Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1971, Qupperneq 32
30 ÍSLENZKAR LANDBLINAÐARRANNSÓKNIR
cfj = 2.10 kg, cr2 = 1.71 kg,
cr3 = 3.34 kg, cr4 = 3.13 kg,
cr5 = 2.92 kg.
Stuðlarnir 5.0 og 1.43 eru við það mið-
aðir, að meðalfrávik einkunnarinnar verði
1.43 og meðaltal af öllum einkunnum verði
5.0. Með því að velja saman meðaltalið
5.0 og meðalfrávikið 1.43 eiga 99.98% allra
einkunna að liggja á bilinu 0.0—10.0. Þær
einkunnir, sem lenda utan þessara marka,
eru látnar jafngilda 0, ef þær eru neðan
við neðri mörk, en 10, ef þær eru ofan við
efri mörk.
Tvílembingar, sem ganga einir undir, eru
umreiknaðir í einlembinga, og eru leiðrétt-
ingarstuðlar, sem notaðir hafa verið í því
skyni, sýndir hér á eftir.
Leiðrétt
Lamb Gengur Lamb á móti með margf.
fætt sem undir sem drepst stuðli
Tvíl. hr. Einl. hr. Fyrir rún. 1.10
Tvíl. hr. Einl. hr. Eftir rún. 1.15
Tvíl. g. Einl. g. Fyrir rún. 1.07
Tvíl. g. Einl. g. Eftir rún. 1.12
Þess skal jafnframt getið, að sé lamb
vanið undir á, er fósturmóðurinni gefin
einkunn fyrir lambið.
b. Kerfi fyrir kynbótaeinkunn áa,
byggt á fjórum þáttum.
Kerfi íyrir útreikninga á kynbótaeinkunn
fyrir ær, þar sem hverri á er gefin einkunn
fyrir reiknað kynbótagildi með tilliti til
afurða, var byggt upp á vegum Búfjár-
erfðafræði og ullarrannsókna við Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins árið 1965.
Kerfi þetta er jafnframt notað til að
reikna út afkvæmadóm fyrir hrúta með ti 1-
liti til þess, hve afurðasamar dætur þeir
gefa.
Grundvöllurinn fyrir kerfinu er sá, að
reiknað er út aklursleiðrétt búsmeðaltal
fyrir fjóra eiginleika, sem mældir eru á
ánum, en þeir eru fjöldi fæddra lamba pr.
á, einkunn áa fyrir fallþunga lamba, sem
lýst er hér að framan, ullarmagn ánna og
ullarflokkur. Gert er ráð fyrir, að um-
hverfissamhengi og erfðasamhengi milli
þessara eiginleika innbyrðis sé 0.
Aldursleiðréttingarstuðlar fyrir frjósemi
voru fengnir með því að leggja til grund-
vallar línurit yfir frjósemi áa eftir aldri í
umfangsmikilli sænskri rannsókn (Johans-
son og Hansson, 1943), og var þar reiknað
með tölum yfir ær af sænska landkyninu,
en aldursleiðréttingarstuðlar fyrir einkunn
fyrir afurðir í kjöti og ullarmagn eru
fundnir á tölum frá Skriðuklaustri og
Hesti, og fara þeir hér á eftir:
Leiðréttingarstuðlar fyrir
Correction factors for
«0 | B 1 'CC C3
Aldur ; Age of Frjósen Fecuná 3 C ? S s -s •s s S £ score Ullarm Wool lueight
1 V. 1.40 1.40 1.10
2 V. 1.15 1.25 1.00
3 V. 1.05 1.10 1.10
4 V. 1.00 1.00 1.20
5 V. 1.00 1.00 1.30
6 V. 1.00 1.00 1.40
7 V. 1.05 1.05 1.50
8 V. 1.10 1.10 1.60
9 V. 1.15 1.20 1.70
10 V. 1.20 1.35 1.80
11 V. 1.25 1.35 1.90
12 V. 1.30 1.35 2.00
Meðaltölin fyrir frjósemi, einkunn fyrir
fallþunga og ullarmagn eru öll færð upp
á við, þannig að aldursleiðréttu búsmeðal-
tölin eru öll sambærileg við það, sem verið
hefði, ef ærnar á búunum hefðu allar verið
fullorðnar. Ullarflokkurinn hefur ekki ver-
ið leiðréttur fyrir aldri.