Fjölrit RALA - 20.01.1979, Page 35
III. AÐRAR GARÐYRKJUTILRAUNIR.
Á tilraunum með illgresiseyðingarlyf er lítið að græða. Árið 1975
og 1976 virðist Ramrod reynast betur en Treflan en árið 1977 virka
7 kg/ha af Ramrod lítið sem ekkert á illgresi og Treflan harla lítið.
Samanburðartilraunir á vexti gulrófustofna hafa ekki tekist sem
skyldi vegna misjafnlegrar spírunar fræs. Rófur hafa því staðið misþétt
og er því lítið að marka tölur um uppskeru á flatareiningu.
Hnúðkál, grænkálsafbrigðið 08483 og hvítkálsafbrigðið Háleggur
hafa reynst vel á Korpu, en norska hvítkálsafbrigðið Omd reyndist illa
er það var prófað sumarið 1976. Óhætt er að mæla með ræktun á hnúðkáli,
því uppskera er næsta örugg.
Gerð var tilraun til að rækta matlauk sumarið 1975 en uppskera var
mjög lítil.
Sumarið 1977 voru borin saman 12 hvítkálsafbrigði á Korpu og víðar.
Tilraunin var gerð í samvinnu við Garðyrkjuskólann á Reykjum. Tilraunin
mistókst að nokkru leyti vegna þess að plönturnar voru full rýrar við niður-
setningu og kom það sennilega harðast niður á seinvöxnu afbrigðunum. Til
dæmis náði Háleggur (Halygen) margfalt meiri höfuðþyngd í varðbeltum en
í tilraunareit, en plönturnar í varðbeltunum voru forræktaðar á öðrum
stað og voru stærri við niðursetningu.
Illgresiseyðing í jurtum af krossblómaætt, (405-75).
Tilgangurinn var að bera saman verkan illgresiseyðingarefnanna
RAMROD og TREFLAN.
Af Treflan var úðað 1,8 1/ha
- Ramrod - - 7 kg/ha
Hvort illgresiseyðingarefni var látið á fjóra reiti með mismunandi
plöntutegundum. Áburður var alls staðar "Græðir I” (14-18-18) 1,8 t/ha
Síðla sumar var illgresisþekjan metin með skala 0-10.