Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1971, Síða 15
RÆKTUNARTILRAUNIR Á KILI 13
Mynd 1. Fig. 1.
TILHÖGUN ATHUGUNAR
Hinn 7. júlí 1962 var valið land undir til-
raunareiti. Síðan voru reistar girðingar 24x
24 m, þannig að helt væri og friðað fyrir bú-
peningi.
Við val tilraunareitanna var leitazt við að
finna sambærilegan jarðveg á fyrirhuguð-
um sex athugunarstöðum, það er sendinn,
gróðurlausan mel. Þessir staðir liggja mis-
langt frá sjó og mishátt yfir sjávarmáli.
Syðsti athugunarstaður er í Gunnarsholti,
Rang., um 100 m yfir sjó, annar er á Tjarn-
heiði, austan við skálann í Hvítárnesi, í 450
m hæð yfir sjó, þriðji er á „Kolli“, melöldu
norðvestur af Kerlingarfjöllum, í 730 m
hæð yfir sjó, fjórði staður er á Hveravöll-
um, á mel austan við sæluhúsið, í 600 m
hæð yfir sjó, fimmti staðurinn er við Sand-
kúlufell á Auðkúluheiði í um 600 m hæð
yfir sjó, og loks var valinn staður í Kefla-
vík í Hegranesi, Skagafirði, um 50 m hæð
yfir sjó. (Mynd 1).
í Hvítárnesi og á Hveravöllum setti leið-
angur frá Veðurstofu Islands, undir stjórn
Flosa Sigurðssonar veðurfræðings, upp tæki
til mælinga á veðurfari. Var mælitækjum
komið fyrir innan afgirtra tilraunareita á
fyrrgreindum stöðum. (Mynd 2).
Sumarið 1962 var ráðinn starfsmaður til
að gera veðurathuganir í Hvítárnesi og ann-
ast gróðurmælingar vikulega á þeim til-
raunareitum, er voru á hálendinu. Einnig
var gæzlumaður Ferðafélags Islands á
Hveravöllum fenginn til þess að annast af-
lestur mæla við reii staðsettan á því svæði,
en því miður varð árangur lítill það sumar.
Sumurin 1963—1965 var starfsmaður að-
eins á Hveravöllum, en frá haustinu 1965
hefur Veðurstofa Islands starfrækt veðurat-
huganir á Hveravöllum allan ársins hring í
fullkominni veðurathugunarstöð, en gróður-
athuganir á þessum reitum hafa verið gerðar
af starfsmönnum Rannsóknastofnunar land-
búnaðarins vor og haust, og til þess farnir
sérslakir leiðangrar.
MELAR
GRAVEL