Harmonikublaðið - 01.12.2018, Qupperneq 17
Flemming Viðar í þriðja sæti í Castelfidardo
Flemming Viðar Valmundsson sem nú stundar
nám viðTónlistarháskólann í Kaupmannahöfn,
tók þátt í alþjóðlegu harmonikukeppninni í
Castelfidardo á Italíu í september sl. Þetta var
í 43ja skipti sem þessi keppni fer fram og
þátttakendur skiptu hundruðum í hinum
ýmsu flokkum, en þetta er ein virtasta
harmonikukeppni í heimi. Flemming Viðar
náði þriðja sæti í sínum flokki, sem heitir
Masters Category, soloist no age limits, sem
vill segja að í þessum flokki keppa lengra
komnir í klassískum harmonikuleik án
aldurstakmarka. Keppnin var að sjálfsögðu
mjög hörð. Sigurvegarinn var Rússi og Ítalí
hlaut annað sæti. 28 hófu keppni í þessum
flokki, en 21 laukhenni. Arangur Flemmings
er frábær á öllum mælikvörðum. Hægt er að
sjá Flemming Viðar í keppninni á þessum
hlekk, http://www.accordions.com/
concorso/2018/15.htm en ýmislegt sem þarna
er leikið, flokkast tæpast undir hefðbundna
harmonikutónlist og er beinlínis ótrúlegt að
sjá tónlistarfólkið flytja það. En sjón er sögu
ríkari.
I keppninni lék Flemming Viðar þessi verk:
Wood Spirit (sænskur titill: Skogsvasen) eftir
Staffan Mossenmark 1961-
Prelúdía og Fúga í Es-dúr, BWV 852 (l.bók)
eftir J.S.Bach 1685-1750
Tears - eftir Bent Lorentzen 1930-2018
Dómnefndina skipuðu þeir Yuri Shiskin
(formaður), Dario Flammini, Raimondas
Sviackevicius, Volodomyr Runchak, Antonio
Spaccarotella, Oivind Farmen og Miljan
Bjeletic.
Flemming ViSar á sviSinu í Castelfidardo
Harmonikublaðið óskar Flemming Viðari
til hamingju með árangurinn.
ÖAÁoom
'WdeA’
&Ý ^OAAuæ/Ar íwnOAuU ÓAAs.
UeA/íS veX&wm/rir ó vÁclA&ÁpU.
HERAÐSPRENT
Miðvangi 1, 700 Egilsstaðir
Sími 471 1449 I www.heradsprent.is
print@heradsprent.is
17