Fréttablaðið - 29.10.2020, Side 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 3 1 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 2 9 . O K T Ó B E R 2 0 2 0
Íslensku húðvörurnar
bioeffect.is
HEILBRIGÐISMÁL „Það kom okkur
í opna skjöldu að það skyldi vera
lokað aftur hjá okkur. Okkur hefur
ekki verið sýnt fram á það að okkar
starfsemi auki álag á spítalann,“ segir
Dagný Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri Orkuhússins.
Samkvæmt fyrirmælum land-
læknis hefur öllum valkvæðum
skurðaðgerðum sem þarfnast svæf-
ingar verið frestað til 15. nóvember,
í tæpar þrjár vikur. „Þetta er gert
í ljósi þess að slíkar aðgerðir geta
kallað á komur á bráðamóttöku og/
eða sjúkrahússinnlögn, sem getur
valdið enn frekara álagi á sjúkrahús
en nú þegar er,“ segir í fyrirmælum
landlæknis. Til stendur að herða
sóttvarnaaðgerðir.
Dagný segir ástandið ekki gott
fyrir sjúklinga. „Það eru veikari
sjúklingar á biðlista núna en í fyrri
bylgjunni. Við höfum verið að vinna
niður biðlistana frá því í fyrstu
lokuninni. Þetta er ekki gott ástand
fyrir okkar sjúklinga.“
Fjórar skurðstofur eru í Orkuhús-
inu í Urðarhvarfi, þar eru daglega
gerðar á bilinu sjö til ellefu aðgerðir
á hverri stofu.
„Við erum búin að hafa samband
við sjúklinga á fullu og fólk er mjög
ósátt. Stór hluti er fólk sem er mjög
kvalið og er búið að bíða lengi eftir
aðgerð,“ segir hún. Í sumum tilfellum
geti fólk ekki stundað atvinnu sína
nema það komist í aðgerð.
„Ekkert bendir til þess að okkar
starfsemi valdi álagi, heldur þver-
öfugt erum við að létta álagi af
spítalanum,“ segir Dagný. „Hér starfa
læknar sem eru sérmenntaðir í því
hvernig varast má sýkingar, sama
á við um hjúkrunarfræðingana og
sjúkraliðana, ef það er ekki fólk sem
á að kunna að valda ekki sýkingum
og öðru, hverjir þá? Ég tel mjög skrít-
ið að það sé lokað á þá.“ – ab / sjá síðu 6
Bíður kvalið eftir aðgerðum
Landlæknir hefur frestað valkvæðum aðgerðum með svæfingu. Framkvæmdastjóri segir að ekki hafi
verið sýnt fram á að skurðaðgerðir auki álag á Landspítalann. Á meðan bíði sjúklingar sárkvaldir.
Ekkert bendir til
þess að okkar
starfsemi valdi álagi, heldur
þveröfugt erum við að létta
álagi af spítalanum.
Dagný Jónsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Orkuhúss-
ins
Íslenska fánanum var f laggað á Selfossi í tilefni af reisugildi – því að þaksperrur hússins eru komnar upp. Húsið í forgrunni er endurgerð hins upprunalega verksmiðjuhúss Mjólkurbús
Flóamanna, sem Guðjón Samúelsson teiknaði og stóð á Selfossi 1929-1954. Það verður sannkallað matarmenningarhús með sýningum og veitingastöðum. Í baksýn eru f leiri hús í nýja
miðbænum sem öll eiga sér sögulegar fyrirmyndir en af þrettán húsum í fyrsta áfanga verksins eru nú níu risin. Starfsemi hefst í miðbænum í byrjun næsta sumars. MYND/ÁRNI LEÓSSON
COVID -19 Síðustu mánuði hefur
aðsókn aukist mikið í meðferð fyrir
gerendur heimilisof beldis. Andrés
Proppé Ragnarsson sálfræðingur
rekur verkefnið Heimilisfrið þar sem
fólki sem beitir heimilisof beldi er
veitt meðferð. Hann telur að ástæð-
una fyrir aukningunni megi rekja
til kórónaveirufaraldursins sem og
aukinnar umræðu um ofbeldi í sam-
félaginu.
Andrés segist finna fyrir að vanda-
málin séu djúpstæðari. Flestir þeirra
sem leita til Heimilisfriðar eru ein-
staklingar sem hafa beitt maka sinn
ofbeldi, um 75 prósent skjólstæðinga
eru karlar og 25 prósent konur. Öll
kyn segir Andrés velkomin og að til
séu úrræði fyrir alla sem vilji hætta
að beita hvers konar ofbeldi.
– bdj / sjá síðu 4
Gerendur vilja
fara í meðferð