Fjölrit RALA - 06.11.1978, Síða 66
61 .
fjórum stöðum, og hefur þeim fækkað nokkuð á síðustu árum og
bíða nú fullnaðarúrvinnslu, sem er mjög brýn.
1.2 Tilraun með grænfóður.
120 reita tilraun var gerð í Stórholti í Saurbæjarhreppi
í Dalasýslu, þar sem gerður var samanburður á hafra-og bygg-
afbrigðum til grænfóðurs með mismunandi sláttutíma. Ekki var
unnt að sá til þessarar tilraunar nógu snemma, svo að ekki náð-
ist að slá síðustu sláttutíma á raunhæfum tíma miðað við nýtingu
grænfóðurs á Vestfjörðum.
1.3 Grasastofnar.
Sáð var til fjögurra tilrauna með grasastofna, túnvingul,
hávingul, vallarfoxgras og vallarsveifgras, í Stórholti í Saurbæ,
alls 38 stofna.
1.4 Aðrar tilraunir.
Áhrif umferðar á tún. Settir voru niður berjarunnar, af-
brigði af jarðaberjum og afbrigði af rabarbara.
2. Sauðfjártilraunir.
Áfram var haldið ræktun og úrvali á alhvítu fé', og er nú
alger undantekning, að gult lamb fæðist af stofni stöðvarinnar.
Haustið 1976 voru fengnir óskyldir hrútar úr Strandasýslu
til samanburðar við heimahrúta. Samanburðurinn sýndi, að heima-
aldir hrútar og þeir aðkeyptu gáfu mjög svipaðan vænleika dilka.
Settir voru á fimm gimbrahópar, og er þar gerður samanburður á
dætrum þriggja hrúta úr Strandasýslu og tveggja heimaalinna.
Þá var síðastliðið ár gerð tilraun með fóðrun áa á heyi
eingöngu allan veturinn, frá því að þær voru teknar á hús og
þar til þeim var sleppt á vorin á græn grös. Á skrifstofu Rala
er verið að vinna úr þessari tilraun, bæði frá Reykhólum og
öðrum stöðum, þar sem hún var gerð. Rekstur sauðfjárbúsins gekk
allvel, frjósemi yfir 70% og arður sæmilegur.