Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.12.2020, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 02.12.2020, Qupperneq 4
REYK JAVÍK RÚV og Skóla- og frí- stundasvið Reykjavíkurborgar hafa gert með sér samstarfs- og styrktarsamning sem snýr að Ung- RÚV. Markmiðið er að unglingar í 8. til 10. bekk í Reykjavík fái tækifæri til að þróa og taka þátt í verkefnum UngRÚV þar sem áhersla er lögð á fjölbreytileika og mismunandi hæfileika unglinga, eins og segir í samningnum. Meðal annars verður þróað vef- sjónvarpsefni fyrir ungt fólk auk þess sem RÚV leggur til tækja- og tæknibúnað til að streyma frá að minnsta kosti þremur unglinga- viðburðum á vegum Skóla- og frí- stundasviðs á samningstímanum. Alls hljóðar samningurinn upp á tæpar 14,2 milljónir króna og verð- ur greiðslum skipt niður á þrjú ár. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna fögnuðu samn- ingnum í sérstakri bókun og sögðu meðal annars að góðu heilli væri meiri áhersla lögð á að láta raddir barna og ungmenna heyrast. Full- trúar Sjálfstæðisflokksins í ráðinu fögnuðu einnig áhuga RÚV á verk- efninu en hörmuðu að ekki hefðu verið sendar verðfyrirspurnir á aðrar sjónvarpsstöðvar eða athugað með áhuga þeirra á verkefninu. – bþ 14,2 milljónir króna er andvirði samningsins um UngRÚV. Ljóðabálkur eftir Hallgrím Helgason sem hrærir upp í okkur og brýnir með sinni alkunnu mælskusnilli „... skýtur Hallgrímur títuprjónum í íslensku þjóðarsálina, hittir beint í mark og sprengir hana eins og blöðru.“ RAGNHEIÐUR BIRGISDÓTTIR / MORGUNBLAÐIÐ LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga til jóla | www.forlagid.is REYKJAVÍK Reykjavíkurborg horfir fram á 11,3 milljarða króna halla á næsta ári. Meirihlutinn mælti fyrir fjárhagsáætlun næsta árs á fundi borgarstjórnar í gær. Stefnt verður að því að reksturinn verði hallalaus eftir tvö ár. Samhliða því verður kynnt viðbragðsáætlun borgarinnar gegn kórónaveirufar- aldrinum, Græna planið, sem felur í sér að ráðist verður í fjárfestingar upp á 28 milljarða á næsta ári og 175 milljarða á næstu þremur árum með aðstoð fyrirtækja í eigu borgar- innar. Meðal þess sem er boðað eru sundlaugar í Fossvogi, Elliðaárvogi og Úlfarsárdal. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, for- maður borgarráðs, segir einhverjar gjaldskrár munu hækka um 2,5 pró- sent, þá muni nokkrar gjaldskrár standa í stað, á borð við menning- arkort og hundaleyfisgjald. Sorp- hirðugjald mun hækka en það sé utan stjórnar borgaryfirvalda. Hagrætt verður um 1 prósent að meðaltali en 0,5 prósent í skóla- og félagsmálum. „Við erum að setja aukið fjármagn í fjárfestingar. Við förum ekki í blóðugan niðurskurð, frekar ætlum við að vernda störfin,“ segir Þórdís Lóa. „Með því værum við að varpa okkar vandamáli yfir í atvinnuleysi sem við vitum að kemur alltaf aftur í fangið okkar. Árið 2021 munum við styðja við með okkar fjármagni, það þýðir lántökur.“ Skuldir verði greiddar niður frá árinu 2025. Áfram verður stefnt að því að fjölga íbúðum í borginni um þúsund árlega. Meðal fjárfestinga verða íbúðakjarnar fyrir fatlað fólk og félagslegar íbúðir. Þá verði ekki dregið úr viðhaldi á byggingum í eigu borgarinnar. Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæð- isflokksins, segir að ekki sé tekið á undirliggjandi rekstri borgarinnar. „Áður en kreppan kom var borgin að safna skuldum upp á milljarð á mánuði, hér er ekki verið að taka á því. Það er ekki verið að lækka álögur á fólk, útsvarið verður áfram hæst á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Eyþór. Hann gefur ekki mikið fyrir Græna planið. „Það á að fjárfesta fyrir milljarða í malbikunarstöð og jafnframt 4,5 milljarða í nýju húsi á Tryggvagötu. Við teljum þetta ekki réttu leiðina upp úr kreppunni, það er betra að standa með atvinnulíf- inu og að byggja á ódýrari stöðum í stað þéttingarreita.“ Eyþór gagn- rýnir einnig lántökuna. „Við erum að tala um 52 milljarða lán á næsta ári. Við sjáum skuldaviðmiðin rofin, hámarkið er 150 prósent af tekjum, skuldirnar fara hátt í 170 prósent árið 2022.“ arib@frettabladid.is Milljarða halli á næsta ári Halli Reykjavíkurborgar nemur 11,3 milljörðum króna á næsta ári. Formaður borgarráðs segir að ekki verði farið í blóðugan niðurskurð. Oddviti Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir 52 milljarða króna lántöku. Meirihlutinn í borgarstjórn mælti fyrir fjárhagsáætluninni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Sveitarfélög gera ráð fyrir miklum halla Sveitarfélög um allt land gera ráð fyrir verulegum hallarekstri á næsta ári. Í Kópavogi er hallinn 575 milljónir, 1,2 milljarðar í Hafnarfirði, 499 milljónir í Garðabæ og 567 milljónir í Mosfellsbæ. Á Akureyri er búist við halla upp á 1 milljarð króna. Bæjarráð Reykjanesbæjar bað sveitarstjórnarráðuneytið um frest til að leggja fram tillögu að fjárhagsáætlun, á áætlunin að vera samþykkt í bæjarstjórn fyrir áramót. Þá er ekki búið að opinbera fjárhagsáætlun Árborgar, Fjarðabyggðar, Fjalla- byggðar eða Ísafjarðar. Við förum ekki í blóðugan niður- skurð, sem væri hægt að gera, frekar ætlum við að vernda störfin. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs Það er ekki verið að lækka álögur á fólk, útsvarið verður áfram hæst á höfuðborgarsvæðinu. Eyþór Arnalds, oddviti Sjálf- stæðisflokksins Samstarf RÚV og Reykjavíkur Ríkisútvarpið í Efstaleiti DÓMSTÓLAR „Mannréttindadóm- stóll Evrópu hefur slegið skjald- borg um dómsvaldið með þessum tímamótadómi. Ekki bara á Íslandi heldur í gjörvallri Evrópu,“ segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lög- maður um staðfestingu yfirdeildar MDE á fyrri dómi réttarins í Lands- réttarmálinu svokallaða í gær. Vilhjálmur, sem er lögmaður kæranda málsins, segir að sér hafi þótt nauðsynlegt, í ljósi þess hvern- ig staðið hafi verið að skipun dóm- ara í Landsrétt, að bera það verk- lag undir MDE. „Niðurstaðan eftir þessa tæplega þriggja ára baráttu er afgerandi, sem er ánægjuleg fyrir umbjóðanda minn. Dómararnir sautján voru einróma um niður- stöðuna sem er gott fyrir Ísland og Evrópu,“ segir hann. Kjartan Bjarni Björgvinsson, for- maður Dómarafélagsins, segir alla valdhafa stjórnskipunarinnar sæta gagnrýni í hinum nýja dómi. „Ein áhugaverðasta gagnrýnin fyrir dómstólana er að MDE er í raun að gefa merki um að dómstólar eigi að ganga lengra í endurskoðun sinni þegar um er að ræða mannrétt- indi,“ segir Kjartan Bjarni og vísar til gagnrýni dómsins á þá áherslu sem Hæstiréttur hafi lagt á réttar- vissu og stöðugleika á kostnað þess réttaröryggis sem fólgið er í sjálf- stæði dómstólanna. „Á hinn bóginn segir í loka- orðum dómsins að niðurstaðan hafi ekki áhrif á þau mál sem þegar eru dæmd þannig að það má segja að þetta sé dómur sem horfi fyrst og fremst til framtíðar í stað þess að umbylta öllu því sem þegar er orðið,“ segir Kjartan Bjarni. – aá Merki um að dómstólar eigi að ganga lengra í endurskoðun Vilhjálmur H. Vilhjálmsson. 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.