Feykir - 18.12.2019, Side 21
48/2019 21
Nokkrar myndir úr vetrarríkinu á Króknum
Jólasnjór og -ljós
-
Heilir og sælir lesendur góðir.
Byrjum að þessu sinni með fallegri vísu eftir
Gunnlaug P. Sigurbjörnsson.
Ísland finnst mér yndislegt.
Öðrum löndum fegra,
enda hef ég aldrei þekkt
annað dásamlegra.
Hannes Jónsson frá Spákonufelli leggur
okkur til tvær næstu vísur.
Veginn ranga við ég bý
vafinn angri kífsins.
Ég er fangi innan í
öldugangi lífsins.
Á því virðist ekkert hik
æra og dyggðir fúna.
Hræsni, loforð, lygi og svik
lætur mörgum núna.
Hinn leyndardómsfulli og hógværi, yfir
sínum vísum, þrátt fyrir að vera með
snjöllustu hagyrðingum síns tíma, Jón
Jónsson, bóndi á Eyvindarstöðum í
Blöndudal, er höfundur að næstu vísu.
Skekur Kári skýin grá,
skellur bára á dröngum.
Frjósa tárin fölum á
fjólu og smáravöngum.
Önnur vísa kemur hér eftir Jón og er það
með magnaðri hringhendum sem sést hafa
á prenti.
Fræ að láði falla í dá
fjötruð ráðum kífsins.
Tónar hrjáðir hrekjast á
hörpuþráðum lífsins.
Ekki skemmir næsta vísa hringhenduformið.
Höfundur Jón Pálmi Jónsson.
Nóttin tauminn tekur brátt
tjöld gullsaumast fjalla.
Inn í drauma - djúpið blátt
dagsins straumar falla.
Fleiri hringhendur eru til eftir Jón.
Varla jafna um villur má
veg til hafnar finna,
meðan hrafnar hoppa á
hræjum nafna sinna.
Gaman að heyra næst frá Jónasi
Tryggvasyni, frá Finnstungu.
Þótt mér vinnist seint að sjá
salarkynnin lista há,
fæ ég inni ennþá hjá
æsku minnar söngvaþrá.
Gott finnst mér næst að rifja upp þessa kunnu
vísu hér áður fyrr eftir Ólínu Jónasdóttur.
Jesús háum himni á
heyr þá bæn og virtu,
lofaðu mér að leggja frá
landi í sólarbirtu.
Vísnaþáttur 750 Þar sem jólin nálgast er vel við hæfi að rifja næst upp nokkrar vísur sem tengjast þeirri
hátíð. Markús Jónsson, frá Borgareyrum,
mun einhverju sinni hafa sent góðum vini
svofellda kveðju:
Vetrarmyrkrið víkja fer,
vermir aftur sólin.
Allt sem gott og göfugt er
gleðji þig um jólin.
Jón Helgason, sem mun hafa verið vélstjóri
á Örvari frá Skagaströnd, mun hafa lagt
eftirfarandi spurningu fyrir félaga sinn í
desember 1987.
Enn er bræla Bjöggi minn,
basla ég með tólin.
Ætlar karlinn ekki inn
áður en koma jólin.
Bjöggi, sem var Karlsson og einnig vélstjóri
á Örvari, gat einnig gert vísur.
Þessi sjóferð þreytir mann,
þumbast karlinn bara.
Þegar loksins lægir hann
í land er mál að fara.
Ef áfram skal halda með efni sem tengist
jólahátíð er gaman að rifja næst upp vísu
sem mig minnir að sé eftir Elivoga-Svein.
Stanslaust kastar straumurinn
steinum fram í ósinn.
Í þrítugasta og sjötta sinn
sé ég jólaljósin.
Einhvern tímann mun Eyjólfur R. Eyjólfsson
hafa ort svo í aðdraganda jóla:
Guðsson á stalli ungmær ól
af því fást sagnir skýrðar.
Síðan menn halda heilög jól
honum til lofs og dýrðar.
Því miður man ég ekki höfund að næstu
vísu, sem er vel gerð og tengist jólahátíðinni.
Væri gaman að heyra frá lesendum ef þeir
kannast við hana.
Þó að fjúki fönn í skjól
fölni allt sem lifir,
hillir undir heilög jól
hæsta tindinn yfir.
Kemur þá víst að lokum þessa þáttar. Minnir
að lokavísan sé eftir Gísla Ólafsson, héðan
frá Eiríksstöðum.
Margur lúinn labbar hér
lífs um fúakeldur.
En guð og trúin gefa mér
geislabrú sem heldur.
Langar að þakka ykkur lesendur góðir fyrir
góð samskipti á árinu sem nú er senn liðið
og bið ykkur þar með að vera sæl að sinni.
/ Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi
Sími 452 7154
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) palli@feykir.is
Það vantaði ekki snjóinn þegar óveðrið gekk niður í lok síðustu
viku og ekki laust við að jólaljósin hafi glatt augað. Hér eru
nokkrar myndir sem blaðamaður Feykis festi á kort sl. föstudag
í gamla bænum á Sauðárkróki. /ÓAB