Feykir - 18.12.2019, Síða 14
14 48/2019
Ingibjörg Arnheiður
Halldórsdóttir, eða Inga Heiða
eins og hún er jafnan kölluð, er
uppalin í Óslandshlíðinni í
Skagafirði. Hún býr í Reykjavík
og starfar einmitt við bókhald,
þó í öðrum skilningi en við
leggjum í það orð hér í þessum
þætti. Inga Heiða er mikill
bókaormur og reglulega birtir
hún skemmtilega pistla á
Facebooksíðu sinni sem hún
kallar Bókahorn Ingibjargar. Þar
segir hún vinum sínum, á
hnittinn og skemmtilegan hátt,
frá bókunum sem hún hefur
verið að lesa og leggur mat á
þær og vafalaust eru þeir
margir sem sækja hugmyndir
að lesefni til hennar.
Hvers konar bækur lestu helst?
Ég les nær eingöngu skáldsögur,
bæði íslenskar og erlendar en
mér finnst ævisögur líka mjög
skemmtilegar.
Hvaða bækur voru í uppáhaldi
hjá þér þegar þú varst barn?
Enid Blyton var í miklu uppá-
haldi en ég er ekki viss um að ég
gæti lesið eina bók eftir hana
núna. Bækurnar um Elías eftir
Auði Haralds slógu í gegn á
sínum tíma og ég gæti alveg
hugsað mér að lesa þær aftur.
Þegar unglingsárin hófust þá
byrjaði ég að lesa Ísfólkið og svo
Rauðu seríuna, ástarsögurnar
sem allar eru eins.
Hver er uppáhaldsbókin af
þeim sem þú hefur lesið
gegnum tíðina? Karítas án
titils, Náðarstund, Bókmennta-
og kartöflubökufélagið, Ljósa,
Næturgalinn, Húshjálpin, Gler-
kastalinn, Bókaþjófurinn, svo
nokkrar séu nefndar.
Hver er þinn uppáhaldsrithöf-
undur og hvers vegna? Astrid
Lindgren og J.K. Rowling. Þær
hafa báðar mikla náðargáfu og
sköpuðu tímalausa undraveröld
og ég veit að börn og fullorðnir
munu halda áfram að lesa
bækurnar þeirra um ókomna
tíð.
Hvaða bækur eru á náttborðinu
hjá þér þessa dagana? Ég er
alltaf með bókastafla á nátt-
borðinu sem er auðvitað stór-
( BÓK-HALDIÐ ) frida@feykir.is
Dreymir um heimsókn í sænsku
Smálöndin og Ólátagarð
Ingibjörg Arnheiður Halldórsdóttir / frá Miklabæ í Óslandshlíð
„Í hámarki gelgjunnar að lesa Rauðu seríuna! Vandræðalegt,“ segir Inga Heiða um
þessa mynd. MYND ÚR EINKASAFNI
samtímafólki sínu og mark-
miðið er að lesa allar bækurnar
hans. Ég er meira að segja
framan á einni bókinni og ég
man hvað mér þótti myndin
vera asnalega en hún er máluð
eftir ljósmynd. Nú þykir mér
ægilega vænt um þessa mynd
og bók.
Hefur þú heimsótt staði sem
tengjast bókum eða rithöf-
undum þegar þú ferðast um
landið eða erlendis? Ekki svo
ég muni til en mig dreymir um
að heimsækja sænsku Smá-
löndin, til dæmis í Ólátagarð.
Ef þú ættir að gefa einhverjum
sem þér þykir vænt um bók,
hvaða bók yrði þá fyrir valinu?
Ég þreytist ekki á að mæla með
bókinni Glæpur við fæðingu
eftir Trevor Noah sem ólst upp
við sérstakar aðstæður í Suður
Afríku en móðir hans er svört
og faðir hans hvítur Evrópubúi
og þegar Trevor fæðist þá var
það glæpur að blanda saman
kynþáttum, þannig að hann
fæddist beinlínis sem glæpur
(útskýring á nafni bókarinnar).
Hann segir frá uppvexti sínum
sem er ótrúleg frásögn. Trevor
stjórnar The Daily Show ásamt
því að vera vinsæll uppistandari
en hann er einmitt væntanlegur
til Íslands næsta vor með
uppistand. Fyrst hlustaði ég á
hljóðbókina, Born a crime, en
Trevor les hana sjálfur og ég
mæli svo innilega með því að
hlusta á þann lestur. Algjörlega
frábær.
hættulegt þegar maður býr í
landi þar sem jarðskjálftar eru
tíðir. Ég er núna á milli bóka en
var að ljúka við danskan
krimma sem heitir Kastaníu-
maðurinn, fínasta afþreying.
Ertu fastagestur á einhverju
bókasafni? Ég fjárfesti í bóka-
safnskorti í lok sumars og sé
ekki eftir því.
Áttu þér uppáhaldsbókabúð?
Engin uppáhalds en ég elska
bókabúðir og get eytt löngum
tíma í slíkum verslunum.
Hvað áttu margar bækur í
bókahillunum heima hjá þér?
Þær eru ansi margar og ég vil
helst ekki vita fjöldann. Það er
skiptibókahilla á vinnustaðnum
mínum, þar skil ég oft eftir
bækur til að grisja heima.
Hvað kaupirðu eða eignast að
jafnaði margar nýjar bækur yfir
árið? Líklega 20 bækur eða
fleiri. Á árinu gerðist ég
áskrifandi hjá bókaforlaginu
Angústúru og það er ótrúlega
skemmtilegt að fá nýja og
vandaða bók í pósti.
Eru ákveðnir höfundar/bækur
sem þú færð alltaf í jólagjöf?
Nei, ekki eftir að ég varð full-
orðin.
Hefur einhver bók sérstakt gildi
fyrir þig? Afi minn, Jón
Bjarnason frá Garðsvík var
nokkuð afkastamikill rithöf-
undur og skrásetti sögur af
EFTIRMINNILEGASTA JÓLAGJÖFIN
Signý Bjarnadóttir Garðabæ
Bestu gjöfunum
er ekki hægt að pakka inn
Bestu gjafirnar eru þær sem
ekki er hægt að pakka inn í fínan
pappír með skrautböndum.
Fyrir þremur árum veiktist
dóttursonur minn, tveggja og
hálfs mánaðar gamall, af RS
vírus. Hann lá þungt haldinn
á spítala vikurnar fyrir jól og
foreldrarnir vöktu yfir honum.
Sem betur fer var þetta sterkur
strákur og tókst með hjálp
lækna, hjúkrunarfólks og for-
eldranna að komast í gegnum
þessa eldraun. Þau fengu heimferðarleyfi 22. desember. Betri jólagjöf
er ekki hægt að hugsa sér. Hann er nú þriggja ára sterkur og hraustur
strákur.Myndin sem bókarkápan á bók afa Ingu Heiðu er máluð eftir. Inga Heiða er hér
(t.h.)ásamt frænku sinni, Sigríði Íris Hallgrímsdóttur, sem einnig er barnabarn
Jóns. Þær eru hér í góðum félagsskap með hundinum Sámi og ónafngreindri
krúttlegri kvígu.
MYND ÚR EINKASAFNI
EFTIRMINNILEGASTA JÓLAGJÖFIN
Ingibjörg Jónsdóttir Syðsta Ósi, Miðfirði
Sængin er enn notuð
Eftirminnilegasta jólagjöfin
mín er sæng sem föðuramma
mín, Guðfinna Jónsdóttir frá
Ósi, gaf mér þegar ég var átta
ára gömul.
Hún er enn notuð í foreldra-
húsum mínum. Ástæðan hugsa
ég að sé að mér fannst ég vera
orðin svo fullorðin að vera að fá
stóra sæng að gjöf. :)