Feykir - 18.12.2019, Page 10
10 48/2019
Fastur kjarni er rúmlega 30
manns og skiptist kórinn í tvennt
við hefðbundnar messur þar sem
Víðimýrarhlutinn syngur við
sína kirkju en hinir á Reynistað
og í Glaumbæ. Saman eru svo
kórarnir við allar afhafnir á
Löngumýri. Þessi samheldni
hópur á að baki allnokkrar
utanlandsferðir, þá síðustu mjög
svo eftirminnilega til Kanada
2012 svo nú þótti kominn tími til
að bregða sér aftur út fyrir
landsteinana. Séra Gísli í Glaum-
bæ stundaði nám í Edinborg í
byrjun prestskapar og hefur
haldið þar góðum tengslum
síðan. Hann var því sjálfkjörinn
að útvega okkur stað til að syngja
á og sjá um fararstjórn ásamt
TEXTI & MYNDIR
Gunnar Rögnvaldsson
Evelyn á Lýtingsstöðum sem
auðvitað er svo atvinnumaður í
skipulagningu ferða svo hún tók
að sér að finna hagstæðan
ferðamáta og gistingu.
Þetta var um sumarmálin
síðustu og á fáum dögum var
búið að ganga frá öllu og
fimmtíu manns komnir á lista,
eða sá hópur sem mætti á völlinn
Kirkjukór Glaumbæjarprestakalls í söngferð til Skotlands
Svangar ferðatöskur en
tilhlökkunarglampi í augum
14. nóvember með svangar
ferðatöskur en tilhlökkunar-
glampa í augum. Það er hentugt
að fara til Skotlands, veðurfar
líkt og heima og enginn
tímamunur að vetrinum. Eftir
stuttan akstur frá Glasgow
fengum við inni á ágætu hóteli í
miðborginni og hinir fyrstu
komnir í kaupaham upp úr
hádegi á fimmtudegi með alla
helgina framundan. Edinborg er
falleg og aðgengileg borg með
kastalann fræga við endann á
götunni The Royal Mile þar sem
hann gnæfir yfir dalnum sem
skiptir borginni í gamla og nýja
hlutann. Samhliða dalnum ligg-
ur svo Prinsess Street sem er aðal
verslunargatan og þar var
nokkuð tryggt að rekast á
Íslendinga þessa helgi og ekki
bara úr okkar hópi því borgin
var full af ferðafólki. Bar m.a. til
að þessa dagana opnaði hinn
árlegi jólamarkaður sem stað-
settur er í dalnum og dregur til
sín fjölmenni ár hvert með tívolí,
Þessir kunna til verka, organistarnir Stefán Gíslason og Graham.
Um miðjan nóvember tóku félagar í kirkjukór Glaumbæjarprestakalls ásamt mökum
sér ferð á hendur til höfuðstaðar nágranna okkar í Skotlandi, hinnar vinalegu
Edinborgar sem margir Íslendingar þekkja. Kórinn, sem skipaður er söngfólki úr
Víðimýrar-, Reynistaðar- og Glaumbæjarsóknum og stjórnað af Stefáni Gíslasyni,
æfir alla jafna reglulega frá veturnóttum til jóla og eftir þörfum þess utan nema
einhver stórvirki séu í undirbúningi s.s. plötuútgáfa eða sérstakar athafnir.
Gengið til messu.
Kórinn gerir sig kláran.