Fjölrit RALA - 06.11.1978, Síða 46
41 .
sambandi var unnið að því að koma upp tilraunaaðstöðu í fjár-
húsunum á Hvanneyri, og hófust tilraunirnar haustið 1977. Þess-
um tilraunum er ætlað að gefa svör við því, hver ávinningur er
að því að leggja í kostnað við einangrun og góða loftræstingu
húsanna eða hvort sú fjárfesting er óarðbær. Að tilraununum er
staðið í samvinnu við Bændaskólann á Hvanneyri og með fjárstyrk
frá Byggingastofnun landbúnaðarins.
Þá var síðastliðið vor unnið að söfnun upplýsinga um vinnu-
þörf og skipulag í húsum við sauðburð. Þessar athuganir eru gerð-
ar bæði með beinum tímamælingum og athugunum á bæjum, þar sem
er skipuleg aðstaða, svo og með viðtölum við bændur. Gagnasöfn-
un er nú að mestu lokið og skýrsla væntanleg á þessu ári. Þá
var gerð athugun á notagildi sérstakra stía, sem eru innfluttar,
en þær eru ætlaðar til að venja lömb undir ær.
Dagana 23.-25. sept. var haldin ráðstefna að Hvanneyri á
vegum N.J.F. um fjárhúsabyggingar. Tók bútæknideild þátt í undir-
búningi hennar og lagði til þrjú framsöguerindi. Ráðstefnuna
sóttu sérfræðingar frá öllum Norðurlöndum, m.a. flestallir bygg-
ingafulltrúar hér á landi.
Varðandi fjósbyggingar eru ýmis brýn verkefni, sem ekki
hefur unnizt tími til að sinna. Má þar nefna athugun á hagkvæmni
og notagildi mjaltabása og einangrunarþörf básgólfa. Á árinu
lauk prófun á básmottum sem Hampiðjan framleiðir. Þá hófust
einnig athuganir á ólíkum gerðum flórrista, sem settar hafa verið
í Hvanneyrarfjós.
Eins og á undanförnum árum voru haldnir nokkrir fundir með
starfsmönnum Byggingastofnunar landbúnaðarins og bútækniráðunaut
B.í. um ýmis tæknileg atriði varðandi útihúsabyggingar. Þá var
í samvinnu við þá gerð úttekt á reynslu bænda af notkun flatgryfja
og hvernig bezt sé að aðlaga þetta geymsluform gripahúsunum.
FÓÐUREFTIRLITIÐ.
Fóðureftirlit ríkisins var stofnsett með lögum árið 1968.
Sex árum síðar var gefin út reglugerð við lögin. Lögin frá 1968
hafa nú verið endurskoðuð og samþykkt ný lög frá Alþingi (1977-
1978) um eftirlit með framleiðslu á fóðurvörum, áburði og sáð-
vörum og verzlun með þær vörur.