Sjómannadagsblaðið - 07.06.2009, Síða 21
217. JÚNÍ 2009 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
www.tskoli.is
Mótaðu eigin framtíð
Fjölbreytt og hagnýtt nám í einum öflugasta
framhaldsskóla landsins.
Hvort sem markið er sett á frekara nám eftir framhaldsskóla eða
starfsréttindi hefur Tækniskólinn eftirsóknarverða möguleika til náms.
Kynntu þér námsframboðið á www.tskoli.is.
Innritun eldri nema stendur til 3. júní, en grunnskólanemar geta
innritað sig til 11. júní.
1967
voru undir íslenskum fána 37 farþega- og
flutningaskip, samtals 50.170 rúmlestir
að stærð, 777 togarar og fiskiskip, samtals
84.718 rúmlestir að stærð að hvalveiðiskipum
meðtöldum, 5 olíubátar, samtals 161 rúmlest,
og 7 olíuflutningaskip, samtals 8.361 rúmlest
að stærð. Þá gerðu Íslendingar út 11 björgunar-
og varðskip, samtals 2.886 rúmlestir, 1
hafrannsóknaskip, 499 rúmlestir að stærð auk
9 hafsögubáta, tollbáta, pramma og fl., samtals
696 rúmlestir, 3 dráttarskip, samtals 294
rúmlestir, og 5 dýpkunar- og sanddæluskip,
samtals 1.885 rúmlestir.
2009
er ekkert farþega- og flutningaskip í
utanlandssiglingum skráð undir íslenskum
fána. Hér eru skráðir 60 skuttogarar og 770
fiskiskip, samtals 161.551 brúttótonn, 2
olíubátar, samtals 431 brúttótonn (ekkert
olíuflutningaskip), 18 björgunarbátar
(Landsbjörg), samtals 675 brúttótonn,
2 varðskip, samtals 2.500 brúttótonn, 2
hafrannsóknaskip, samtals 4.000 brúttótonn,
og 1 skólaskip, samtals 1.200 brúttótonn.
Einnig 11 hafsögubátar, samtals 285
brúttótonn, 10 dráttarskip, samtals 511
brúttótonn, 5 dýpkunar- og sanddæluskip,
samtals 2.220 brúttótonn og 37 ferjur og
hvalaskoðunarbátar, samtals 7.457 brúttótonn,
auk 118 skemmtibáta, samtals 1.281
brúttótonn að stærð.
Flotkvíar, prammar og önnur ótilgreind skip
eru ekki talin með í þessari upptalningu.
Þess skal getið að samkvæmt upplýsingum
Fiskistofu frá 1. september 2008 hafa u.þ.b.
700 íslensk fiskiskip veiðileyfi við Ísland.
Auk upptalinna skipa eru nokkur hundruð
opnir bátar (ekki þilfarsskip) skráðir á Íslandi.
Fjölmörg skip á íslenskri skipaskrá hafa ekki
haffæri og eru ekki gerð út. Sjá fjölda skipa
með veiðileyfi. Haffæri er skilyrði útgáfu
veiðileyfis.
Þilfarsskip Íslendinga 2009
samanborið við 1967
Togarar
Fiskiskip yfir 100 rúmlestir
Olíubátar og olíuflutningaskip
Fiskiskip undir 100 rúmlestum
Björgunar- og varðskip
Hafnsögubátar, tollbátar, prammar, drát-
tarskip, dýpkunar- og sanddæluskip.
Farþega- og flutningaskip
Sendum íslenskum
sjómönnum
árnaðaróskir á
hátíðisdegi þeirra