Fréttablaðið - 02.12.2020, Side 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@
frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Birkir K ristján Guð-mundsson byrjaði að skrifa texta fyrir ára-tug, þegar hann var 17 ára gamall.„Ég hef verið á kafi
í hipp-hopp tónlist og menningu
síðan ég man eftir mér. Fékk þetta
beint í æð frá eldri frændum mínum
frá því ég var svona sex til sjö ára.
Byrjaði með Wu-Tang og 2pac,
Eminem kom svo sterkur inn og
hafði mikil áhrif á mig. Í dag hlusta
ég mest á hipphopp frá Englandi.“
Birkir byrjaði að gefa út tónlist
árið 2015 og gaf svo út sína fyrstu
plötu, Hrátt Hljóð, árið 2017. Um
miðjan nóvember gaf hann út sína
aðra sólóplötu, Með enga tengingu
við tíðarandann.
„Eins og munkar og nunnur kalla
sig bræður og systur kalla ég mig
bróður því hipp-hopp eru mín trú-
arbrögð og ég munkur hipphopp-
kirkjunnar,“ segir Birkir um tilurð
listamannsnafnsins Bróðir BIG. „Ég
hef alltaf verið kallaður Biggi frá því
ég man eftir mér og eftir að ég byrj-
aði að rappa fóru margir að stytta
það einfaldlega í BIG, væntanlega
sem tilvitnun í hina ýmsu rappara
sem hafa gengið undir því nafni eins
og Notorious BIG, Big L, Big Pun, Big
Daddy Kane og fleiri.“
Tæklar alvöru málefni
Þegar Birkir byrjað að vinna að
plötunni stefndi hann á að gera
„con scious“ rappplötu, eins og hann
orðar það.
„Mig langaði að taka fyrir ýmis
málefni. Þó ég hafi vissulega nokkr-
um sinnum reynt að koma með ein-
hverja ádeilu í textunum mínum hef
ég mestmegnis bara verið að leika
mér að gera eitthvert bófarapp og
leika mér með orð. Oftast hefur það
skipt mig meira máli hvernig ég segi
eitthvað frekar en hvað ég segi en
núna, á þessari plötu, er það alveg
öfugt. Á þessari plötu vildi ég tækla
alvöru málefni og tjá mig um eitt-
hvað sem mér finnst skipta máli,“
segir Birkir.
Að sögn Birkis er platan í raun tví-
skipt, fyrri helmingurinn er þetta
mikilvæga og seinni helmingurinn
er fjör og skemmtun. „Eitthvað létt
til að vega upp á móti þessu þunga,“
bætir hann við.
Hann segir plötuumslagið endur-
spegla þessa póla á vissan hátt.
„Framan á er allt rosa fallegt en
aftan á er allt önnur saga. Meðal
málefnanna sem ég tek fyrir á
plötunni eru til dæmis stríð og
aðstæður f lóttafólks, hvernig við
komum fram við dýr og notfærum
okkur þau, pólitík og sorg. Þessi
þungi helmingur plötunnar endar
á laginu Sama hvernig sagan fer sem
er um tvo elstu vini mína sem báðir
dóu eftir neyslu á læknadópi með
stuttu millibili. Ég var byrjaður að
skrifa lagið um annan þegar hinn
dó og lagið endar á að vera um þá
báða,“ segir Birkir.
Erfiðir tímar
Upptökur á plötunni kláruðust
fyrir árslok árið 2018 og stefndi
Birkir á að gefa hana út snemma árs
2019.
„En það gekk ýmislegt á í lífi mínu
sem varð til þess að ég bara hrein-
lega hætti. Það sem hafði mest áhrif
á það var þegar afi minn dó. Hann
var eins og besti vinur minn, bjó
rétt hjá mér og ég hitti hann örugg-
lega oftar en alla aðra vini mína
til samans. Við fórum saman til
Tenerife þar sem hann veikist og
endar í öndunarvél á spítala þar,“
segir hann.
Í um mánuð eftir það var Birkir
úti hjá afa sínum og gerði lítið annað
en að heimsækja hann tvisvar á dag.
„Að horfa upp á hann svona dró
bara allan kraft úr mér. Ég fattaði
það ekki fyrr en hálfu ári seinna
að það væri ástæðan fyrir því að ég
hefði ekki gert nokkurn skapaðan
hlut í plötunni eða neinu öðru verk-
efni frá því að ég kom heim. Skiln-
aður við fyrrverandi konuna mína
eftir tíu ára samband, f leiri dauðs-
föll náinna vina og ýmislegt f leira
sem ég get ekki greint frá núna setti
svo strik í reikninginn en ég náði
mér upp úr vonleysinu og kom
mér á besta stað sem ég hef verið á
í lífinu og tókst þá loksins að klára
þetta verkefni og koma ýmsu öðru
í verk.“
Á fullt af efni
Hann segir að þrátt fyrir að megnið
af efninu á plötunni hafi verið
samið 2017 og 2018 þá f innist
honum allt eiga nákvæmlega jafn
vel við í dag.
„Ég er að vinna í fullt af efni,
nokkur mismunandi verkefni. Ég
lofa því að það mun ekki aftur líða
þrjú og hálft ár milli útgáfna,“ segir
Birkir að lokum.
Á næstunni kemur Með enga
tengingu við tíðarandann út á
vínyl. Boli og geisladiska er hægt að
nálgast hjá Bróður BIG á Instagram.
steingerdur@frettabladid.is
Bróðir BIG gerir upp
erfiða tíma á nýrri plötu
Rapparinn Bróðir BIG, Birkir Kristján Guðmundsson, gaf út fyrir
stuttu plötuna Með enga tengingu við tíðarandann. Á henni gerir
hann upp erfiða tíma, fráfall afa hans og tveggja vina, sem tók
mikið á hann. Plötuna vann hann með Bjarna Rafni Ragnarssyni.
Megnið af efninu á plötunni var samið 2017-2018 en Birkir segir textana enn eiga vel við. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Á ÞESSARI PLÖTU
VILDI ÉG TÆKLA
ALVÖRU MÁLEFNI OG TJÁ MIG
UM EITTHVAÐ SEM MÉR FINNST
SKIPTA MÁLI.
Skráðu þig á
póstlistann og
fáðu Fréttablaðið
sent rafrænt á
hverjum morgni.
Skráðu þig á
frettabladid.is,
á Facebook
eða skannaðu
QR kóðann.
2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð