Fjölrit RALA - 20.03.1995, Blaðsíða 20

Fjölrit RALA - 20.03.1995, Blaðsíða 20
SIGURÐUR H. MAGNÚSSON OG BORGÞÓR MAGNÚSSON Fléttur voru í öllum tilfellum óverulegur hluti gróðurþekjunnar og var lítill munur á blásnu og óblásnu landi og sömuleiðis á ábomum og óábornum svæðum (9. mynd). Við rannsóknirnar var þekja þeirra þriggja háplöntutegunda sem mesta þekju höfðu metin í hverjum reit en aðrar tegundir ekki metnar til þekju. Því var ekki hægt að fá upplýsingar um þekju einstakra tegunda í öllum reitum og ekki hægt að reikna meðalþekju þeirra. Til þess að fá tölulegar upplýsingar um ríkjandi tegundir há- plantna var fundið í hve mörgum reitum viðkomandi tegund hafði hæst þekjugildi og síðan reiknað út í hve mörgum prósentum reita tegundin v£ir ríkjandi. Ef tvær eða allar þrjár tegundirnar höfðu sömu þekju töldust þær jafn- gildar og ríkjandi. Niðurstöður þessara útreikninga sýndu að á óábomu, blásnu landi voru túnvingull og lamba- gras ríkjandi tegundir (5. tafla). Þar sem borið hafði verið á þessa landgerð vom grastegundirnar blávingull, vallarsveifgras og túnvingull þekju- mestar og var túnvingullinn langsamlega öflug- astur en hann var ríkjandi í meira en helmingi allra reita á þessari landgerð. A óblásnum, óábomum svæðum hafði krækilyng mesta þekju í 68% reita en fjalldrapi kom næstur í röðinni með 18%. Áburður á þessa landgerð breytti þessu mynstri ekki verulega en þar voru krækilyng og túnvingull ríkjandi tegundir. Uppskera eftir beit Tekið skal fram að þær uppskerutölur sem hér 5. tafla. Ríkjandi tegundir á rannsóknasvæðunum. Reitum hefur verið skipt í fjóra flokka eftir Iandgerð (blásið - óblásið) og áburðargjöf (áborið - óáborið). f töflunni em einungis sýndar þær tegundir sem voru ríkjandi í meira en 10% reita í hverjum flokki. Sjá einnig skýringar í texta. Tölur innan sviga sýna fjölda reita í hverjum flokki. Reitir þar sem tegund var ríkjandi % Blásið Óblásið Óáborið (30) Áborið (137) Áborið (28) Óáborið (54) Blávinguil 13 11 Geldingahnappur 27 Lambagras 37 Túnvingull 30 54 35 11 Vallarsveifgras 13 Bláberjalyng 17 Fjalldrapi 13 18 Grasvíðir 11 Grávíðir 19 Holtasóley 13 1 1 Kornsúra 11 Krækilyng 39 68 Loðvíðir 13 eru gefnar sýna ekki heildaruppskeru af landinu heldur einungis þær leifar sem skildar hafa verið eftir við beit búfjár og fugla. Uppskeran var mjög breytileg, sem einnig kemur fram í hárri staðal- skekkju (10. mynd). Uppskera var mismunandi eftir landgerðum og áburðargjöf en yfirleitt var lítill munur milli svæða þegar bornar voru saman sömu landgerðir. Uppskera á óábornu, blásnu landi var að meðaltali 0,03 tonn/ha. Á sömu landgerð með áburðargjöf var uppskera nánast tífalt hærri, eða að meðaltali 0,39 tonn/ha. Upp- skera á óblásnu landi án áburðar var 0,33 tonn/ha en með áburði var hún 0,63 tonn/ha. Rétt er að benda á að hér er um fáar mælingar að ræða. « 1,0 r 1 0,8 I 0,6 u M (S> & O, P 0,4 0,2 0 0,03 039 0,63 033 iga | | ESl | He Lu Sa Öf 1« £'■> ■■■# FS- M 1 He Lu Sa Of l l l .. l He Lu Sa Óf lcaiaa'i H-h He Lu Sa Óf (4) (5) (0) (8) (8) (9) (3) (15) (2) (10) (0) (0) (1) (3) (0) (7) Óáborið Áborið Áborið Óáborið Blásið land Óblásið land 10. mynd. Meðaluppskera þurrefnis eftir beit (±staðalskekkja) á rannsóknasvæðunum. He = Helgufell, Lu = Lurkur, Sa = Sandá, Öf = Öfuguggavatnshæðir. Ofan við stöpla eru sýnd meðaltöl reita á öllum svæðum í viðkomandi flokki. Tölur innan sviga sýna fjölda reita á hverju svæði. 18

x

Fjölrit RALA

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.