Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 07.06.2009, Blaðsíða 10

Sjómannadagsblaðið - 07.06.2009, Blaðsíða 10
10 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 7. JÚNÍ 2009 Flestir eru þeirrar skoðunar að skynsamlegt sé að nýta auðlindir hafsins með skynsamlegum og sjálfbærum hætti og tryggja þannig jafnvægi lífríkisins. Það hefur í för með sér að óskynsamlegt hlýtur að teljast að sleppa alfarið afar stórum og mikilvægum hlekkjum í fæðukeðju hafsins eins og segja má að hafi verið raunin hér við land frá 1986 að því er varðar nýtingu á tveimur af nytjastofnum hvala; hrefnu og langreyði. Sumum tegundum hvala hefur fjölgað mikið á Íslandsmiðum á umliðnum árum t.d. hnúfubak og langreyði. Rannsóknir Hafrannsóknastofnunarinnar benda eindregið til þess að ástand hrefnustofnsins og langreyðarstofnsins séu í mjög góðu ástandi og á það líklega einnig við um fleiri stofna, svo sem sandreyðar og hnúfubaks. Alls eru tólf tegundir hvala við landið og viðurkenndar aðferðir við talningu þeirra benda til að hrefnur í Norður-Atlantshafi séu nálega 200 þúsund og langreyðar um 50 þúsund. Þar af er talið að hrefnur á íslenska stofnsvæðinu (Mið Atlantshafsstofn), séu um sjötíu þúsund og langreyðar um tuttugu þúsund. Veiðar á hrefnu í vísindaskyni voru stundaðar frá árinu 2003 til 2007, alls 200 dýr. Jafnframt voru veiðar á hrefnu og langreyði stundaðar í atvinnuskyni frá haustinu 2006 er ráðherra gaf út leyfi til veiða á níu langreyðum og þrjátíu hrefnum enda var Ísland þá ekki lengur háð banni við hvalveiðum í atvinnuskyni. Kom Hvalur 9 með fyrstu langreyðina í 17 ár að bryggju í Hvalfirði að morgni 22. október að viðstöddu miklu fjölmenni fólks. Frá 2003 hafa alls verið veidd 253 dýr, þar af 246 hrefnur. Vegna markaðsaðstæðna varð hlé á veiðum á langreyði árin 2007 og 2008 en hrefnuveiðum var haldið áfram og í vor hófust þær í maí. Í upphafi ársins var svo gefin út reglugerð sem gildir til fimm ára, en hún kveður m.a. á um heimild til árlegra veiða á langreyðum í samræmi við veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Á þessu ári er heimilt að veiða 150 langreyðar og 100 hrefnur. Þá þegar við útgáfu reglugerðarinnar var Hvalur 8 tekinn í slipp en hann hefur legið óhreyfður við bryggju í 21 ár. Hvalur 9 var svo að segja tilbúinn enda gerður klár fyrir veiðarnar haustið 2006 eftir að hafa legið óhreyfður í 17 ár. Nú þegar hafa hrefnuveiðibátarnir komið með nokkrar hrefnur að landi og Hvalur 8 og 9 eru um það bil að hefja veiðar. Afli þeirra fer að venju til vinnslu í hvalstöðinni í botni Hvalfjarðar, þar sem allt er nú til reiðu. Í raun er þar yfir að líta eins og hvalveiðum hafi aldrei verið hætt. Munar um allt Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, er bjartsýnn á framhaldið og segir ljóst að þjóðarbúið muni um þær tekjur sem fáist fyrir hvalaafurðirnar á Japansmarkaði og þau um það bil 200 störf sem hvalaútgerðin hafi í för með sér, á sjó, við vinnslu og við afleidd þjónustustörf. „Ef við fáum að starfa í friði með sama hætti og fyrir hvalveiðibannið má alveg gera ráð fyrir að útflutningsverðmætin verði að minnsta kosti 2% af útflutningi sjávarafurða eins og það var á árum áður. Við Íslendingar erum heppnir að vera ekki í Evrópusambandinu núna því þar á bæ mega menn ekki heyra minnst á hvalveiðar. Evrópusambandið kom t.d. á síðasta ári í veg fyrir frumbyggjaveiðar Grænlendinga á tíu hnúfubökum næstu fimm árin þrátt fyrir að fyrir lægi samþykkt vísindanefndar Hvalveiðiráðsins á því að veiðarnar myndu ekki hafa nein áhrif á stofninn,“ segir Kristján. Hann gerir ráð fyrir að eitthvað af langreyðarkjötinu verði selt hér innanlands ásamt rengi sem birtast muni á næsta þorrablóti. Nefnd, sem falið var að semja nýtt lagafrumvarp um hvalveiðar, leggur til að innheimt verði 50 þúsund króna gjald fyrir hvert veiðileyfi og sérstakt veiðigjald fyrir hvert dýr sem veiðist. Fari það gjald eftir stærð dýranna og nemi frá 10 þúsund krónum til 1 milljónar. Aðspurður um tillögur nefndarinnar segir Kristján að í grundvallaratriðum sé hann ekki andvígur veiðigjaldinu enda hafi verið greitt slíkt gjald af hvalveiðum um langt árabil. „Það gera sér fáir grein fyrir því að við höfum alla tíð greitt veiðigjald af hvalveiðum, allt frá 1948. Það heitir hvalveiðigjald. Ég tel mikilvægt að sjávarútvegurinn sitji við sama borð í þessum efnum sem öðrum, en ekki að hvalveiðarnar sem slíkar verði teknar út og sérkröfur settar á hann,“ segir Kristján Loftsson. Laus undan núllkvóta Árið 1982 samþykkti Alþjóða- hvalveiðiráðið núllkvóta, eða tímabundið bann við öllum hvalveiðum í atvinnuskyni. Kom bannið til framkvæmda 1986. Ísland ákvað að hlíta banninu enda sagt tímabundið til fjögurra ára, en gekk engu að síður úr ráðinu 1992 er stjórnvöldum þótti sem meirihluti aðildarþjóða Hvalveiðiráðsins tæki engum vísindalegum rökum um veiðiþol hvalastofna á norðurslóðum. Stofnaði Ísland ásamt Noregi, Færeyjum og Grænlandi, Norður- Atlantshafssjávarspendýraráðið, NAMMCO, í því skyni að uppfylla skyldur sínar samkvæmt 65. gr. hafréttarsamningsins til að eiga samstarf á vettvangi viðeigandi alþjóðastofnana um verndun hvala, stjórnun veiða á hvölum og rannsóknir á hvölum. Ísland gekk á ný í Alþjóðahvalveiðiráðið árið 2002, þó með fyrirvara um hvalveiðibann ráðsins. Stjórnvöld hafa um langt árabil varið tugum milljóna króna til kynningarstarfs á málstað Íslands í hvalamálum enda hefur alltaf verið markmiðið að hefja veiðarnar á ný hér við land þegar aðstæður leyfðu. Hafa veruleg áhrif á viðgang fiskistofna Samkvæmt útreikningum sem birtust í tveim greinum í viðurkenndu vísindatímariti árið 1997 éta hvalir við landið samtals árlega um sex milljónir tonna af fæðu, þar af um Loksins eru hvalveiðar hafnar á ný Munu skila miklum verðmætum í þjóðarbúið og endurvekja mannlíf í Hvalfirði og gamla en glæsilega útgerðarsögu íslensku hvalveiðiþjóðarinnar. Gísli Víkingsson hvalasérfræðingur. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf.

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.