Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2020, Síða 8
ÓÁSÆTTANLEGT AÐ ÞOLENDUR
ÞURFI AÐ FLÝJA SKÓLANN SINN
L ilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningar-málaráðherra, hefur
skorið upp herör gegn einelti.
„Þessi mál snerta mig mikið.
Ég stend vaktina, með og fyr-
ir ykkur öll hin. Ég get haft
raunveruleg áhrif á framvindu
þessa málaflokks og þegar
svona mikið er í húfi þá verð
ég að setja alla mína krafta í
að bæta og skerpa á úrræðum
fyrir þolendur, gerendur og
aðstandendur,“ segir hún.
Forvarnir í forgang
Mál Ólívers, 11 ára drengs í
Garðabæ sem var lagður í ein-
elti í skólanum sínum og hefur
skipt um skóla, hefur vakið
þjóðarathygli og sett fókusinn
á hversu erfitt virðist í sumum
skólum að taka á einelti. Móðir
Ólívers skrifaði um reynslu
hans á Facebook í síðustu viku
og var menntamálaráðherra
einn þeirra sem höfðu sam-
band við fjölskylduna.
Lilja segir að við sem sam-
félag þurfum að vera á tánum
gagnvart einelti og setja for-
varnir í forgang. „Það er að
mínu mati óásættanleg lausn
mála að þolandi þurfi að færa
sig úr sínum hverfisskóla til að
losna undan einelti. Við verð-
um að byggja upp kerfi sem
hefur burði til að tryggja far-
sæla lausn. Það er mitt næsta
verkefni!“ segir hún.
Þá hefur Lilja gefið út að til
standi að auka áherslu á fagráð
eineltismála í grunn- og fram-
haldsskólum innan ráðuneytis-
ins.
Vanda Sigurgeirsdóttir, sér-
fræðingur í málaflokknum
og lektor við Háskóla Ís-
lands, verður ráðuneytinu til
samráðs. Á degi gegn einelti
í fyrra, 8. nóvember, veitti
menntamálaráðherra Vöndu
sérstök hvatningarverðlaun
fyrir framlag hennar til rann-
sókna og forvarna gegn ein-
elti, og úrlausna í einstökum
eineltismálum.
Átta ára fagráð
Fagráð eineltismála var
stofnað af mennta- og menn-
ingarmálaráðherra árið 2012.
Hlutverk fagráðs eineltismála,
samkvæmt verklagsreglum,
er að veita skólasamfélaginu
stuðning vegna eineltismála
með almennri ráðgjöf, leið-
beiningum og upplýsingagjöf.
Hægt er að vísa eineltismálum
til fagráðsins ef ekki tekst
að finna fullnægjandi lausn
innan skóla eða sveitarfélags.
Skal þá fagráðið veita ráðgef-
andi álit á grundvelli þeirra
gagna og upplýsinga sem því
berast. Þeir sem geta leitað til
fagráðsins eru nemendur, for-
eldrar/forráðamenn og starfs-
fólk grunn- og framhaldsskóla.
Einnig aðilar sem starfa með
börnum í skóla-, frístunda- eða
tómstundastarfi, sem hefur
stoð í grunnskólalögum.
DV beindi þeirri spurningu
til ráðuneytisins hvað myndi
breytast nú þar sem ráðið er
ekki nýtt af nálinni. Í svari
ráðuneytis segir að verklag og
regluverk sé í sífelldri skoðun.
„Ráðuneytið er að setja af stað
vinnu sem miðar að því að
styrkja umgjörð eineltismála
enn frekar en nú er og mun sú
vinna taka mið af reynslu fag-
ráðs eineltismála á undanförn-
um árum, þróun málanna sem
hafa komið á borð fagráðsins
og vinnu sem fram hefur farið
undir forystu stjórnvalda í
góðu samstarfi við hagsmuna-
aðila við mótun frumvarps um
samþættingu þjónustu í þágu
farsældar barna.“
Fá mál til ráðsins
Athygli vekur að heldur fá mál
hafa ratað til ráðsins á undan-
förnum árum. Það sem af er
ári hafa sex mál verið send til
Lilja D. Alfreðsdóttir ætlar að setja alla sína krafta í að bæta og skerpa á úrræðum í eineltismálum. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is
FAGRÁÐ EINELTISMÁLA Í GRUNN- OG FRAMHALDSSKÓLUM:
Menntamálaráðherra skipar í ráðið til þriggja ára í senn.
Bóas Valdórsson, formaður,
sálfræðingur í Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Sigrún Garcia Thorarensen, varaformaður,
náms- og starfsráðgjafi við Rimaskóla.
Sigríður Lára Haraldsdóttir,
námsráðgjafi í Grunnskólanum austan Vatna.
2019 segir um fundi á árinu:
„Alls voru haldnir 26 fundir á
árinu 2019, bæði fastir fundir
og svo vinnufundir í einstök-
um málum. Nokkrir fundir
voru haldnir bæði með aðal- og
varamönnum. Þeir fundir voru
um innri málefni fagráðs svo
sem um breytingar á heima-
síðu, kynningarmál, verk-
lagsreglur, vinnureglur og
fleira. Þá var í tengslum við
nýja persónuverndarlöggjöf
unninn vinnuferill á meðferð
gagna fagráðs í samstarfi við
lögfræðing Menntamálastofn-
unar.“
Þá segir í ársskýrslunni að
fyrirspurnum til fagráðs hafi
fjölgað frá fyrri árum og eigi
þær oftast við um mál þar
sem einelti er yfirstandandi,
varða oftast grunnskóla-
nema og yfirleitt eru það for-
eldrar sem hafa samband,
annaðhvort með símtali eða
tölvupósti. Algengt sé að
fyrirspurnir til ráðsins varði
boðleiðir í eineltismálum. Í
slíkum tilfellum er veitt ráð-
gjöf um hvert er hægt að leita
og hvernig best er að bera sig
að. Foreldrar sem eiga börn
sem verða fyrir meintu einelti
leita einnig oft eftir stuðningi
og ráðgjöf. n
ráðsins, tvö voru send ráðinu
í fyrra og aðeins eitt mál árið
2018. Á árunum 2014-2017 var
átta málum vísað til fagráðs
eineltismála en sautján á
fyrstu tveimur árum eftir að
ráðið var stofnað, 2012-2014.
Mennta- og menningarmála-
ráðuneytið hafði ekki tök á
því að svara til um mögulegar
ástæður fyrir því að fjöldi
mála sem rata til ráðsins virð-
ist ekki endurspegla vanda
innan skóla til að ráða niður-
lögum eineltis.
Í svari til DV við því hversu
algengt sé að málum sem
vísað er til fagráðins ljúki
með tilfærslu barns í annan
skóla segir að í einhverjum
tilvikum hafi börn þegar verið
búin að skipta um skóla þegar
málin koma til ráðsins. „Er þá
áhersla lögð á að athuga hvort
skólar hafi fylgt verkferlum og
hvað hafi farið úrskeiðis með
það að markmiði að nauðsyn-
legar úrbætur séu gerðar. Hins
vegar hefur ekki komið til þess
í þeim málum sem fagráðið
hefur haft til meðferðar að
talið sé best að barnið sé látið
skipta um skóla.“
Fyrirspurnum fjölgar
Í ársskýrslu fagráðsins fyrir
Lilja D. Alfreðsdóttir ætlar að taka einelti föstum tökum og hefur fengið til liðs
við sig einn helsta sérfræðing landsins í eineltismálum, Vöndu Sigurgeirsdóttur.
8 FRÉTTIR 30. OKTÓBER 2020 DV