Sjómannadagsblaðið - 07.06.2009, Qupperneq 19
197. JÚNÍ 2009 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Afltækni
Báran – stéttarfélag
Dalvíkurbyggð – Hafnasjóður
Efling – stéttafélag
Egersund Ísland ehf.
Eimskip
Frostfiskur
Gullberg ehf.
Gúmmísteypa Þ. Lárusson ehf.
Hafnarfjarðarhöfn
Hafnarsjóður Skagafjarðar
Hafnarsjóður Þorlákshafnar
Hafnir Vesturbyggðar
Ísfiskur ehf.
Kaupfélag Skagfirðinga
Klaki – stálsmiðja
Loðnuvinnslan hf.
Löndun hf.
MD vélar hf.
Nesskip hf.
Ó. Johnson & Kaaber hf.
Ólafur Þorsteinsson ehf.
Raftíðni ehf.
Ráðgarður – skiparáðgjöf
Reykjaneshöfn
Sandgerðishöfn
Síldarvinslan hf.
Sjómanna- og vélstjf. Grindavíkur
Sjómannafélag Eyjafjarðar
Sjómannasamband Íslands
Spennubreytar ehf.
Sveitarfélagið Garður
Útflutningsráð
Vestmannaeyjahöfn
Véla- og bílaþj. Kristjáns ehf.
Vélaverkstæði Jóhanns Ólafs ehf.
Vélsmiðjan Foss ehf.
Viking – björgunarbúnaður ehf.
Vistor hf.
Þórsberg ehf.
Sendum íslenskum sjómönnum
árnaðaróskir á hátíðisdegi þeirra
viðhaldið
Allt fyrir
515 4001
í viðhaldssíma BYKO
Hringdu
Opið virka daga frá 10-18
vidhald@byko.is
EXPO
· w
w
w
.expo.is
Andrés Guðjónsson, fyrrverandi
skólameistari Vélskóla Íslands, lést 22.
janúar á Landakoti áttatíu og átta ára
að aldri. Andrés fæddist í Hafnarfirði
13. júní 1921. Hann lærði rennismíði
hjá Vélsmiðju Hafnarfjarðar og tók
sveinspróf í greininni 1942. Hann
lauk vélstjóraprófi tveimur árum
síðar og rafmagnsdeildarprófi 1945.
Andrés lauk æðsta vélstjóraprófi frá
Köbenhavns Maskinmesterskole 1949
og varð tæknifræðingur frá Odense
Maskinbygnings teknikum 1950. Hann
kynnti sér meðferð og notkun vatns fyrir
gufukatla í Newcastle á Englandi. Einnig
sótti Andrés námskeið hjá Shell í London
í meðferð á smurolíum og efnagreiningu
þeirra og fór reglulega í kynnis- og
námsferðir til að afla sér aukinnar
þekkingar á menntun vélstjóra og
vélfræðinga, aðallega til Norðurlandanna.
Andrés var kyndari og vélstjóri á
síldveiðibátum og togurum. Þá var
hann vélstjóri í síldarverksmiðjunni á
Djúpuvík, síðast sumarið 1956. Hann
starfaði einnig sem verksmiðjustjóri
hjá Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunni
að Kletti á árunum 1950 til 1953,
eða þar til hann hvarf til starfa á
teiknistofu Vélsmiðjunnar Héðins
í Reykjavík, þar sem hann starfaði
sem tæknifræðingur til 1955. Andrés
kenndi á mótornámskeiðum Fiskifélags
Íslands og hjá Bréfaskóla SÍS og ASÍ frá
1961 allt þar til að slíkt kennsluform
var lagt niður. Andrés var kennari við
Vélskóla Íslands frá 1955 til 1971 en þá
tók hann við sem skólastjóri og síðar
skólameistari. Því starfi gegndi hann
til ársins 1991. Hann var árið 1978
skipaður í nefnd um endurskoðun laga
um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra
og vélavarða á íslenskum skipum. Ný
lög um atvinnuréttindi tóku síðan gildi í
desember 1984. Andrés var eftirlitsmaður
hvalveiðiskipa Hvals hf. og yfirvélstjóri
á þeim í viðlögum. hann var meðdómari
í sjórétti sem og skipaskoðunarmaður
fyrir American Bureau of Shipping á
árunum 1967 til 1981. Andrés var meðal
stofnenda Skátafélags Hafnarfjarðar
1937 og formaður Iðnfræðingafélags
Íslands 1955 til 1956. Hlaut íslensku
fálkaorðuna 1992. Andrés skrifaði
kennslubækur, m.a. fyrir nema í
vélstjórnarfræðum sem notaðar voru í
mörg ár.
Andrés kvæntist 9. desember
1950 eftirlifandi eiginkonu sinni,
Ellen Margrethe Guðjónsson
hjúkrunarfræðingi frá Lumby á Fjóni í
Danmörku. Þau eignuðust þrjá syni; Jens,
Ívar og Grím.
Við leiðarlok þakkar Sjómannadagsráð
Andrési Guðjónssyni fyrir margvísleg
og óeigingjörn störf í þágu íslensku
sjómannastéttarinnar.
Minning
Andrés Guðjónsson