Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2020, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2020, Qupperneq 22
22 EYJAN Á ÞINGPÖLLUM Björn Jón Bragason eyjan@eyjan.is E nn á ný er rætt um nýtt stjórnarskrárákvæði um „auðlindir í þjóðar- eigu,“ en nú seinast impraði Katrín Jakobsdóttir forsætis- ráðherra á þessu í stefnuræðu sinni. Björn Bjarnason, fyrrv- verandi ráðherra, benti á það á heimasíðu sinni í kjölfarið á að Davíð Oddsson, þá forsæt- isráðherra, hefði reifað slíkar hugmyndir fyrir tæpum 30 árum. Síðan þá hefur reglu- lega verið rætt um stjórnar- skrárákvæði af þessu tagi og það orðið tilefni skrifa fræði- manna jafnt sem leikmanna. Í samtali við Fréttablaðið á dög- unum orðaði Katrín forsætis- ráðherra það svo að í sam- félaginu væri „mjög mikill og ríkur vilji“ til að fjallað yrði um auðlindir í stjórnarskrá. Óskýrt ákvæði Feneyjanefnd Evrópuráðsins birti hinn 9. október síðast- liðinn álit sitt á þeim fjórum frumvörpum til stjórnskip- unarlaga sem undanfarið hafa verið til umfjöllunar. Nefndin segir í áliti sínu að skýra verði betur hvað átt sé við með þjóð- areign og tengslum við annan eignarrétt. Þá þurfi að tryggja að hægt sé að bera undir dóm- stóla ágreining um gjaldtöku og nýtingu í ábataskyni. Helstu fræðimenn á sviði stjórnskipunarréttar hafa margsinnis bent á að ef hug- takið þjóðareign hafi yfir höf- uð eitthvert lagalegt inntak, þá merki það ríkiseign. Ríkið eigi þá að njóta eignarréttar á auðlindum og fara með heimildir sem fylgja þeim eignarrétti. Raunar er erfitt að glöggva sig á því hvaða auðlindir átt er við í þessu sambandi. Nú þegar eru auð- lindir annaðhvort eign einka- aðila eða ríkisins. Svo virðist sem tillaga um „þjóðareign á auðlindum“ hafi lítið efnis- legt innihald. Hún ber þess öll merki að vera málamiðl- unartillaga milli afar ólíkra sjónarmiða. Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, formaður Viðreisnar, segir að sú tillaga sem nú liggi fyrir að ákvæði stjórnarskrár um þetta efni sé merkingar- laus og tryggi ekki „þjóðar- eignina“ eins og hún orðar það, en forsætisráðherra sagði í áðurnefndu viðtali við Fréttablaðið að hún teldi ekki rétt „að fara í upptalningu heldur tala um þetta út frá grundvallaratriðum, það er að auðlindir sem ekki eru háðar einkaeignarrétti séu í þjóðar- eign. Ég held að ef við ætlum í einhverja upptalningu þá séum við bara að fara að elta skottið á sjálfum okkur.“ Skerpa á eignarrétti En fyrst verið er að ræða um ákvæði stjórnarskrárinnar um eignarrétt á annað borð, mætti velta því upp hvort ekki sé ástæða til að skerpa betur á friðhelgi eignarréttar í stjórn- arskrá. Sú skerðing eignarrétt- ar sem helst reynir á er skatt- heimta, en Alþingi hefur svo að segja frjálsar hendur við álagningu skatta en þeir mega þó ekki vera afturvirkir. Til að mynda hafa íslenskir dóm- stólar ekki skorið úr um það með afgerandi hætti hversu háan skatt megi taka og hvort skattheimta yfir tilteknum mörkum geti orðið svo mikil að maður yrði talinn sviptur eign sinni. Þannig hefur það verið talið standast ákvæði stjórnar- skrár að samanlagður skattur á tekjur og eignir sé hærri en tekjufjárhæð nemur. Margsinnis hefur ágrein- ingur um takmörk skattlagn- ingarvalds verið borinn undir dómstóla, en afar sjaldan sem dómstólar hér á landi hafa komist að þeirri niðurstöðu að brotið hafi verið á skatt- greiðendum í þessu tilliti. Í dómi Hæstaréttar nr. 726/2013 voru atvik máls þau að deilt var um hvort álagning auð- legðarskatts væri andstæð stjórnarskrá. Þar var sem fyrr komist svo að orði að lög- gjafanum yrði „játað verulegt svigrúm til að ákveða hvernig skattlagningu skuli háttað“ og niðurstaðan sú að skatturinn bryti ekki í bága við eignar- réttarákvæði stjórnarskrár. Ekkert þak á skattheimtu Í dómi Hæstaréttar í máli nr. 666/2016 var komist að þeirri niðurstöðu að 76% tollur á franskar kartöflur stæðist eignarréttarákvæði stjórnar- skrár. Tilgangur þess tolls var að vernda innlenda framleiðslu sem þó er að stórum hluta úr innfluttu hráefni. Fyrir dóm- stólum héldu lögmenn íslenska ríkisins því fram að gjaldtakan þjónaði ekki því hlutverki að vernda íslenskan landbúnað, heldur væri bara um almenna tekjuöflun ríkissjóðs að ræða. Rökstuðningnum hefði þannig verið breytt eftir á. Lengi er hægt að deila um það hversu hátt hlutfall þjóðartekna eigi að ganga til ríkis og sveitarfélaga. En eftir því sem það hlutfall verður hærra, verður minna eftir til frjálsrar ráðstöfunar fólks og fyrirtækja. Margvísleg rök má færa fyrir því að stór hluti þeirra skatta sem nú renna til hins opinbera væri betur kominn í höndum borgaranna sjálfra. Í þessu sambandi má velta því fyrir sér hvort ekki sé ástæða til að setja þak á skattheimtu, til dæmis í formi hlutfalls af þjóðartekjum eða þjóðarframleiðslu. Útgjöld ríkis og sveitarfélaga yrðu þá að vera innan tiltekinna marka og þannig háð sveiflum í þjóðarbúskap. Þá mætti líka velta því upp hvort rétt væri að gera breyt- ingu á stjórnarskrá þannig að að minnsta kosti tveir þriðju hlutar þingmanna þyrftu að samþykkja að leggja á skatt. Hér væri um að ræða ný stjórnarskrárákvæði um eignar rétt sem hefðu raun- verulegt inntak og skerptu á almennum mannréttindum. n Jarðhiti er dæmi um auðlind sem er eign viðkomandi landeiganda. MYND/VILHELM SKOÐANAPISTILL Heimilt var að leggja 76% toll á franskar kartöflur. Lítil takmörk eru fyrir skattheimtu hér á landi. Feneyjanefndin segir tillögu að stjórnarskrárákvæði um þjóðareign óskýra. ... má velta því fyrir sér hvort ekki sé ástæða til að setja þak á skattheimtu, til dæmis í formi hlut- falls af þjóð- artekjum. 30. OKTÓBER 2020 DV HUGMYNDIR UM AUÐLINDIR Í ÞJÓÐ- AREIGU OG ÞAK Á SKATTHEIMTU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.