Fréttablaðið - 02.12.2020, Síða 2
Enginn aðgangur
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra. ræddi í gær framlengingu á reglum um sóttvarnir til 9. desember. Áfram verður bannað að
koma f leiri en tíu saman. Við Ráðherrabústaðinn sá upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar til þess að engir fjölmiðlamenn kæmust inn fyrir dyr
nema sjónvarpsmenn og takmarkaði það möguleika ljósmyndara nokkuð. Þá var eina ráðið að leggjast á glugga. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
MENNING Þórunn Hjartardóttir
myndlistarkona hefur lesið 500
bækur fyrir Hljóðbókasafn Íslands,
f leiri en nokkur annar.
„Mér hefur alltaf fundist þetta
gefandi og gott starf,“ segir Þórunn.
„Ég get lesið allan daginn en oftast
les ég fyrir hádegi eða eftir, enda hef
ég alltaf unnið annað líka.“
Þórunn kveðst hafa byrjað að
lesa fyrir Hljóðbókasafn Íslands
árið 1994. Einnig hafi hún lesið ein-
hverja tugi bóka fyrir Storytel og
fleiri auk þess sem hún hafi byrjað
að lesa í Ríkisútvarpið ung að árum,
ýmist fyrir börn, unglinga eða eldra
fólk, í gegnum Gunnvöru Braga.
Þær upptökur séu í Hljóðbókasafni
Íslands.
Hún kveðst vera „eitt af útvarps-
börnunum“, þar sem faðir hennar,
Hjörtur Pálsson, hafi unnið hjá
RÚV.
„Amma mín, Guðbjörg Bjarman,
bjó á heimilinu okkar þar til ég var
fimmtán ára, hún sá illa en hafði
alltaf verið bókelsk. Ég man þegar
sonur hennar, Jón Bjarman, færði
henni segulbandstæki og spólur
frá Blindrabókasafninu. Það breytti
öllu hjá henni. Áður höfðum við
systur lesið fyrir ömmu til skiptis,
bæði úr blöðum og annað, þann-
ig að ég vandist upplestri strax í
æsku,“ lýsir Þórunn. „Amma átti
einhvern tíma met í hlustun bóka
hjá Blindrabókasafninu, þannig
að ég vissi snemma af safninu og
þýðingu þess.“
Blindrabókasafnið breyttist í
Hljóðbókasafn Íslands. Þórunn
segir það samkvæmt lögum aðeins
þjóna þeim sem ekki geti nýtt venju-
legar bækur. Fyrirtækin Hljóðbók
og Storytel séu á sjálfstæðum mark-
aði, þar á milli séu skil.
„Núorðið eru lesblindir og fólk
með ADHD með aðgang að Hljóð-
bókasafni Íslands og með þeim
tveimur hópum fjölgaði notendum
þess mikið,“ upplýsir Þórunn. Hún
kveðst hafa lesið margar náms-
bækur fyrir framhalds- og háskóla
gegnum tíðina en stórlega hafi dreg-
ið úr lestri fyrir háskóla. „Mennta-
málastofnun á svo að sjá til þess að
allar námsbækur fyrir grunnskóla
séu aðgengilegar sem hljóðbækur
og hljóðbækur með texta, á opnum
vef fyrir alla.“
Bækurnar sem Þórunn hefur
lesið inn á band eru mislangar og af
öllum gerðum. Erfiðast hefur henni
þótt að lesa námsbækur með mörg-
um formúlum og táknum í fögum
eins og stærð-, eðlis-, hreyfils- og
þotufræði. „En það sem hefur fengið
mesta útbreiðslu af því sem ég hef
lesið er Dalalíf, eftir Guðrúnu frá
Lundi. Það var líka uppgötvun fyrir
mig að lesa það, því þar er stórkost-
leg lýsing á aldarfari og lifnaðar-
háttum, fyrir utan ástir og örlög.“
gun@frettabladid.is
Alltaf fundist þetta
gefandi og gott starf
Þórunn Hjartardóttir var heiðruð í Hljóðbókasafni Íslands í gær fyrir lestur
fimm hundruð bóka inn á band. Safnið á upptökur úr útvarpi með Þórunni
frá því hún var tíu ára. Mest er hlustað á Dalalíf eftir Guðrúnu frá Lundi.
Blöskrar ekki að kemba gegnum
bókastafla svo þau sem eiga erfitt
með lestur fái notið efnisins.
Þórunn kann mjög vel við sig við hljóðnemann. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Núorðið eru les-
blindir og fólk með
ADHD með aðgang að
Hljóðbókasafni Íslands og
með þeim tveimur hópum
fjölgaði notendum þess
mikið.
Þórunn Hjartardóttir
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjavík-
ur hefur komist að þeirri niðurstöðu
að íslenska ríkið skuli endurgreiða
Elko ehf. alls 18,7 milljónir króna
auk vaxta. Um er að ræða innflutn-
ing á raftækjum sem falla undir gild-
issvið laga um öryggi raforkuvirkja,
neysluveitna og raffanga auk reglu-
gerðar um raforkuvirki. Til dæmis
er um að ræða spenna, mælitæki og
ýmsan búnað til raflagna. Undan-
farin ár hefur verið lagt á gjald vegna
innflutningsins sem nemur 0,15 pró-
sentum af tollverði.
Flóki Ásgeirsson, lögmaður Elko
ehf., hélt því hins vegar fram fyrir
dómi að álagning umræddra gjalda
hefði ekki byggst á fullnægjandi
lagaheimild. Um væri að ræða skatt
og um hann þyrftu lög að kveða á
um hverjir séu skattskyldir, við
hvað skatturinn skuli miðast og
hver fjárhæð hans sé. Innheimta
gjaldanna væri því ólögmæt og
gjöldin hefðu verið oftekin. Íslenska
ríkið hélt því fram að um lögmæta
skattheimtu væri að ræða en því var
héraðsdómur ósammála.
Að sögn Flóka er ljóst að dómur-
inn muni verða fordæmisgefandi
fyrir aðra gjaldtöku á sama laga-
grundvelli ef hann verður endan-
legur. Gera megi ráð fyrir að
nokkur fjöldi aðila geti átt rétt á
sambærilegri endurgreiðslu í því
tilviki. Íslenska ríkið hafi frest til
28. desember til að taka ákvörðun
um hvort málinu verði áfrýjað til
Landsréttar. – bþ
Elko lagði ríkið
í héraðsdómi
Flóki
Ásgeirsson
COVID -19 Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra hefur ákveðið
að framlengja gildandi reglugerðir
um takmarkanir á samkomum
og skólastarfi í viku í viðbót, til 9.
desember. Ákvörðun ráðherra er í
samræmi við tillögu Þórólfs Guðna-
sonar sóttvarnalæknis. Bakslag í
smiti undanfarna daga gerði það
að verkum að horfið var frá því að
slaka á sóttvörnum. Áfram verður
tíu manna samkomubann, tveggja
metra regla, grímuskylda þar sem
ekki er hægt að tryggja tvo metra og
sundlaugum, líkamsræktarstöðv-
um, börum og skemmtistöðum er
enn gert að hafa lokað. – bþ
Óbreytt ástand
í viku í viðbót
REYKJAVÍK Skólpi verður sleppt í sjó
við hreinsistöð fráveitu við Ána-
naust vegna viðgerðar á stöðinni frá
klukkan átta í dag, miðvikudag, til
miðnættis.
Búast má við aukinni gerlameng-
un í sjónum meðan á viðgerðinni
stendur. Mælast Veitur til þess að
fólk sé ekki í eða við sjóinn í nálægð
við hreinsistöðina á meðan þetta
ástand varir. Skilti verða sett upp við
stöðina og nálæga fjöru sem varar
fólk við mögulegri gerlamengun.
Berist rusl í fjörur verði þær
hreinsaðar af Veitum. – bþ
Skólp í sjó við
Ánanaust í dag
Hafðu samband í síma 568 8000
eða pantaðu gjafakort á borgarleikhus.is
Gefðu
kæró
drama
um jólin
Frá Ánanaustum.
2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð