Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2020, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2020, Page 33
Bollakökur með Halloween-ívafi 240 g hveiti 200 g sykur 5 msk. kakó 1 tsk. salt 1 tsk. matarsódi 3 egg 2 tsk. vanilludropar 140 ml olía 200 ml kalt vatn Byrjið á að hita ofninn í 200°C. Þeytið saman í skál egg, olíu, van- illudropa og vatn þar til blandan verður létt og ljós. Sigtið restina af þurrefnunum sam- an í skál og blandið öllu vel saman. Skiptið deiginu í um 20-25 bolla- kökuform. Bakið í 12-15 mínútur. Látið kökurnar kólna vel áður en þær eru skreyttar. Smjörkrem 500 g smjörlíki (mjúkt) 500 g flórsykur 3 tsk. vanilludropar Matarlitir að eigin vali Byrjið á að setja smjör- líki og flórsykur saman í hrærivélarskál og þeytið vel, því lengur sem þeytt er því þægilegra verður að eiga við kremið. Ég miða við 4 mínútur á háum hraða. Setjið vanilludropana út í og blandið vel saman. Ég skipti kreminu í tvo hluta og not- aði grænan matarlit í annan helm- inginn og appelsínugulan matarlit í hinn helminginn. Skreytingar Nornahattar og leðurblökur Til þess að skreyta má nota alls konar skemmtilega hluti, ég keypti í Hagkaup sælgætisaugu frá Wil- ton, Oreo-kexkökur og Hershey’s- kossa. Nornahattarnir eru gerðir þannig að smá smjörkremi er sprautað á bollaköku, Oreo-kexkaka sett ofan á það, aftur er sett smá smjörkrem og að lokum einn Hershey’s-koss, þarna er kominn hinn fullkomni nornahattur. Leðurblökurnar eru gerðar þann- ig að ég bræði smá súkkulaði og nota það til að líma sælgætisaugu á Oreo-kexköku. Ég set svo smá smjörkrem á bollaköku og sting Oreo-kexkökunni í miðjuna á bolla- kökunni, næst tek ég eina Oreo- kexköku og brýt hana til helminga til að nota sem vængi, eins og sjá má á myndinni. Það má svo leika sér við að útfæra andlitin á Oreo-kökunum, skvetta súkkulaði yfir þær, eins og þær séu múmíur og hvað sem hugurinn girnist. Gleðilega hrekkjavöku! Una í eldhúsinu Ormabúðingur 1 pakki Royal-súkkulaðibúðingur 1 pakki Oreo-kex 1 pakki hlaupormar Blandið Royal-búðing í skál eftir leiðbeiningum, setjið í ísskáp í nokkrar mínútur. Myljið Oreo-kexkökur í mat- vinnsluvél. Setjið lagskipt í glös eða skálar búðing og Oreo-mylsnu. Skreytið svo með hlaupormum. Skrímslabitar úr Rice Crispies 70 g smjör 150 g hvítt súkkulaði 5 msk. síróp 5 bollar Rice Crispies Sælgætisaugu til skreytingar Byrjið á að bræða súkkulaði og smjör saman í potti við vægan hita Bætið sírópinu saman við og hrærið vel saman. Takið af hitanum og bætið Rice Crispies saman við, hrærið var- lega saman. Setjið í form og þjappið vel saman, það getur verið gott að setja bök- unarpappír í botninn á forminu. Kælið í 2-3 klukkustundir. Losið úr forminu og skerið í mis- munandi stóra bita. Skreytið bitana svo með smjör- kremi og sælgætisaugunum, einn- ig getur verið skemmtilegt að nota bráðið hvítt súkkulaði og lita það með matarlit. Hrekkjavaka er á morgun, laugardaginn 31. október, og því er tilvalið að útfæra helgar- baksturinn með hryllilegu ívafi. Hérna koma nokkrar skemmti- legar hugmyndir sem allir ættu að geta leikið eftir. MYNDIR/AÐSENDAR MATUR 33DV 30. OKTÓBER 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.