlega 580 á hverja 100 þúsund. Meðal þeirra ríkja þar sem hlut- fallið er lægst má nefna Pólland og Rúmeníu, en Belgar verma botn sætið með aðeins 80 þjálfara á hverja 100 þúsund. Í tölunum kemur einnig fram að þjálfurum og öðru íþróttamiðuðu starfsfólki hafi fækkað um 6 prósent síðan COVID- 19 faraldurinn hófst. Mest fækkun er hjá konum á aldrinum 15 til 34 ára, alls 18 prósent. Mikill fjöldi þjálfara, og sérstak- lega menntaðra þjálfara, hefur verið nefndur sem einn af lykilþáttunum í Íslenska forvarnamódelinu. En með aukinni áherslu á faglegt íþrótta- starf hefur áhættuhegðun unglinga, svo sem drykkja og fíkniefnaneysla, verið á miklu undanhaldi síðustu áratugi. – khg Fleiri starfa við íþróttir á Íslandi Aðeins í Svíþjóð starfa fleiri við íþróttir og hreyfingu en á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Í Evrópu hefur þjálf- urum og íþróttastarfsfólki fækkað um 6 prósent í faraldrinum. Valgerður Björk Pálsdóttir, formaður fræðslusviðs Reykjanesbæjar 2 9 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.