Feykir - 18.12.2019, Qupperneq 6
6 48/2019
Ótraustir innviðir og orka
AÐSENT : Guðjón S. Brjánsson skrifar
Landsmenn allir hafa
á nýliðnum dögum
upplifað fátíðar afleiðingar
vetrarveðurs. Óveðrið
hefur opinberað
gríðarlega
veikleika í
grunn innviðum
landsins. Þúsundir
íbúa hafa verið
án án rafmagns
og fjarskiptasam-
band verið í
lamasessi og
er ekki að fullu
komið í eðlilegt
horf enn þegar
þetta er ritað. Yfir 800
björgunarsveitarmenn hafa
sinnt um 1000 útköllum
vítt og breitt um landið og
sem fyrr staðið vaktina með
miklum sóma, hafa unnið
gott starf sem gerir hvern
Íslending stoltan.
Rafmagnsleysið og slitrótt
fjarskipti hafa gífurleg áhrif
á öryggi og líf fólks. Það er
óásættanlegt að fólk og fyrirtæki
þurfi að búa við slík skilyrði.
Það er grundvallaratriði að
raforkuöryggi sé tryggt bæði í
þéttbýli og dreifbýli. Í því felst
að stjórnvöld í fyrsta lagi tryggi
að fjármunum sé
varið í uppbyggingu
raforkukerf is ins
og að fjármunum
fengnum, þá sé í
öðru lagi greiðlega
og hindrunarlaust
hægt að vinna
að úrbótum á
flutningskerfi raf-
orku og tryggja,
a.m.k. að því leyti,
öryggi fólks um
landið allt.
Á þessu hefur verið mikill
misbrestur. Eftir þá reynslu
sem við erum enn að vinna úr
virðist harla ljóst að endurskoða
þurfi landsskipulag það sem
snýr að viðhaldi innviða og
uppbyggingu þeirra. Þetta á
við um flutningskerfi raforku,
fjarskiptin, vegi, hafnir og
flugvelli svo eitthvað sé nefnt.
Þetta er sameiginlegt verkefni
okkar allra sem við eigum að
nálgast yfirvegað og af þeirri
alvöru sem tilefnið sannarlega
gefur.
Við þurfum að yfirfara
ýmsa þá lagaþætti sem snúa
að umhverfisvernd, skipulagi
og úrskurðamálum, gera úr-
vinnsluna markvissari og horfa
hiklaust til þjóðaröryggis í því
sambandi, til almannahags-
muna og hlutskiptis íbúa lands-
byggðar sérstaklega. Mikilvægt
er að árétta að með þessu er ekki
sneitt að núverandi umhverfis-
og skipulagsákvæðum eða
verndarsjónarmiðum. Vistvæn-
ar aðgerðir og sjálfbærni á og
þarf að vera stöðugt leiðarljós
en við höfum ekki haldið vöku
okkar og breytinga er þörf.
Innviðir, hvort sem átt er
við raforku, menntakerfi, sam-
göngur eða heilbrigðisþjónustu,
eiga að vera með þeim hætti
að sem minnstu máli skipti
hvar fólk kýs að búa. Það hefur
ekkert skort á loforð og fyrirheit
en niðurstaðan er enn sem
fyrr; íbúum á landsbyggðinni
er haldið í stöðugri óvissu með
hver staðan verði til framtíðar.
Það er samdóma álit þing-
flokks Samfylkingarinnar að
það skuli vera forgangsverkefni
stjórnvalda að jafna búsetu-
skilyrði og stuðla að velferð og
öryggi fólks um allt land.
Ég leyfi mér einnig sem
almennur borgari að koma
hér í lokin á framfæri þökk-
um til viðbragðsaðila, björg-
unarsveitarfólks, heilbrigðis-
starfsmanna, hjálparsamtaka og
allra þeirra sem lagt hafa hönd
á plóg marga undanfarna sólar-
hringa og eru jafnvel enn að
störfum á landssvæðum sem illa
urðu úti, með ósk um gleðilega
jólahátíð,
Guðjón S. Brjánsson
alþingismaður NV kjördæmis
Sérfræðikomur
í janúar 2020
www.hsn.is
16.–17. JANÚAR
Orri Ingþórsson
kvensjúkdómalæknir
20.–21. JANÚAR
Sigurður Albertsson
alm. skurðlæknir
Tímapantanir í síma 432 4200