Fréttablaðið - 29.10.2020, Blaðsíða 39
Barna og fullorðins
Íþróttafatnaður og skór
30% til 70% afsláttur
Sundaborg 1
NÆG BÍLASTÆÐI
Opnunartími
Virka daga 12-18
Laugardaga 12-16
KÖRFUBOLTI Haukur Helgi Briem
Pálsson, landsliðsmaður í körfu-
bolta, hefur farið vel af stað með liði
sínu MoraBanc Andorra sem leikur
í spænsku efstu deildinni en þaðan
kom hann frá rússneska félaginu
Unics Kazan í sumar. Haukur Helgi
segir leikstíl liðsins og hans hlut-
verk henti honum einkar vel.
„Þegar ég kom hingað var rætt um
það að ég fengi að nýta fjölhæfni
mína betur í sóknarleiknum. Þann-
ig er ég mikið að koma að hindr-
unum og skjóta og sækja á körfuna
eftir hindranir. Ég er að spila sem
hávaxinn þristur og ég fæ líka að
spila með bakið í körfuna sem
fjarki og ég er að fíla það hlutverk
mjög vel. Ég fæ mun meira frjálsræði
til þess að nýta mína styrkleika en
hjá Unics Kazan og það var forsenda
þess að ég kom hingað,“ segir Hauk-
ur Helgi í samtali við Fréttablaðið.
„Ég var kominn með leið á því
að spila hjá liðum þar sem ég var
hræddur við að gera mistök eða
það mátti alls ekki fara gegn því
leikplani sem sett var upp. Það gilda
auðvitað ákveðnar vinnureglur
hérna en það er mun betur tekið á
því að leikmenn finni sjálfir leiðir
til þess að sækja á körfuna eða finna
sér góð skot.“
Haukur hefur skorað rúmlega 11
stig að meðaltali í leikjunum fimm
til þessa. Markmiðið hjá liðinu er
fyrst að komast í úrslitakeppnina.
„Þetta er lið sem mun koma til
með að berjast um að koma sér
í úrslitakeppnina. Barca og Real
Madrid eru á pappírnum sterkust
og þar fyrir neðan eru tvö til þrjú
lið. Svo verðum við í pakka með
fimm til sex liðum sem munu berj-
ast um að enda í topp átta og kom-
ast í úrslitakeppnina. Þetta tímbil
verður samt örugglega mjög skrýtið
út af COVID. Bæði út af frestunum á
leikjum og svo munu meiðsli líklega
hafa mikil áhrif á það hvernig liðum
mun ganga.“ – hó
Haukur Helgi nýtur þess að fá meira frjálsræði í sóknarleiknum
HANDBOLTI Ólafur Andrés Guð-
mundsson, fyrirliði sænska liðsins
Kristianstad, mun ekki leika með
íslenska karlalandsliðinu í hand-
bolta í fyrsta leik liðsins í undan-
keppni EM 2022 gegn Litháen. Ólaf-
ur getur ekki gefið kost á sér vegna
meiðsla en þetta staðfesti hann í
samtali við vefsíðuna handbolti.is.
Ólafur varð fyrir meiðslum í leik
Kristianstad gegn Guif í sænsku
úrvalsdeildinni um síðustu helgi
og segir skyttan í samtali við hand-
bolta.is að um sé að ræða smávægi-
lega tognun aftan í læri sem haldi
honum líklega í um tvær vikur utan
vallar.
Af þessum sökum var Ólafur
Andrés fjarri góðu gamni þegar
Kristianstad lagði Dinamo Búkarest
að velli í riðlakeppni Evrópudeild-
arinnar á þriðjudaginn. – hó
Ólafur dregur
sig úr hópnum
Íslenski landsliðsmaðurinn nýtur sín vel í liði Andorra. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI Enski landsliðsmark-
vörðurinn Jordan Pickford er búinn
að ráða lífverði til að gæta öryggis
fjölskyldu sinnar, eftir hótanir í
kjölfarið á leik Everton og Liverpool
á dögunum. Tækling Pickford olli
því að Virgil van Dijk, miðvörður
Liverpool, sleit krossband og er frá
út tímabilið.
Pickford fór groddalega fram í
tæklingunni en slapp við refsingu,
þrátt fyrir aðkomu myndbands-
dómgæslu. Hann varði nokkrum
sinnum vel þegar Everton náði stigi
af ensku meisturunum og var ekki
refsað eftir á af enska knattspyrnu-
sambandinu.
Enskir fjölmiðlar segja að Pick-
ford hafi borist morðhótanir f ljót-
lega eftir leik sem eru til rann-
sóknar hjá lögreglunni í Liverpool,
en nú hefur Pickford stigið skref-
inu lengra og ráðið lífverði sér til
aðstoðar. Þá hefur fjölskyldunni
verið ráðlagt að forðast samfélags-
miðla. – kpt
Pickford búinn
að ráða lífverði
Tækling Pickford sem setti Bítla-
borgina á hliðina. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Ólafur á að baki 123 leiki fyrir Ís-
lands hönd. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 23F I M M T U D A G U R 2 9 . O K T Ó B E R 2 0 2 0