Fjölrit RALA - 06.11.1978, Side 70

Fjölrit RALA - 06.11.1978, Side 70
65 . sláttutíma. Þetta er mikil tilraun með 72 liði. Fjórar gras- ræktartilraunir eru utan stöðvarinnar. í þremur þeirra er verið að bera saman ólíkar grastegundir og stofna og fylgzt með endingu þeirra í sáðreitunum, sem fá sömu meðferð að því er varðar áburð, slátt og beit, eins og aðliggjandi tán á bæjunum, þar sem þær fara fram. Grasfrærækt var reynd í tveimur tilraunum með 10 liðum. Leitað var eftir heppilegri N-áburðargjöf og í hinni kannaður fræþroski 12 stofna af 7 tegundum. Kornræktartilraunir. Ein tilraun var gerð, þar sem bornir voru saman 20 stofnar af byggi. Þá var sáð í raðir 40 afbrigðum byggs, sem komið hafa úr víxlfrjóvgunum. Grænfóður var í fjórum tilraunum með 206 reitum. í öllum tilraununum var verið að bera saman ólíkar grænfóðurtegundir og stofna af þeim. Jafnframt voru í einni bornir saman mismunandi áburðarskammtar, og í annarri voru könnuð áhrif sláttutíma á magn og gæði uppskerunnar. Garðræktartilraunir. Tvær tilraunir voru gerðar með kart- öflur. Borin voru saman 40 afbrigði og aðferðir reyndar til að flýta þroska kartaflna. Alls voru þetta 46 liðir með 178 reitum. Borin voru saman sex gulrófnaafbrigði og ellefu afbrigði af hvít- káli. Settar voru niður tröllasúruplöntur af 19 stofnum víðs vegar að úr heiminum. Plantað var smávegis af berjarunnum og nokkrum tegundum af krydd-og krásjurtum til að kanna möguleika þeirra til að þrífast hár. Fóðrunartilraunir með sauðfé. Tilraun með gervimjólk og vorlambaköggla. Tilgangurinn var að kanna, hversu vel tækist að ala upp lömb með því að fóðra þau á gervimjólk og kjarnfóðri að loknum fyrsta sólarhringnum með ánni. Tilgangur tilraunar með vorlambaköggla handa tvílembingum var að kanna, hvort ná mætti fullum þrifum tvílembinga með þvx að hafa mæðurnar á gróðurlausum, skjólgóðum útihólfum með sjálf- fóðrun á heyi sem viðbót við móðurmjólkina.

x

Fjölrit RALA

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.