Fjölrit RALA - 06.11.1978, Page 63
58 .
Árið 1977 var starfslið aukið, svo að unnt væri að sinna
forritun vegna tölvuvinnslu á gögnum úr beitarverkefninu, enda
varð tölvunotkun vegna þess liðlega helmingur allrar tölvunotk-
unar stofnunarinnar á árinu.
Mikil þáttaskil urðu, þegar að fullu var hætt að nota IBM-
1620-tölvu háskólans síðsumars 1978. Tölvan var orðin nær 14
ára og löngu úrelt og ófullnægjandi. Árið áður hafði Reiknistofn-,
un háskólans tekið í notkun IBM-360/30-tölvu, og snemma árs 1977
var tekin í notkun PDP-ll/45-tölva. Enn fremur varð aðgangur að
IBM-370/145-tölvu Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurborgar
(SKÝRR) greiðari, þegar reiknistofnunin fókk fjarvinnslustöð, sem
tengdist henni, árið 1975. Ári síðar var á vegum reiknistofnunar,
ekki sízt vegna tilmæla nokkurra starfsmanna Rala, fengin for-
ritasamstæðan SPSS, sem er í tölvu SKÝRR.
Vegna hinnar miklu endurnýjunar á tölvukosti háskólans 1976-
1977 þurfti að endurskipuleggja þá tölvuvinnslu, sem þegar var
rótgróin, og greiðari aðgangur að tölvum ýtti undir meiri notkun
þeirra. Rannsóknasjóður IBM vegna Reiknistofnunar Háskóla íslands
veitti stofnuninni tvo styrki, samtals að upphæð 500.000 kr., til
að greiða hluta kostnaðar við endurskipulagningu á vinnslu gagna
úr sauðfjárræktarrannsóknum og til að greiða hluta kostnaðar við
undirbúning að tölvuvinnslu gagna úr beitartilraunum.
Reiknistofnun háskólans hefur haldið uppi mjög virkri kynningu
á þeim nýjungum í tölvunotkun, sem fram hafa komið, með námskeiðum
og fyrirlestrahaldi. Einnig hafa fyrirtæki, sem flytja inn
tölvubúnað, haldið kynningarfundi. Hefur starfsfólk Rala not-
fært sér vel þessa kynningu, og alls munu a.m.k. 13 starfsmenn
Rala hafa farið á slíka fyrirlestra eða tekið þátt x námskeiðum.
Stofnunin hefur á undanförnum árum lagt kapp á að fylgjast
með þróuninni í tölvumálum, en aðstaða hennar hefur verið ófull-
nægjandi, einkum vegna fjarlægðar frá háskólasvæðinu. Endurnýjun
tölvukosts reiknistofnunarinnar hefur þó stórbætt aðstöðuna. Með
tilkomu PDP-vélar háskólans gefst kostur á fjarvinnslu frá Keldna-
holti, sem mundi spara tímafrekar milliferðir og bið eftir
vinnslu verkefna.