Fjölrit RALA - 20.03.1995, Side 34

Fjölrit RALA - 20.03.1995, Side 34
SIGURÐUR H. MAGNÚSSON OG BORGÞÓR MAGNÚSSON Eins og fram hefur komið hér á undan hefur stór hluti áboma landsins á heið- unum verið gróið land. Ef markmið uppgræðslu er að skapa stöðug gróðursam- félög er ljóst að það verður ekki gert með því að bera á gróið land í stórum stíl. Algróið land sem hefur þróast í aldir er væntanlega í sæmilegu jafnvægi við ríkjandi aðstæður og verður þar varla um bætt með mikilli áburðargjöf sem ger- breytir gróðurfari þess. Innan uppgræðslu- svæðisins á Lurk em t.d stór, algróin svæði sem ekki er ráðlegt að bera á. Hins vegar kemur vel til greina að bera lítið magn áburðar á land þar sem rofskellur eru algengar og græða þær upp. Athuganir sumarið 1994 sýndu að þetta hefur t.d. gerst sums staðar á Lurk. Þegar og ef valin verða ný svæði til upp- græðslu er mikilvægt að huga að gróðurskilyrð- um á þeim stöðum sem græða skal upp. Með því móti er hægt að koma í veg fyrir framkvæmdir sem fyrirsjáanlega munu skila litlum árangri. Varast ber t.d. að bera á svæði sem liggja tiltölulega hátt yfir sjó eða þar sem gróðurskilyrði eru af öðrum orsökum erfið frá náttúrunnar hendi. Aðferðir við uppgræðslu Á heiðunum hefur áburðardreifing og sáning grastegunda verið sú aðferð sem notuð hefur verið við uppgræðsluna. Ekki em í sjónmáli aðrar mikilvirkar aðferðir sem komið geta í hennar stað. Þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á heiðunum hafa sýnt að uppskera er einna mest þegar tiltölulega mikið er borið á, eða allt að 400 kg á ha (Ingvi Þorsteinsson 1991) og í samræmi við það var áburðarmagn fyrstu ár uppgræðslu- nnar yfirleitt á bilinu 300-400 kg/ha. Hin síðari ár hefur áburðarskammtur verið minnkaður mikið og er nú um 200 kg/ha af „Græði 9“ á eldri uppgræðslur. Þetta samsvarar um 50 kg af hreinu N á hektara og þá miðað við það yfirborð sem áburður fellur á. Eins og bent hefur verið á hér að framan er líklegt að mikil og stopul áburðargjöf (annað eða þriðja hvert ár) sé óæskileg þegar tillit er tekið til stöðugleika gróðurs og jarðvegslífs. Einnig er ljóst að þær aðgerðir sem notaðar hafa verið við uppgræðslu á heiðunum hafa ekki orðið til þess að gróður örfoka lands sem tekið var til uppgræðslu sé mikið farinn að líkjast þeim gróðri sem nú er að finna á gamalgrónu þurrlendi heiðanna og litlar líkur á að það verði í bráð með núverandi fyrirkomulagi. í ljósi þessa er ráðlegt að draga verulega úr áburðargjöf á eldri uppgræðslur en bera heldur á stærri svæði en gert hefur verið. Beitarálag mun þá væntanlega verða jafnara og minna sem mun draga úr sveiflum í vistkerfinu. Verði dregið úr áburðargjöf á eldri uppgræðslur, þar sem myndast hefur veruleg grasþekja, má ætla að ýmsar tegundir sem vaxa á grónu landi heiðanna, eins og grávíðir, krækilyng og fjalldrapi, geti numið land í uppgræðslunum í ríkari mæli. Ekki er ráðlegt að hætta áburðargjöf algerlega því þá er hugsanlegt að gróðurþekja rofni að nýju, auk þess sem uppskera verður mjög lítil. Þakkarorð Rannsókn þessi var unnin fyrir Landsvirkjun. Við gróðurmælingar vann auk höfunda Halldór Stefánsson starfsmaður Landsvirkjunar. Guð- mundur Guðjónsson og Sigrún Jónsdóttir mældu flatarmál gróðurlenda á gróðurkortum og teiknuðu þrjár myndanna. Magnús E. Sigurðsson aðstoðaði við uppsetningu á skýrslu. Lands- virkjun veitti fæði og húsaskjól meðan á útivinnu stóð. Erla Hafsteinsdóttir, Haukur Pálsson, Ólafur R. Dýrmundsson, Stefán H. Sigfússon, Sveinn Runólfsson, Þór Þorbergsson og ýmsir fleiri gáfu fjölmargar upplýsingar sem nýttust við gerð skýrslunnar. Höfundar færa öllum þessum aðil- um bestu þakkir. 32

x

Fjölrit RALA

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.