Feykir


Feykir - 18.12.2019, Page 5

Feykir - 18.12.2019, Page 5
48/2019 5 Óboðleg staða Gagnrýna fyrirhyggjuleysi Sveitarstjórn Húnaþings vestra kom saman þann 12. desember, og fór yfir atburði síðustu sólarhringanna þar á undan. Ljóst var talið að allir helstu opinberu innviðir samfélagsins hafi brugðust í því veðuráhlaupi sem gekk yfir. Í sama streng tóku sveitarstjórnir Sveitarfél- agsins Skagafjarðar og Húnavatnshrepps. „Það er algerlega óviðun- andi að grunnstofnanir sam- félagsins, RARIK, Landsnet og fjarskiptafyrirtækin, hafi ekki verið betur undirbúin og mönnuð á svæðinu en raun ber vitni. Aftur á móti voru Björgunarsveitirnar og Rauði krossinn, sem rekin eru í sjálfboðavinnu, vel undirbúin og komin með tæki og fólk á staðinn áður en veðrið skall á,“ segir í bókun sveitarstjórnar Húnaþings vestra en einnig er talið að óásættanlegt sé að tengivirkið í Hrútatungu hafi verið ómannað þrátt fyrir yfirlýsingar Lands- nets um annað. Sveitarstjórn Húnaþings vestra gerir þá grundvallarkröfu að á svæðinu sé mannafli sem getur brugðist við með skömmum fyrirvara. Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skaga- fjarðar kom saman þann 12. desember og sagði í bókun sinni að það væri óviðunandi á árinu 2019 að í kjölfar óveðurs skuli tugþúsundir manna verða innlyksa án rafmagns og hita sólar- hringum saman, auk þess að njóta bágborinna fjarskipta og upplýsinga um hvað endurbótum og lagfæringum liði. Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skaga- fjarðar skorar á stjórnvöld að fara rækilega ofan í atburði liðinna daga og byggja upp nauðsynlegar áætlanir við hamförum sem þessum. „Jafnframt er mikilvægt að ráðast þurfi í við- og endurbætur á Sauðárkrókshöfn svo Gleðileg jól og farsælt komandi ár IÐNSVEINAFÉLAG SKAGAFJARÐAR Sögusetur íslenska hestsins ses | Hólum í Hjaltadal | www.sogusetur.is Gleðileg jól Sögusetur íslenska hestsins óskar landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári 152 01 8 Skagfirðingar, Húnvetningar og aðrir nærsveitamenn Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu. Skoðunarstöðvar okkar eru á Blönduósi, Hvammstanga, Sauðárkróki og Siglufirði. Minnum á tímapantanir. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Frumherja www.frumherji.is s: 570-9090 eða 570-9000 Gleðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum viðskiptin á árinu Jólakveðja VINNUSTAÐASKÍRTEINI Grétar Þór Þorsteinsson Starfsmaður kt. 300583 4749 Gilstúni 30, 550 Sauðárkrókur Kt. 600106 - 2280 Borgarteigur 10, 55 Sauðárkrókur Sjóvá sjova.is 440 2000 Gleðilega hátíð Við óskum landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Jólamarkaður í Árgarði 2. desember. Alls konar dýrindis varningur og handverk til sölu, kaffi og vöfflur með rjóma á 1000 kr. Frítt fyrir 12 ára og yngri. Opið frá kl. 14 - 17. Höfum gaman saman. Kvenfélag Lýtingsstaðahrepps Guðbjörg tekur við pöntunum á borðum eftir kl. 16:00 á daginn í síma 8677280 EFTIRMINNILEGASTA JÓLAGJÖFIN Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir Hólum í Hjaltadal Dóttirin er eftirminni- legasta jólagjöfin Ég get auðvitað ekki sagt annað en að dóttir mín, hún Anna Guðrún, sé eftirminnilegasta jólagjöfin en hún fæddist um hálf þrjúleytið á aðfangadag fyrir rétt að verða 22 árum síðan Þó það sé ekki langt um liðið hafa tímarnir breyst ansi mikið. Fyrir náð og miskunn fékk ég að fara heim á þriðja degi jóla en í dag hefði sennilega eitthvað annað verið uppi á teningnum. Ef ég ætti hins vegar að nefna veraldlega gjöf myndi ég segja að fyrsta Bubbaplatan sem ég fékk í jólagjöf frá foreldrum mínum árið 1986 hafi verið eftirminnilegasta gjöfin en Bubbi hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér frá því ég man eftir mér. Ingunn Reynisdóttir, dýralæknir í Húnavatnssýslu, sagðist í viðtali við RÚV telja að tugir hrossa hefðu drepist vegna óveðursins sem reið yfir í síðustu viku og líklega væru yfir hundrað týnd. Hún segir fjölda hrossa hafa drepist. „Já, því miður. Þetta eru, ef ég skýt laust á það núna, þá eru þetta einhverjir tugir sem eru dauðir. Yfir hundrað hross í Austur- sýslunni, segja mér björgunarsveitarmenn, eru óvís, ekki fundin ennþá. Þetta er á tugum bæja sem hross hafa grafist í fönn og svona eitt til sex dauð,“ sagði Ingunn á Morgunvaktinni á Rás 1 í gærmorgun og sagt er frá á Ruv.is. Hún sagði mörg hross örmagna og hefðu ekki getu til að sinna líkamlegum þörfum sínum eins og kasta af sér þvagi eða koma frá sér taði. /PF Hross drápust í óveðrinu Dýralæknir telur tugi hrossa hafa drepist Miklar skemmdir urðu á dreifikerfi Landsnets í óveðrinu sem geisaði í síðustu viku. MYND: RÓSBERG OTTÓSSON höfnin geti staðið áhlaup sem þessi. Þá er nauðsynlegt að ráðast án tafar í stórfellt átak uppbyggingar raforku- og fjarskiptainnviða á Norðurlandi og í fleiri landshlutum sem nái til allra sveita og bæja landsins. Það ástand sem enn varir í mörgum byggðarlögum landsins er óboðlegt með öllu,“ segir m.a. í bókuninni. Þá kom sveitarstjórn Húnavatns- hrepps saman þann 13. desember og sagði ástandið með öllu óboðlegt og lýsti yfir miklum áhyggjum af þeirri stöðu sem upp kom í Húnavatnssýslum og víðar á landinu í óveðrinu. „Ekki er boðlegt að stefna hundruðum manna út í mannskaðaveður, með tilheyrandi hættu, til að ráðast í lagfæringar á innviðum sem hefði þegar átt að vera búið að byggja upp með því öryggi sem tilheyrir. Skorar sveitarstjórn á stjórn- völd að fara rækilega ofan í atburði liðinna daga. Þá sé nauðsynlegt að ráðast tafarlaust í stórfellt átak til uppbyggingar raforku- og fjarskipta- innviða í Húnavatnssýslum og í fleiri landshlutum sem nái til allra sveita og bæja landsins. Það ástand sem enn vari í mörgum byggðalögum landsins sé óboðlegt með öllu.“ /PF

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.