Feykir - 18.12.2019, Page 8
8 48/2019
Andlega nærandi viðburðir á aðventu
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi
Síðastliðinn sunnudag,
þann 15. desember, voru
haldnir Stofutónleikar í
Heimilisiðnaðarsafninu á
Blönduósi. Í þetta sinn
voru það hjónin Hugrún
Sif Hallgrímsdóttir og Jón
Ólafur Sigurjónsson sem
báru hitann og þungann
af tónleikunum en þeim
til aðstoðar voru hjónin
Sigríður Stefánsdóttir og
Halldór Ólafsson.
Efnisskráin var fjölbreytt
og seinni hluti hennar
með jólalegu ívafi.
Tónleikarnir voru sérstaklega
vel sóttir og skapaðist náinn
samhljómur milli flytjenda og
gesta sem er einmitt einkenni
góðra stofutónleika.
Í upphafs og lokaorðum
Elínar safnstjóra kom fram
m.a. að það væri með Stofu-
tónelikana eins og Sumarsýn-
ingarnar að þeir væru ólíkir á
milli ára. Einnig að oft á tíðum
hafi þjóðþekkt fólk stigið á
stokk í safninu en ekki væri
síður ánægjulegt að fá heima-
fólk sem væri í raun ríkidæmi í
héraði
Þess skal getið að Uppbygg-
ingarsjóður styrkti Stofutón-
leikana en án þess stuðnings
væri safninu vart gerlegt að
standa fyrir þeirri nýbreytni
og frumkvæði í menningarlífi
héraðsins og jafnframt þjóna
þeim markmiðum að vera
lifandi og fjölþætt menningar-
stofnun.
Laugardaginn 7. desember
fór fram viðburðurinn Upp-
lestur á aðventu í Heimilis-
iðnaðarsafninu. Þetta er
árlegur viðburður þar sem
kynntar eru og lesið upp úr
nýútkomnum bókum.
Sr. Sigurður Ægisson
kynnti og las upp úr bók sinn
Gústi – alþýðuhetjan, fiski-
maðurinn og kristniboðinn.
Þetta er ævisaga Gústa sem
gjarnan var kallaður „guðs-
maður“.
Þá kynnti Sigurður Péturs-
son, fyrrum dýralæknir, og las
upp úr bók sinni Innbrotið
sem er sjálfstætt framhald af
bókinni Út í nóttina sem kom
út í fyrra.
Sigurjón Guðmundsson,
TEXTI & MYNDIR
Elín S. Sigurðardóttir
einn af lestrarvinum safnsins,
las upp úr bókinni Kindasög-
ur. Höfundar eru Aðalsteinn
Eyþórsson og Guðjón Ragnar
Jónasson. Í bókinni eru rifj-
aðar upp sögur af íslenskum
kindum og ýmsum afrekum
þeirra.
Þá las Kolbrún Zophonías-
dóttir sem einnig er lestrar-
vinur safnsins upp úr bókinni
Uppskriftir stríðsáranna eftir
Önnu Dóru Antonsdóttur og
meðhöfundur hennar er Krist-
rún Guðmundsdóttir. Um er
að ræða mjög svo sérstaka
uppskriftarbók sem byggir á
handskrifuðum matreiðslu-
bókum systranna Sigurlaugar,
móður Önnu Dóru, og Guð-
bjargar Sveinsdætra frá Tjörn
á Skaga en þær stunduðu
báðar nám við Kvennaskólann
á Blönduósi á stríðsárunum.
Góður rómur var gerður að
kynningu og upplestri sem var
í senn áhugaverður og
skemmtilegur enda um afar
ólíkar bækur að ræða.
Í lok beggja þessara
viðburða var gestum boðið
upp á heitt súkkulaði og
smákökur og áttu þeir notalega
samverustund í kaffirými
safnsins í vetrarhúminu hér á
Blöndubökkum.
Ástrós, Halldór og Sigga, (Ástrós Elísdóttir var kölluð til liðs í lokalaginu).
Stofutónleikar. Frá vinstri, Halldór, Sigga, Hugrún og Jonni.
Upplestur á aðventu - hluti hlustenda.
Hugrún og Jonni.
Upplestur á aðventu, frá vinstri: Sigurður Pétursson, Kolbrún Zophoníasdóttir, Sigur-
jón Guðmundsson og Sr. Sigurður Ægisson.