Fjölrit RALA - 01.11.1976, Page 80
-69-
Nr. 811-72. Heyöflun á túnum, féðrun og heilbrigði búfjár.
Rannsókn á jarðvegi, grasi heyi, blóðsýnum og bú-
fénaði á 11 bæjum i Arnes- og Rangárvallasýslu.
Samstarfsaðilar: Rannsóknastofnun landbúnaðarins,
Tilraunastöð Háskólans í meinafræði, Keldum og Búnaðar-
samband suðurlands.
Rannsókn þessi var upphaflega ráðgerð árið 1969
sem framhald eða i tengslum við svonefndar töðurannsólcnir
sem stóðu 1967-1971 þar sem safnað var heysýnum og upp-
'lýsingimn um ræktun, heyöflun og heilbrigði búfjár um land
allt. Hugmyndin var að fá sambærilegar upplýsingar og
sýni frá ári til árs það er af sömu bæjum og taka jafn-
framt fyrir fleiri þætti en heygæði^það er jarðveg, tún-
gróður, hey og búfénað. Vegna flúorrannsókna eftir
Heklugosið 1970 og annarra verkefna dróst framkvæmd þessa
verkefnis um tvö ár. Arið 1972 var safnað grassýnum af
túnum 12 bæja í Arnessýslu en endanlegt bæjaval fór ekki
fram fyrr en 1973 og var þá um sumarið safnað grassýnum,
um haustið jarðvegssýnum og yfir veturinn telcin hey og
blóðsýni. Þessum rannsóknum er haldið áfram 1974,
1975 og sumarið 1976. Heilbrigði gripanna hefu einnig
verið könnuð.