Fjölrit RALA - 20.01.1979, Page 65
-59-
Þekja grasa í ábornu reitum var metin mjög gróft 23/8 1976 og
virtist hun vera á bilinu 25-70% í eldri reitunum (nr. 1-11) og 5-20%
í yngri reitunum (nr. 12-23). Munur á gróðurfari í ábornum og óábornum
reitum er verulegur og vegur aukning grasa þar þyngst á metunum9 en
mikill landmunur gerir samanburð milli áburðarliða erfiðan.
Uppskera.
Uppskeran á ábornu reitunum óx verulega strax á fyrsta áburðarári
og jókst áfram mjög verulega á síðara áburðarárinu og virtist svo standa
nokkurn veginn í stað í eldri reitunum 3. árið, en þá var ekki borið á.
9umarið 1976 (23/8) var gerð uppskerumæling á öllum reitum með "dobble
samplingn-aðferð, þeirri sömu og notuð er undir stjórn Andrósar Arnalds
í beitarverkefninu. Voru metnir 20-30 0,1 m2 hringir í hverjum reit og
u.þ.b. 6 hringir klipptir í hverjum. Ekki var lagt tölfræðilegt mat á
niðurstöðurnar, en þær eru birtar í súluriti á næstu síðu.
Engin uppskerumæling hé heldur gróðurgreining var gerð sumarið 1977,
en tilraunin var skoðuð og skráðar athugasemdir.
íhmkvæmt sjónmati eru reitirnir, sem sáð var í, með töluvert þéttari
gróðurhulu og sáðgrös hafa þar lokað að mestu ógrónu moldar- og sand-
flögunum á melnum, en þau lokast hægt í reitunum, sem ekki var sáð í.