Fjölrit RALA - 20.01.1979, Page 63
-57-
Fræblanda 1975: 15 kg/ha Festuca rubra Dasas
15 kg/ha Poa pratensis Fylking
4 kg/ha Lolium perenne Sabalan
Fræblanda 1976: 20 kg/ha Festuca rubra Dasas
30 kg/ha Festuca rubra ísl. stofn
Niðurstöður athugana á skarnanum og kúamykjunni eru birtar í fjölriti
Rala nr. 1, tafla 3.1,s. 21.
Gróðurathuganir 1975:
Sumarið 1975 var gerð gróðurgreining í 0,5 m* 1 2 3 hringjum. Voru teknar
4 merktar línur þvert yfir reiti 1-11 (línurnar eru 50, 100, 150 og 200 m
frá endum reitanna) og voru greindir 2 hringir í hverjum reit á hverri línu
samtals 8 hringir í hverjum reit. Greiningin var gerð skömmu eftir að borið
var á og áður en áburðaráhrifin komu fram.
Allar tegundir háplantna voru greindar og af mosum var ættkvíslin
Racomitrium greind sár, en aðrir mosar allir sem heild og flétturnar sömu-
leiðis. Hula tegunda var metin í prósentum o'g heildargróðurhula metin sár.
Gróðurinn er mjög breytilegur, bæði hvað varðar gróðurhulu og tegunda-
samsetningu. Yfirleitt voru fleiri en einn gróðurblettur (bestand) í
hverjum 0,5 m2 hring, en þeir voru ekki greindir. Aftur á móti var svæðið
flokkað gróft niður í 4 gróðurflokka og var reynt að teikna skilin milli þeirra
inn á áðurnefndan uppdrátt af tilraunasvæðinu.
Gróðurflokkarnir voru skilgreindir þannig:
1. Ber melur með stökum blómplöntum og smáum lyng- og grastoppum/
þúfum (Emp. nigr., Cal. vulg., Agr.stol., og Fe.ru.). Jarðvegur er
óstöðugur, víða jarðvegsskrið. Gróðurhula 5-15%.
2. Mosi (aðallega Racomitrium sp.) og smárunnar (Cal.vulg., Emp.nigrum).
Jarðvegur er stöðugur, gróðurhula 60-10,0%, hula grasa þó heldur minni
en í nr. 1.
1+2. Samsetning á áðurnefndum flokkum, þannig að nr. 2 er í stórum þúfum
og börðum. Þekur meirihluta svæðisins. Gróðurhula mjög breytileg.
3. Graslendi með mosa, allt frá því að líkjast nr. 2 yfir í hreint
graslendi. Ríkjandi grastegundir Agr. stol., Desc. ca. , Fe.vi. og
Fe.ru.
Graslendi þekur tiltölulega lítinn hluta svæðisins og skiptins all
ójafnt á milli reita.