Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 07.06.2009, Blaðsíða 26

Sjómannadagsblaðið - 07.06.2009, Blaðsíða 26
26 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 7. JÚNÍ 2009 ÓSKUM SJÓMÖNNUM OG FJÖLSKYLDUM ÞEIRRA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN Nú í vor hefur verið unnið að töluverðum endurbótum á þjónustumiðstöðinni Hraunborgum, félagsheimili sjómanna í Grímsness- og Grafningshreppi. Margt var einnig gert í nánasta umhverfi þjónustumiðstöðvarinnar. Meðal annars var vígð ný og glæsileg útsýnisskífa við hlið sundlaugarinnar. Allt umhverfi hennar er til fyrirmyndar og vel þess virði að gera sér ferð austur og skoða skífuna og fjallahringinn, því landslag yrði lítils virði ef það héti ekki neitt. Einnig er tilvalið að skreppa í sund í leiðinni eða fara einn hring á golfvellinum. Byggt var yfir pallinn við þjónustumiðstöðina í vor og á tjald – og hjólhýsasvæðinu var útbúið salerni til þess að mæta þörfum fatlaðra. Á svæðinu er minigolfvöllur sem nýtur mikilla vinsælda. Hann var allur endurnýjaður og um þessar mundir er verið að endurbæta flatirnar á 9. holu á golfvellinum í Hraunborgum, en í fyrra voru teigarnir endurnýjaðir. Þessi golfvöllur hentar vel fyrir byrjendur svo ekki sé talað um vinahópa og fjölskyldur sem vilja spila golf saman en eru með misjafna forgjöf eða enga. Ekki skemmir að flatargjaldið á vellinum er frekar lágt. Þjónustumiðstöðin er komin í netsamband og geta gestir á svæðinu fengið þar aðgang að netinu. Lokið var framkvæmdum við 27 sumarbústaðalóðir á síðasta ári við tvær götur, Bakkavík og Hofsvík. Verið er að ráðstafa þeim leigulóðum um þessar mundir. Hver lóð er 5.100 fm með aðgang að heitu og köldu vatni sem lagt er að lóðarmörkum. Félagsheimili sjómanna að Hraunborgum er opið frá 29. maí til 23. ágúst 2009. Við þjónustumiðstöðina er sundlaug með þremur heitum pottum og eimbaði. Þar er einnig tjald- og hjólhýsasvæði, með aðgangi að heitu og köldu vatni auk rafmagns. Auk útsýnisskífunnar og golfvallanna sem nefndir eru hér að framan er sparkvöllur á svæðinu, körfuboltaaðstaða og í þjónustumiðstöðinni er hægt að leigja reiðhjól og spila billjard, þythokkí, pílukast, leika sér í fótboltaspili eða horfa á sjónvarpið. Afþreyingarmöguleikarnir eru margvíslegir að Hraunborgum. Upplýsingar um lausar sumarbústaðalóðir og aðstöðuna í Hraunborgum fást hjá Félagsheimili sjómanna í Hraunborgum í síma 486-4414 (netfang hraunborgir@simnet. is), hjá Sjómannadagsráði í síma 585-9301/585-9302 og á vef Sjómannadagsráðs, www. sjomannadagsrad.is./hraunborgir. Nýjar sumarbústaðalóðir og miklar framkvæmdir í Hraunborgum Það er sannarlega hægt að láta sér líða vel að Hraunborgum. Við sundlaugina eru þrír heitir pottar og eimbað, leiktæki fyrir unga sem aldna eru á svæðinu, golfvöllur og sérlega gott tjald- og hjólhýsasvæði. Útsýnisskífan er í öndvegi í Hraunborgum. Þar er hægt að skoða fjallahringinn og nánasta umhverfi orlofssvæðisins.

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.