Fjölrit RALA - 20.03.1995, Síða 9

Fjölrit RALA - 20.03.1995, Síða 9
UPPGRÆÐSLA Á AUÐKÚLU- OG EYVTNDARSTAÐAHEIÐI Rannsóknasvæðin Svœðislýsing Rannsökuð voru fjögur svæði. Þrjú þeirra, Helgufell, Lurkur og Sandá, eru á Auðkúluheiði (1. mynd) en hið fjórða, Öfuguggavatnshæðir, á Eyvindarstaðaheiði (2. mynd). Samkvæmt mælingum sem Upplýsinga- og merkjafræðistofa Háskóla íslands gerði sumarið 1991 (Kolbeinn Árnason og Ásmundur Eiríksson 1992) var flatarmál áborins lands á þessum stöðum um 3.700 ha sem er um 80% af heildarflatarmáli uppgræðslusvæðanna allra. Helgufell Það svæði sem hér er kallað Helgufell saman- stendur af tveimur samliggjandi svæðum sem í fyrri skýrslum hafa verið kölluð svæði 2 og 9 (t.d. Ingvi Þorsteinsson 1991) en engin glögg skil eru nú á milli þeirra. Flatarmál þess er um 700 ha (Kolbeinn Árnason og Ásmundur Eiríksson 1992). Það er um 0,8-1 km breitt og tæpir 8 km að lengd. Það liggur í vesturhlíðum Helgufells og nær frá norðurmörkum fellsins suður á móts við Hanskafell (1. mynd). Vesturmörk áborna lands- ins eru í gömlum rofjaðri og hefur áburði sums staðar verið dreift nokkuð inn á gróið land vestan hans. Austurmörk þess ná víðast hvar töluvert 1. mynd. Staðsetning uppgræðslusvæðanna þriggja á Auðkúluheiði sem rannsökuð voru. Rannsóknalínur á hverju svæði eru merktar með númerum, í Helgufelli H1-H4, á Lurk L1-L5 og við Sandá S1-S3. 2. mynd. Staðsetning uppgræðslusvæðisins á Öfug- uggavatnshæðum á Eyvindarstaðaheiði. Rannsókna- línur eru merktar með númerum, Ö1-Ö8. 7

x

Fjölrit RALA

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.