Fjölrit RALA - 20.03.1995, Blaðsíða 33

Fjölrit RALA - 20.03.1995, Blaðsíða 33
UPPGRÆÐSLA Á AUÐKÚLU- OG EYVINDARSTAÐAHEIÐI nægja á rúmlega 1.400 ha sem er um 38% af heildarflatarmáli svæðanna. Þetta er litlu meira en fram kom við mælingarnar (33%) sem verður að telja mjög eðlilegt þar sem ávallt verður einhver skörun við áburðardreifingu. Stopul áburðargjöf veldur greinilega miklu álagi á gróður og jarðvegslíf. Við áburðargjöf hækkar skyndilega magn næringarefna í jarðvegi sem veldur snöggum breytingum á vaxtar- skilyrðum bæði gróðurs og jarðvegslífs. Þetta leiðir til röskunar á því jafnvægi sem ríkt hefur á viðkomandi stað. Við áburðargjöfina eykst vöxtur og lostætni plantna (t.d. Ingvi Þorsteins- son 1991) sem síðan veldur mikilli beit. Við stopula áburðargjöf má því segja að gróður og jarðvegslíf verði fyrir stöðugum sveiflum og álagi þar sem skiptast á næringarrík tímabil og næringarsnauð, og tímabil með mikilli og lítilli beit. Þessar sveiflur ráðast bæði af áburðarmagni og hversu oft er borið á. Ætla má að tíðni áburðardreifingar og magn hafi einnig veruleg áhrif á nýtingu næringarefna og útskolun úr jarðvegi. Ef mikið er borið á og gróður lítill má t.d. gera ráð fyrir slæmri nýtingu áburðar og mikilli útskolun. Því má reikna með að miklu máli skipti fyrir gróðurþróun svæðanna hvernig staðið er að áburðardreifingu, ekki aðeins hversu mikið er borið á heldur einnig hversu oft. Nokkrar ábendingar um framkvæmd upp- grœðslu á heiðunum í samningnum milli landeigenda og virkjunar- aðila var megináhersla lögð á beitargildi og þar með á fóðurframleiðslu en lítið sem ekkert tillit tekið til annarra þátta. Ekki verður því annað sagt en að markmiðin hafi verið nokkuð einhliða. Við uppgræðslu á heiðunum er æskilegt að taka tillit til mun fleiri atriða og má í því sambandi nefna stöðvun jarðvegs- og gróðureyðingar, uppbygg- ingu jarðvegs, myndun stöðugra gróðursam- félaga og viðhald fjölbreytileika. Rétt er að minna á að í raun hefur verið tekið tillit til mun fleiri þátta en fóðurframleiðslu við þær rann- sóknir sem gerðar hafa verið í sambandi við uppgræðslurnar á heiðunum (t.d. Þorsteinn Guðmundsson 1991, Þóra Ellen Þórhallsdóttir 1991, Hólmfríður Sigurðardóttir 1991). Þótt markmiðum uppgræðslu verði breytt þannig að tillit verði tekið til fleiri þátta en beitargildis þarf það ekki að þýða að krafan um fóðurframleiðslu sé sett til hliðar. Þvert á móti er líklegt að þessi mismunandi markmið geti farið saman, sérstaklega þegar til lengri tíma er litið. Má t.d. benda á að á grónu landi eykur hófleg beit yfirleitt fjölbreytni gróðurs (Borgþór Magnússon og Sigurður H. Magnússon 1992, Þóra Ellen Þórhallsdóttir 1991) og getur stuðlað að aukinni hringrás næringarefna í vistkerfinu (Chapin o.fl. 1986). Reynsla af uppgræðslunni hefur sýnt að með áburðargjöf og sáningu á örfoka land er hægt að uppfylla þær kröfur sem gerðar voru um fóður- framleiðslu (t.d. Ingvi Þorsteinsson 1991). Hins vegar er eðlilegt að athuga hvort ekki sé hægt að standa þannig að verki að það fjármagn sem lagt er í þessar framkvæmdir nýtist betur. Ef takast á að ná markvissari árangri á fleiri sviðum upp- græðslu en framleiðslu fóðurs er nauðsynlegt að endurskoða markmið og framkvæmd upp- græðsluaðgerða. Hér er ekki ætlunin að skil- greina ný markmið eða segja fyrir um hvernig staðið skal að uppgræðsluaðgerðum í smáatriðum heldur aðeins bent á nokkur atriði sem mætti breyta við framkvæmd uppgræðslustarfsins. Hvar er æskilegast að græða upp? Mikilvægara er að græða upp örfoka land og rofjaðra en að bera á algróið land. Við þetta vinnst m.a. eftirfarandi: 1. Heildarflatarmál gróins lands eykst. í ljósi þess að sauðfé hefur fækkað verulega á heiðunum skapast nú mögu- leikar á að leggja meiri áherslu á upp- græðslu en á fóðurframleiðslu. Við þetta eykst heildarflatarmál beitilands þannig að beitarálag ætti að minnka þegar á heildina er litið sem kæmi þá bæði gróðri og búfé til góða. 2. Rof stöðvast og þar með jarðvegs- og gróður- eyðing. Uppgræðsla rofjaðra og örfoka lands í nágrenni þeirra kemur í veg fyrir frekari jarðvegs- og gróðureyðingu. Rétt er að benda á að uppgræðslusvæðið á Öfug- uggavatnshæðum er geysilangur rofjaðar sem tekinn hefur verið til uppgræðslu. Þetta svæði er gott dæmi um hvar æskilegt er að græða upp. 3. Gróðri á óblásnu landi er ekki raskað. 31

x

Fjölrit RALA

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.