Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2020, Side 4
MEST LESIÐ
Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST...
Leggur til þyngri refsingu
Mikil umræða varð um refsingar fyrir vörslu og dreifingu á
barnaníðsefni í vikunni eftir þátt Kompáss þar sem fjallað
var um á fjórða tug manna sem eru til rannsóknar hjá lög-
reglu fyrir vörslu barnaníðsefnis. Myndirnar í fórum mann-
anna hlaupa á hundruðum þúsunda og sýna gróf kynferðisbrot
gegn börnum allt niður í nokkurra mánaða. Þorbjörg Sigríður
Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, ætlar að leggja fram
frumvarp um þyngri refsingar við slíkum brotum. Refsingar
séu þyngri á öðrum Norðurlöndum en hér á landi og því þurfi
að breyta í samræmi við alvarleika þessara mála.
Faraldurinn í veldisvexti
Þriðja bylgja kórónaveirunnar er í vexti á Íslandi og eykst
smit í samfélaginu. Því taldi sóttvarnalæknir rétt að herða
sóttvarnatakmarkanir að nýju. Stór hópsýking kom upp á
Landakoti sem yfir 140 tilfelli COVID-19 hafa verið rakin til.
Tveir einstaklingar á níræðisaldri létust vegna veirunnar í
vikunni.
Sex hundar drápust í eldsvoða
Sex hundar drápust í eldsvoða í Kópavogi í vikunni. Eigandi
þeirra, ung kona, er í áfalli vegna þessa og hafa aðstandendur
hafið söfnun til að hjálpa henni að koma fótunum undir sig
aftur eftir eldsvoðann, sem varð á heimili hennar. Hún átti
fjóra hunda til viðbótar sem björguðust úr eldinum og að sögn
eigandans braggast þeir vel.
Kæra frystihús til lögreglu
Stéttarfélög áhafnarmeðlima á skipinu Júlíusi Geirmunds-
syni ÍS 270 ætla að kæra framgöngu Hraðfrystihússins Gunn-
varar til lögreglu eftir að skipverjar voru látnir vinna þrátt
fyrir COVID-19 smit um borð. 22 af 25 skipverjum smituðust
af COVID-19 um borð fljótlega eftir að skipið lagði úr höfn.
Þrátt fyrir veikindin var skipverjum gert að halda vinnu sinni
áfram í túr sem tók þrjár vikur.
Brosti hringinn eftir stuðning
Móðir drengsins Ólívers greindi nýlega frá hrottalegu einelti
sem hann hefur mátt þola frá skólafélögum sínum undanfarið.
Svo slæmt varð eineltið að Ólíver þurfti að skipta um skóla.
Eftir að móðir hans steig fram með frásögnina hefur stuðningi
rignt yfir Ólíver úr öllum áttum. Frægir knattspyrnumenn
og handboltamenn hafa sett sig í samband við hann auk tón-
listarfólks, leikara og menntamálaráðherra. Ólíver er að sögn
móður sinnar himinlifandi yfir þessum viðbrögðum og brosir
framan í heiminn að nýju.
Ekki bjartsýnn
Guðni Bergsson, formaður
Knattspyrnusambands Ís-
lands, er ekki bjartsýnn á
framhald Íslandsmótsins í fót-
bolta eftir nýjust vendingar í
kórónaveirumálum Íslands,
en hertar aðgerðir hafa verið
boðaðar. Áður hafði KSÍ verið
búið að biðja um undanþágu
fyrir æfingar en sóttvarna-
læknir hefur boðað að færri
undanþágur verði samþykktar
hér eftir.
1 Biður karlmenn um að hætta þessum „ógeðslega“ vana
Ástralskur kynlífsfræðingur biðlar
til karlmanna að að huga betur að
hreinlæti.
2 Martröð Þórarins á sveitabæ – Segist hafa verið látinn vinna
launalaust og lögreglu sigað á hann
– „Þetta var algjör niðurlæging“
Þórarinn Ólafsson lenti í launaþjófn-
aði og fór í verkfall í mótmælaskyni.
Vinnuveitandi lét þá fjarlægja hann
með lögregluvaldi.
3 Alexandra hættir með knatt-spyrnumanninum – Eyddi
honum af Instagram Söngkonan
Alexandra Burke er hætt með knatt-
spyrnumanninum Angus MacDonald
sem leikur með Rotherdam United.
4 Róbert segir frá fréttinni sem varð til þess að hann hætti
sem fréttamaður á Stöð 2 Róbert
Marshall fór um víðan völl í hlaðvarpi
Sölva Tryggvasonar.
5 Víðir boðar hertar aðgerðir – „Við lítum þetta mjög alvar-
legum augum“ Illa hefur gengið að
ná tökum á þriðju bylgju kórónaveir-
unnar á Íslandi og því þurfti að herða
aðgerðir að mati almannavarna-
deildar ríkislögreglustjóra
6 Einhleypar athafnakonur – Eld-klárar og æðislegar DV tók
saman yfirlit um nokkrar eldklárar
athafnakonur sem eru einhleypar
7 Sjáðu inn á heimili Beckham fjölskyldunnar – Hefur kostað
meira en 11 milljarða Beckham-
hjónin keyptu lúxusíbúð í 62 hæða
fjölbýlishúsi í Miami.
8 Mætti óvænt í jarðarförina sína í stað þess að mæta í afmælis-
veisluna sína Kærasti Eli McCann
skipulagði afmælið hans en stillti
því upp líkt og Eli væri mættur í eigin
jarðarför.
9 Faldi myndavél í rassvasanum – Greip menn glóðvolga Fyrir-
sæta faldi myndavél í rassvasa sínum
til að ná á upptöku hvernig karlmenn
störðu á afturenda hennar.
Katrín Tanja er ein fremsta
íþróttakona heims
Í bók sinni veitir hún lesendum innsýn
í líf sitt og það sem hún hefur gert til
að ná árangri og verða fyrirmynd
SIGRAR OG ÓSIGRAR
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is | Opið alla virka daga 10–18 | Um helgar 11–16 LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
4 FRÉTTIR 30. OKTÓBER 2020 DV