Sjómannadagsblaðið - 07.06.2009, Síða 17
177. JÚNÍ 2009 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Árleg Sjómannadagsmessa verður í
Dómkirkjunni kl. 11.00 að morgni
Sjómannadagsins. Biskup Íslands,
herra Karl Sigurbjörnsson, predikar
og séra Hjálmar Jónsson þjónar fyrir
altari. Dómkórinn syngur við
athöfnina, organisti er Marteinn H.
Friðriksson og Einar Örn Einarsson
stýrimaður syngur einsöng.
Að venju sér Sjómannadagsráð um
gerð messuskrár. Forsíðumynd
messukrárinnar er af altaristöflunni í
Grindavíkurkirkju og sýnir Jesú kyrra
vind og sjó. Altaristaflan er endurgerð
af málverki eftir Ásgrím Jónsson.
Sjómannamessa
í Dómkirkjunni
Á undanförnum mánuðum hafa staðið
yfir umfangsmiklar framkvæmdir í
húsnæði Hrafnistu í Reykjavík. Þeim
er ekki lokið en markmið þeirra er að
mæta vaxandi kröfum nútímans um
bættan aðbúnað aldraðra og
framfylgja, eins og hingað til,
yfirlýstri gæðakröfu Hrafnistu um að
vera leiðandi í þjónustu og umönnun
aldraðra.
Breytingarnar eru margháttaðar.
Miðrými hafa verið stækkuð og
endurnýjuð auk þess sem unnið er að
stækkun allra herbergja.
Framkvæmdirnar hófust strax að
loknum sjómannadegi árið 2007 er
byrjað var að grafa fyrir grunni að
stækkun miðrýma á göngum E, F og
G. Gangar E2 og E3 voru teknir í
notkun í júní 2008 með samtals
fimmtán hjúkrunarrýmum, þar sem
öll herbergi eru einbýli með salerni. Á
deild E2 voru áður 17 einbýli með
sameiginlegum salernum en þar verða
nú 7 einbýli með salerni. Á deild E3
voru áður 18 einbýli með
sameiginlegu salerni. Þar verða nú 8
einbýli með salerni. Áætlaður
kostnaður við þessar breytingar er um
110 milljónir króna. Samhliða
áðurnefndum breytingum var
miðrými annarrar, þriðju og fjórðu
hæðar stækkað og bætt við svölum.
Áætlaður kostnaður við þær
breytingar er um 45 milljónir króna
fyrir utan uppsteypu.
Tvíbýlum breytt í einbýli
Í nóvember 2008 hófust fram-
kvæmdir við annan áfanga vegna
breytinga á deild G2, G3 og G4. Þeim
verður senn fulllokið. Reiknað er með
að á deild G2 verði hvíldarinnlagnir
með 16 rýmum, þar sem áður
voru 24 rými í tvíbýli. Á G3 og G4
var tólf tvíbýlum breytt í annars
vegar níu einbýli og hins vegar tíu
einbýli. Áætlaður kostnaður við
breytingar á deildunum er áætlaður
um 130 milljónir króna. Í nóvember
hófust jafnframt framkvæmdir í
porti við norðurenda hússins með
gerð aðkeyrslu og inntaks fyrir
vatnsúðakerfi (brunakerfi). Þessum
framkvæmdum lauk snemma á þessu
ári og er áætlaður kostnaður um 35
milljónir króna.
Kostnaður um milljarður
Áætlað er að heildarkostnaður við
ofangreindar breytingarnar, sem
taka munu á bilinu þrjú til sjö ár,
verði nálægt einum milljarði, sem
gera um átta milljónir króna á hvert
hjúkrunarrými.
Breytingar á Hrafnistu í
Reykjavík
Fyrir breytingu
Eftir breytingu
Lífið á Hrafnistu