Sjómannadagsblaðið - 07.06.2009, Blaðsíða 22
22 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 7. JÚNÍ 2009
Sendum íslenskum sjómönnum
árnaðaróskir á hátíðisdegi þeirra
Þann 28. mars voru sjötíu ár
liðin frá því að stefnuskrárnefnd
Sjómannadagsráðs skilaði
tillögum ásamt langri álitsgerð um
framtíðaráform samtakanna sem
væru „að safna fé til stofnunar elli- og
hvíldarheimilis fyrir aldraða farmenn
og fiskimenn“. Þessum tillögum hefur
verið vel fylgt eftir sem sjá má þá litið
er yfir farinn veg Sjómannadagsráðs.
Þessum tímamótum í sögu
Sjómannadagsráðs var fagnað
föstudaginn 27. mars þegar Gunnar
I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi
og Guðmundur Hallvarðsson,
formaður Sjómannadagsráðs, tóku
fyrstu skóflustunguna að nýjum
leiguíbúðum fyrir 60 ára og eldri
við Boðaþing í Kópavogi. Þar munu
rísa 95 þjónustu- og öryggisíbúðir
og munu framkvæmdir við fyrri
áfanga, alls 48 íbúðir, hefjast nú í vor.
Boðaþing liggur á mörkum bæjar og
sveitar, þar er aðgengi að göngu- og
reiðstígum sem liggja að Elliðavatni og
í Heiðmörk.
Hönnun og skipulag þjónustu-
og öryggisíbúðanna miðast við að
aldraðir geti sem lengst haldið eigið
heimili og nýtt sér þá þjónustu sem
Hrafnista og Kópavogsbær bjóða í
Boðaþingi, s.s. fæði, heimilishjálp
eða heimahjúkrun. Innangengt
verður úr nýju byggingunni yfir
í þjónustumiðstöð aldraðra sem
Kópavogsbær er að reisa við Boðaþing
9. Í þjónustumiðstöðinni verður
fjölnotasalur með eldhúsi, sundlaug
og föndursalur auk þess sem þar
verður boðið upp á sjúkraþjálfun hár-
og fótsnyrtingu, svo eitthvað sé nefnt.
Auk þess að reka
þjónustumiðstöðina mun Hrafnista
sjá um rekstur hjúkrunarheimilis sem
Kópavogsbær er að reisa við Boðaþing
í samvinnu við ríkisvaldið.
Þjónustu- og öryggisíbúðirnar
verða vandaðar af allri gerð og
skipulag þeirra og innréttingar taka
mið af þörfum aldraða. Dyraop
verða breið og rennihurðir inn á
bað- og svefnherbergi. Sérstakur
öryggisdúkur verður á gólfum
baðherbergja og öryggishnappur í
hverri íbúð. Íbúðunum fylgja svalir
sem eru yfirbyggðar en auðvelt er
að opna svalirnar nánast að fullu. Í
húsinu verða bæði tveggja og þriggja
herbergja íbúðir 60 til 90
fermetrar að flatarmáli, eða
88 til 131 fermetri þegar
tillit er tekið til sameignar og
geymslna.
Lóðin verður fullfrágengin
þegar húsið verður tekið í
notkun. Áhersla verður lögð
á góða útilýsingu, bílastæði
verða malbikuð og gangstígar
hellulagðir og verða allar
helstu gönguleiðir á lóðinni
með snjóbræðslu.
Áætlað er að bjóða
heildarframkvæmdina út
í almennu útboði
á næstunni og
stefnt er að því
að jarðvinna
hefjist strax í
vor og almennar
framkvæmdir um
mitt sumar 2009.
Húsið verður byggt í
tveimur áföngum og
verklok fyrsta áfanga, þar sem eru 48
íbúðir, eru áætluð í október/nóvember
2010. Hönnuðir hússins eru THG
arkitektar, Verkfræðiþjónustan ehf.
og VSÓ ráðgjöf. Frekari upplýsingar
um lausar íbúðir og fleira fást hjá
Sjómannadagsráði í síma 585 9301
og á vef Sjómannadagsráðs, www.
sjomannadagsrad.is.
Sjómannadagsráð:
Reisir 95 leiguíbúðir
fyrir aldraða í Kópavogi