Fjölrit RALA - 20.03.1995, Qupperneq 26
SIGURÐUR H. MAGNÚSSON OG BORGÞÓR MAGNÚSSON
17. mynd. Tíðni (%) þeirra tegunda sem sáð hefur verið á uppgræðslusvæðunum. Myndin sýnir hversu algengar tegundirnar
eru, þ.e. í hve stórum hluta rannsóknareita þær fundust. Eingöngu er miðað við þá reiti sem liggja innan uppgræðslusvæða. He
= Helgufell, Lu = Lurkur, Sa = Sandá, Öf = Öfuguggavatnshæðir. S = tegund hefur verið sáð á svæðið. Tölur innan sviga sýna
fjölda reita á hverju svæði.
Beit og plöntuval
Við athuganir á beit og plöntuvali var ekki hægt
að greina á milli gæsabeitar og beitar sauðfjár.
Þegar rannsóknirnar fóru fram á heiðunum í lok
ágúst var sauðfé á öllum uppgræðslusvæðunum
en einnig var mikið um gæs. Ummerki eftir
gæsimar voru víða mikil, skítur og traðk, og
greinilegt að beit þeirra var veruleg, einkum í
áburðarrákum. Mest bar á gæs á Lurk, sérstak-
lega á nýjustu uppgræðslunum við Blöndu, en
gæsir höfðu greinilega víða leitað fanga því
ummerki eftir þær fundust einnig uppi á hæstu
hólum.
Beit var mjög mismikil eftir því hversu langt
var liðið frá því borið var á (18. mynd). Lítill
munur var á óábornu landi og því sem borið
hafði verið á fyrir einu eða fleiri árum. Á þessum
stöðum var beit óveruleg í tveimur þriðju
rannsóknarreita og enginn reitur flokkaðist þar
sem mikið bitin. Beit var hins vegar mun meiri
þar sem borið hafði verið á samsumars. Þar
fundust beitarummerki í flestum reitum og
margir flokkuðust sem mikið bitnir. Beit var þó
mjög misjöfn eftir svæðum og var hún minni á
Lurk en á hinum svæðunum þremur. Á nýábornu
landi (áborið 1994) voru t.d. mikil beitar-
ummerki í 20% reita á Lurk en í um 60% reita á
Öfuguggavatnshæðum, en á því svæði var beit
einna mest.
Athuganir á plöntuvali sýndu að tegundir voru
misjafnlega eftirsóttar (19. mynd). Sumar höfðu
háa beitartíðni en aðrar fundust hvergi bitnar.
Beitartíðnin var einnig háð áburðargjöf. Þar sem
ekkert hafði verið borið á voru fremur fáar
tegundir bitnar en sumar þeirra höfðu þó háa
beitartíðni, eins og t.d. lokasjóðsbróðir, grávíðir,
stinnastör og loðvíðir. Á stöðum þar sem borið
hafði verið á ári fyrir mælingu (1993) eða fyrr
fundust fleiri tegundir með beitarummerkjum en
beitartíðni þeirra var samt íflestum tilfellum lág.
Áburðargjöf samsumars hafði mikil áhrif á beit.
Bitnum tegundum fjölgaði þó ekki mikið en
beitartíðni eftirsóttustu tegunda hækkaði veru
I I Engin beit
F1 Nokkur beit
| Mikil beit
18. mynd. Skipting
reita (%) eftir beitar-
ummerkjum. Fjöldi reita
sem rannsakaðir voru á
hverju svæði er sýndur
innan sviga. He = Helgu-
fell, Lu = Lurkur, Sa =
Sandá, Öf = Öfugugga-
vatnshæðir. Reitum á
línum 7 og 8 á Öfugugga-
vatnshæðum var sleppt
vegna þess að þær liggja
um friðað land.
Óáborið Áborið 1993 eða fyrr
Áborið 1994
24