Fjölrit RALA - 20.03.1995, Blaðsíða 5

Fjölrit RALA - 20.03.1995, Blaðsíða 5
Yfirlit 1. Ástand gróðurs og jarðvegs var kannað á fjórum uppgræðslusvæðum Lands- virkjunar við Blöndu, þ.e. við Helgufell, Lurk og Sandá á Auðkúluheiði og á Öfuguggavatnshæðum á Eyvindarstaðaheiði, en heildarflatarmál þessara svæða er um 3.700 ha. Mælingar voru gerðar bæði á ábornu landi innan svæðanna og á blásnu og óblásnu landi utan þeirra. Tegundasamsetning og gróðurþekja var mæld í 249 reitum sem lagðir voru út á sniðum þvert á áburðarrákir. í reitunum voru ýmsir umhverfisþættir ákvarðaðir, svo sem staðsetning ílandslagi, landgerð, áburðargjöf, halli lands og beit, auk þess sem jarðvegsþykkt var mæld og jarðvegssýni tekin til ákvörðunar á sýrustigi og kolefnisinnihaldi. Skyldleiki gróðurs í einstökum reitum og samband hans við umhverfisþætti var kannaður með fjölbreytugreiningu (DCA-hnitun). 2. Áburðardreifing sumarið 1994 var nokkuð misjöfn og voru víða allbreiðar spildur á milli áburðarráka. Á uppgræðslusvæðunum við Helgufell, á Lurk og á Öfuguggavatnshæðum hafði verið borið á um 1/3 af yfirborði en við Sandá hafði áburði verið dreift á um 2/3 yfirborðs. 3. Verulegur munur var á landgerðum innan uppgræðslusvæðanna. í Helgufelli, við Sandá og á Öfuguggavatnshæðum var blásið land langalgengsta landgerðin en á Lurk var óblásið land meira en helmingur áboma landsins. 4. Mikill munur var á jarðvegseiginleikum og tegundasamsetningu á örfoka landi og grónum, óblásnum svæðum. Jarðvegur á blásnu landi hafði hærra sýrustig og minna kolefnisinnihald en jarðvegur á óblásnu landi. Aðeins hluti þeirra tegunda sem var að finna á gamalgrónum svæðum var einnig að finna á örfoka landi. 5. Áburðargjöf á blásið land lækkaði sýrustig en hafði lítil áhrif á kolefnisinnihald. Á gamalgrónum svæðum hafði áburðargjöf lítil áhrif á þessa jarðvegsþætti. 6. Áburðargjöf var megináhrifavaldur við mótun gróðurfars á örfoka landi. Gróður- þekja jókst mikið, einkum þekja túnvinguls, vallarsveifgrass og mosa af ættkvísl- unum Ceratodon og Bryurn, en vægi nokkurra melategunda minnkaði nokkuð. Við áburðargjöfina hafði myndast gróður sem var nokkurs konar blanda gras- lendis og melagróðurs. Áburðargjöfin hafði ekki leitt til þess að gróður væri farinn að líkjast þeim gróðri sem er að finna á gamalgrónu þurrlendi heiðanna. Áburðargjöf á óblásið land hafði ekki haft veruleg áhrif á heildargróðurþekju en vægi einstakra tegunda hafði breyst þannig að gróður var nokkuð farinn að líkjast gróðri áborins, örfoka lands. 7. Grastegundirnar vallarsveifgras, beringspuntur, snarrót, Leik-túnvingull og íslenskur túnvingull, sem sáð var til uppgræðslu, komu allar fyrir í gróðri nema snarrótin. Engin sáðtegundanna náði eins mikilli þekju og innlendi túnvingullinn en hann var sú tegund háplantna sem mesta þekju myndaði þótt aðeins hafi verið sáð til hans í litlum mæli á tveimur svæðum. 8. Beit var háð áburðargjöf. Hún var mest á nýábornu landi en mun minni á óábornu landi og þar sem borið hafði verið á fyrir ári eða fyrr. 9. Tegundir voru misjafnlega eftirsóttar. Ákveðnar tegundir voru valdar úr gróðri meðan aðrar voru látnar ósnertar. Yfírleitt voru sömu tegundir bitnar hvort sem borið hafði verið á landið eða ekki en beitartíðni jókst mikið á nýábornu landi. Eftirsóttustu tegundirnar voru lokasjóðsbróðir, grávíðir, stinnastör og ýmsar grastegundir. Tegundir sem aldrei fundust bitnar þótt þær væru mjög algengar í gróðri voru t.d. lambagras, músareyra og grasvíðir. 3

x

Fjölrit RALA

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.