Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1971, Page 24

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1971, Page 24
22 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR TAFLA VIII - TABLE VIII Vik meðalúrkomu 1966—1970 frá meðalúrkomu 1931—1960, mrn. (Deviation of mean precipitation 1966—1970 from normal, mm). Stöðvar Jan. Feb. Marz Apr. ci S Júní 3 Ágúst <V C/3 3 O Nóv. Des. Árið Nautabú Hæll 5 -11 - 7 -10 28 19 1 2 5 1 2 49 20 11 8 45 -15 - 9 - 8 -47 0 -18 17 39 56 71 Eins og sjá má á töflu VII, hefur meðal- árshiti 1966—1970 verið talsvert lægri en á normaltimabilinu, munar 0.9° á Hæli, en 1.2° á Nautabúi. Kemur hér fram, svo sem á öðrum íslenzkum veðurstöðvum, að mun kaldara hefur verið þessi síðustu fimm ár en til jafnaðar á normaltímabilinu og raun- ar allar götur frá 1920. Hafa vaxtarskilyrði þessi síðustu ár því verið tiltölulega örðug og væntanlega einkum þá á hálendinu. Kemur sú lækkun einnig fram í minni upp- skeru í reitunum. Lofthita-, úrkomu- og jarðvegshitamœling- ar að sumarlagi. Rétt hefur þótt að birta til viðbótar nokkrar niðurstöður mælinga, sem gerðar hafa verið að sumarlagi á árunum 1962— 1970, ýmist í tilraunareitunum sjálfum eða í næsta nágrenni þeirra. Þykir eðlilegt að birta þessar niðurstöður, þótt hér sé um dálítið gloppóttar mælingar að ræða. Tafla IX A, B og C sýnir lofthita, úr- komu og jarðvegshita yfir nokkra sumar- mánuði við eða í námunda við tilrauna- reitina. Sumurin 1963—1965 var mælt í tilrauna- reitum nokkurn spöl austan við sæluhúsið á Hveravöllum, en haustið 1965 var athug- unarstaðurinn fluttur að nýbyggðri veður- stöð á Breiðmel norðvestan hverasvæðisins. Á öðrum stöðum eru tilfærðar niðurstöð- ur jarðvegshitamælinga í tilraunareitunum sjálfum. Lofthitamælingarnar sýna, hve seint vor- ar á Hveravöllum miðað við Sauðárkrók og Akurhól, og að meðalhiti sumarmánaðanna er mun minni á Hveravöllum en á hinum athugunarstöðunum. Á þeim fáu sambæri- legu tölum um meðalhita í jarðvegi kemur einnig fram hliðstæður munur. Virðist að jafnaði tveimur til þremur gráðum kaldara í efstu jarðvegslögum á hálendinu en í reitnum í Hegranesi, og munarins gætir einnig í meira jarðvegsdýpi. ÁLYKTUNARORÐ Hér að framan hefur verið greint frá til- högun tilraunar, sem er einn liður í rann- sóknum á ræktunarmöguleikum landsins. Að þessu sinni var komið upp girðingum og mælitækjum og sáð eða plantað jurtum til uppgræðslu á Kjalarhálendinu. Fáeinar athuganir voru einnig gerðar á villtum gróðri. Uppgræðsluplönturnar uxu eftir vonum, og fékkst strax nokkur samanburður á vexti þeirra eftir landssvæðum. Kemur einkum fram í þessari athugun, að íslenzkur túnvingull er mun þolnari þeim danska og hentar betur til uppgræðslu á fjallamelum. Þessi túnvingull virðist einn- ig vaxa örar og einkum þétta svörðin.'i hrað-

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.