Fjölrit RALA - 20.01.1979, Blaðsíða 36
-30-
Niðurstöður:
Reitur Sáning Reitir mec eyðingc RAMR0D ~~ illgresis- ire fnum ~ TREFLAN Án ill- gresis- eyðingar- efna
Blómkál 30/5 5 9 10
Fóðurkál 19/6 6 8 10
Gulrófur 29/5 4 6 10
Hvítkál 30/5 4 9 10
Meðaltal 4,75 8,00 10,00
í tilraun þessari virðist Ramrod reynast betur en Treflan en bæði
efnin virðast eitthvað minnka illgresisþekju.
Illgresiseyðing í jurtum af krossblómaætt, (405 - 76).
Tilgangurinn var að athuga verkan illgresiseyðingarefnanna RAMROD
og TREFLAN á illgresi og gulrófur og hve mikinn skammt þarf.
Til meðferðar voru fimm reitir:
a. Engin illgresiseyðing.
b. 1 1/ha Treflan, úðað og fellt niður fyrir gróðursetningu.
c. 9 kg/ha Ramrod, úðað strax eftir gróðursetningu.
d. 6 kg/ha Ramrod, úðað strax eftir gróðursetningu.
e. 1,5 1/ha Treflan, úðað og fellt niður fyrir gróðursetningu.
Endurtekningar voru fjórar.
Áburður: Græðir I 1800 kg/ha
Borax 20
Sáning: Kálfafellsrófum sáð þann 4/6 í alla reiti.
Niðurstöður:
Arfaþekjan var metin þann 6. júlí. Svo til enginn arfi var í reitum
c og d en í öðrum reitum var þekjan á bilinu 10-30%. Þann 15. október
var þétt lag af haugarfa yfir öllum reitum nema c- og d-reitum. Þar var
hins vegar dálítið af hjartaarfa sem kom upp er líða tók á sumarið.
Þekja af honum var 5-10%.
Vegna mjög lélegrar spírunar gulrófnafræsins var ekki unnt að athuga
verkan efnanna á gulrófnaplönturnar.